Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202128
Hagkaup, Krónan og
Fjarðarkaup hafa tekið í sölu
nýja og spennandi vöru úr
íslensku lambakjöti sem fyr-
irtækið Pure Arctic hefur
þróað. Um er að ræða
rifið lamb (e. pulled
lamb) úr lamba-
bógum sem eru
hægeldaðir og
kryddaðir. Varan
er tilbúin til neyslu í
handhægum 350 g pakkn-
ingum og þarf einungis að
hita kjötið upp.
Varan er tilvalin í fljóteldaða
rétti svo sem hamborgara, samlokur,
vefjur, tacos og á pitsur. Pure Arctic
kynnti Pulled lamb til sögunnar í
Danmörku í byrjun síðasta árs og
hefur varan náð góðri festu á mark-
aðnum og salan farið fram úr björt-
ustu vonum.
Pure Arctic var stofnað af
Sverri Sverrissyni og Jørgen Peter
Poulsen fyrir um þremur árum.
„Markmið félagsins er að fram-
leiða og dreifa hágæða matvörum
frá Norðurslóðum sem framleiddar
eru á vistvænan hátt með endurnýj-
anlegum orkugjöfum og með lág-
marks kolefnisspori. Fljótlega bætt-
ust Sölufélag garðyrkjumanna og
Kaupfélag Skagfirðinga við í hlut-
hafahópinn og hafa stutt dyggilega
við upp-
b y g g i n g u
f é l a g s i n s .
Markmiðið til
lengri tíma litið er
að byggja upp vöru-
merkið Pure Arctic á
þann hátt að neytandinn
tengi merkið við hágæða
vörur frá Norðurslóðum
sem framleiddar eru undir
góðum skilyrðum, á vistvænan hátt
og með endurnýjanlegum orkugjöf-
um. Það er trú okkar að auka megi
virði þessara afurða sem finnast
í takmörkuðu magni með því að
markaðssetja þær sem hágæða vöru
og velja staðsetningar á markaði
sem henta,“ segir Sverrir. Það sé
best gert í tilfelli íslenska lambsins
með því að segja söguna af sérstöðu
okkar sauðfjárbú-
skapar og gæðum
lambakjötsins.
„Pure Arct ic hóf sölu á
íslensku grænmeti og lamba-
kjöti í Danmörku í upphafi árs
2019 og hefur að mestu selt vörur
sínar í vefverslun Nemlig.com undir
vörumerki Pure Arctic. Vörurnar
eru markaðssettar sem hágæða
vörur eins og lýst hefur verið hér
að ofan og keppa við það besta sem
fyrir er á markaðnum. Mun betra
verð fæst t.d. fyrir íslenska lamba-
kjötið en fæst fyrir sambærilegt kjöt
frá Nýja-Sjálandi og teljum við að
þakka megi þann árangur staðfær-
slu vörunnar og markaðssetningu.“
Að sögn Sverris hefur verið
rífandi gangur í útflutningi félags-
ins á matvörum frá Íslandi en auk
Danmerkur flytur félagið út vörur
til Færeyja og Grænlands í nánu
samstarfi við Sölufélag garðyrkju-
manna og KS. Auk lambakjötsins
flytur Pure Arctic m.a. út íslenskt
grænmeti eins og t.d. agúrkur,
tómata og salat. Mikil eftirspurn
er eftir íslenska grænmetinu bæði
vegna bragðgæða og einnig vegna
hreinleikans sem er einstakur. Þá er
félagið einnig að markaðssetja Pure
Arctic Omega-3 síldarlýsið sem er
íslensk framleiðsla og fæst í búðum
hérlendis. Margildi framleiðir lýsið
með einkavarinni vinnsluaðferð.
Markaðsstofan íslenskt lamba-
kjöt (e. Icelandic Lamb) leggur
markaðssetningu Pure Arctic lið
með því að leggja til uppruna og
gæðamerki sitt sem m.a. má sjá
á íslenskum umbúðum „pulled
lamb“ og veitir með því aðgang
að markaðsefni sínu. Þá hefur
markaðsstofan komið að viðburð-
um og kynningum í samstarfi við
Pure Arctic. Hafliði Halldórsson,
framkvæmdastjóri íslensks lamba-
kjöts, segir: „Áherslur Pure Arctic
í nálgun sinni á markaðinn passa
fullkomlega við stefnu okkar um að
lyfta upp ímynd lambakjötsins með
því að nota það sem blasir við okkur
öllum. Sem eru gæðin og einstök
saga okkar séríslenska sauðfjárkyns,
búskaparhættir íslenskra bænda og
velferð dýranna.“ /HH
ÍSLENSKT LAMBAKJÖT
KURLARARNIR KOMNIR
Ansi öflug verkfæri með 15 hp
bensínmótor, blæs kröftuglega frá sér.
Tekur allt að 100mm. Auka hnífasett
fáanlegt. Verð á samsettu tæki
kr. 259.000.- með vsk.
Vír og lykkjur ehf.
Sími 772 3200
272 fm. hesthús. 54 hesta pláss samkvæmt
eldri reglugerð eða 30 pláss í lúxus stíum.
Fimm gerði fylgja húsinu sitt hvoru megin við.
Ýmsir mögurleikar eru t.d : Byggja reiðskemmu
yfir hluta af gerði, útbúa íbúð o.fl.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Tyrfingsson
s. 898-3708, löggildur fasteignasali og húsa-
smíðameistari, sigurdur@gardatorg.is.
FRÁBÆRT HESTHÚS Á BESTA
STAÐ Á FÉLAGSVÆÐI FÁKS
Pulled lamb frá Pure Arctic á markaðinn
LÍF&STARF
Norðurþing:
Góð verkefnastaða hjá iðnaðarmönnum
Bjart er yfir iðnaðarmönnum í
Norðurþingi um þessar mundir
enda mikið að gera og lítið sem
ekkert atvinnuleysi meðal þeirra,
ólíkt öðrum atvinnugreinum.
Jónas Kristjánsson, formaður
Þingiðnar, ræddi stöðu í atvinnu-
málum iðnaðarmanna ásamt
framkvæmdastjóra félagsins við
Byggðaráð Norðurþings á dögunum.
Fram kom í máli Jónasar að staðan
sé góð, einkum hjá trésmiðum.
Töluvert hafi verið um nýbyggingar
og viðhaldsverkefni á svæðinu og
að sjálfsögðu munaði um stórar
framkvæmdir á mælikvarða
svæðisins, svo sem eins og
framkvæmdir Búfesti á Húsavík,
nýtt fjölbýlishús við Útgarð og
framkvæmdir fiskeldisfyrirtækja í
Kelduhverfi og Öxarfirði. Allt væru
þetta mannfrek verkefni.
Bygging hjúkrunarheimilis
í farvatni og ef til vill
þaraverksmiðja
Þá kom fram að frekari verkefni
væru í farvatninu sem myndu
skipta verulegu máli á næstu árum
hvað byggingariðnaðinn varðar,
s.s. bygging á nýju hjúkrunarheim-
ili á Húsavík.
Jafnframt væri til skoðunar
að reisa húsnæði undir þaraverk-
smiðju og vonandi myndi sú hug-
mynd ná fram að ganga. Þá kæmi
til með að lifna yfir öðrum iðnaði
þegar starfsemi PCC á Bakka færi
aftur á stað í vor. Sagt er frá fund-
inum á vefsíðu stéttarfélagsins
Framsýnar. /MÞÞ