Bændablaðið - 25.03.2021, Síða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202130
UTAN ÚR HEIMI
Fuglaflensusmit kom upp hjá stærsta
kalkúnaframleiðanda Danmerkur
Fuglaflensusmit er nú komið upp
á kalkúnabúum í Danmörku.
Hefur fuglaflensan fundist á
tveimur af níu búum stórfram
leiðanda í landinu. Danska
Matvælastofnunin fylgist því sér
staklega vel með búunum.
Átta dönsk kalkúnabú hafa verið
sett undir opinbert eftirlit af dönsku
Matvælastofnuninni samkvæmt frétt
Landsbrugs Avisen. Ástæðan er að
fuglaflensusmit af stofni A(8H5N8)
HPAI hefur komið upp á tveim af
átta býlum sem áður voru í eigu
Harboe brugghússins. Búin átta
eru nú öll í eigu sama fyrirtækisins,
APM Danmark A/S, sem stendur
fyrir miklum meirihluta kalkúnfram-
leiðslu í Danmörku.
Alls hefur APM Danmörk
níu býli í rekstri þar sem hægt er
að ala 274.000 kalkúna árlega.
Laugardaginn 6. mars fannst smit
á fyrsta kalkúnabúinu af níu sem
fyrirtækið rekur.
Það var aukin dánartíðni meðal dýr-
anna sem olli áhyggjum á bænum, sem
er staðsettur við Lundby við Skælskør
á Vestur-Sjálandi. Á bænum voru tæp-
lega 50.000 kalkúnar. Upphaflega
voru aðeins 4.000 kalkúnar drepnir
úr einu af tíu kalkúnahúsum á bænum.
Nokkrum dögum síðar hafði smitið
breiðst út í önnur hús og var öllum
dýrunum þá slátrað.
„Þegar fyrst uppgötvaðist um
smitið á fyrsta búinu var einnig
ákveðið að auka eftirlit með hinum
fuglahjörðunum. Það er nokkuð
algengt að við könnum hvort það
eru náin tengsl við sýkt bú og setj-
um önnur bú undir opinbert eftirlit,
eins og það er kallað,“ útskýrir Tim
Petersen, aðstoðarframkvæmdastjóri
dönsku Matvælastofnunarinnar, og
heldur áfram:
„Í þessu tilfelli var um tilviljana-
kenndar ferðir starfsfólks að ræða á
milli bæjanna og því gátum við ekki
verið hundrað prósent viss um að
smit bærist ekki til annarra hjarða.“
Miklar áhyggjur af
frekari útbreiðslu
Ótti um frekari smit var staðfestur
miðvikudagskvöldið 10. mars á öðru
býli fyrirtækisins, sem staðsett er rétt
tæpa tvo kílómetra frá því búi sem
fyrsta smitið uppgötvaðist. Reyndust
prufur þar vera jákvæðar varðandi
fuglaflensu, en á búinu voru 24.000
kalkúnar.
„Við höfum verulegar áhyggjur
af þessu,“ sagði Tim Petersen.
„Þess vegna erum við að gera eins
mikið og við getum til að takmarka
útbreiðslu smits. Nú hefur sýkingin
sýnt að hún getur farið frá húsi til
húsa og þess vegna erum við líka
vakandi fyrir öðrum smitleiðum.“
Átta bú sem áður
voru í eigu Harboe
Bæirnir átta sem nú eru undir eft-
irliti voru sem fyrr segir áður í eigu
brugghússins Harboe. Brugghúsið
hætti framleiðslu í kalkúnum árið
2004 og síðan var aðstaðan leigð af
matvælafyrirtæki í eigu Þjóðverja.
Þýska fyrirtækið keypti svo búin
undir nafni APM Danmark A/S
og er nú alls með níu býli undir
kjúklingarækt sína.
Ekki er lengur eiginlegt
kalkúna sláturhús í Danmörku
og þess vegna verður í flestum
tilfellum að flytja alifuglana til
Þýskalands þar sem kalkúniðnað-
urinn er mun viðameiri. Þessi níu
kalkúnabú skiluðu APM Danmark
A / S samtals 1,5 milljónir danskra
króna í hagnað á fjárhagsárinu
2019/2020. /HKr.
VALLARBRAUT EHF WWW.VALLARBRAUT.IS Trönuhrauni 5 Hafnarfirði S-4540050
26-50-75-90 hestöfl
PERKINS mótor 75-113 hestöfl
113 hö 6.400.000+vsk
Gangstéttarvél 90 tilboð 5.500.000+vsk með frambúnaði
Með tækjum 7.650.000+vsk
26 hö frá 1.480.00+vsk
með tækjum frá 2.060.00+vsk
Fuglaflensa komin upp í að minnsta
kosti 25 Evrópusambandslöndum
– Vírusinn hefur greinst í fleiri Evrópulöndum, þar á meðal í Bretlandi og í Rússlandi
Fuglaflensusmit af A(8H5N8)
HPAI stofni var þann 23.
febrúar síðast liðinn staðfest í
25 Evrópu sambandslöndum.
Voru þá staðfest 1.022 smit, en
um bráðsmitandi tilfelli er að
ræða. Að auki var þá staðfest
592 smit í alifuglum í Bretlandi
og 421 smit í villtum fuglum þar
í landi samkvæmt tölum Mat
væla öryggisstofnunar Evrópu
(EFSA).
Vegna útbreiðslu veirunnar
í Evrópu bönnuðu Sameinuðu
arabísku furstadæmin í janúar
allan innflutning á fuglum og
alifuglaafurðum frá Bretlandi og
Hollandi. Þetta átti reyndar við
alla fugla og fuglaafurðir, líka úr
villtum fuglum. Þá var þegar búið
að slátra tugum þúsunda alifugla í
Bretlandi vegna flensunnar.
Fuglaflensa orðin útbreidd í
villtum fuglum
Samkvæmt upplýsingum
Alþjóðaheilbrigðis mála stofnun-
inni (WHO), hefur fuglaflensa
verið greind í villtum fuglum vítt
og breitt um Evrópu. Þar á meðal
í Búlgaríu, Tékklandi, Þýskalandi,
Ungverjalandi, Kasakstan,
Hollandi, Póllandi, Rúmeníu.
Bretlandi og í Rússlandi. Mat-
væla stofnunin á Íslandi hefur
einmitt varað við því að fugla-
flensan kunni að berast með
farfuglum til landsins nú með
vorinu.
Smit kom upp á varphænum
Fuglaflensusmitin sem um ræðir
greindust á tímabilinu frá 8.
desember 2020 til 23. febrúar 2021.
Fyrir utan smitin í löndum ESB
hefur verið tilkynnt um sjö tilfelli
vegna A (H5N8) HPAI-vírus í
Rússlandi (High Pathogenicity Avian
Influenza). Samkvæmt fregnum frá
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni
(WHO) vöknuðu grunsemdir um
flensuna í Rússlandi þegar 101.000
af 900.000 varphænum drápust
skyndilega á búgarði í Rússlandi
í desember 2020. Það var síðan
staðfest af rannsóknastofnun Alþjóða
dýraheilsustofnunarinnar (OIE) og
dýraheilbrigðisstofnun Rússlands í
borginni Vladimir. /HKr.Fuglaflensuvírus hefur m.a. fundist í álftum í Evrópu. Mynd / HKr.
Alls hefur APM í Danmörku níu býli í rekstri þar sem hægt er að ala 274.000
kalkúna árlega.
Fuglaflensuveiran sem alifuglabændur eru nú að berhjast við er nefnd
A(8H5N8) HPAI.