Bændablaðið - 25.03.2021, Side 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202132
LÍF&STARF
Kjúklingasláturhús Reykjagarðs á Hellu. Þar er slátrað um 50.000 kjúklingum á viku. Myndir / HKr.
Þann 20. febrúar síðastliðinn fagn-
aði Reykjagarður 50 ára afmæli. Í
dag er Reykjagarður stærsti fram-
leiðandi kjúklingaafurða á Íslandi
og skilgreinir sig sem markaðs-
drifið fyrirtæki í alifuglabúskap
og matvælaframleiðslu. Félagið
er í 100% eigu Sláturfélags
Suðurlands.
Meginþættir starfseminnar felast
í stofnfuglarækt, útungun, kjúklinga-
eldi, slátrun, vinnslu, fulleldun, sölu-
og markaðsstarfi. Hjartað í starf-
seminni er í Rangárþingi, þar sem
félagið rekur umfangsmikið eldi og
stofnfuglarækt að Ámundarstöðum,
í Meiri Tungu, Hellutúni og á
Jarlsstöðum. Þá er útungunarstöð,
sláturhús og vinnsla á Hellu. Auk
þessarar starfsemi er fyrirtækið
ýmist með á eigin vegum eða í
samstarfi við aðra, kjúklingaeldi í
Árnessýslu, Borgarfirði, Hrútafirði
og í Grindavík.
Þá er rekið fram-
leiðslueldhús í
Garðabæ og sölu-
deild á Foss hálsi í
Reykjavík.
Stolt af öflugri
starfsemi
„Á þessum tíma-
mótum erum við
stolt af þeirri öfl ugu starfsemi sem
Reykjagarður sinnir í dag. Verandi
stærsti aðili í kjúklingaeldi, slátrun
og vinnslu hérlendis. Við minnumst
með hlýhug og þakklæti þeirra sem
ruddu brautina, vörðuðu veginn
og gerðu okkur að því sem við
erum í dag. Við erum staðráðin í
að feta veginn áfram upp á við,“
segir Guðmundur Svavarsson
framkvæmdastjóri.
Margir starfsmenn hafa unnið
hjá fyrirtækinu í áratugi
Guðmundur ber starfsfólki sínu og
samstarfsaðilum afar vel söguna
og að það sé harðduglegt og
samviskusamt fólk. Þá hafi gengið
vel að manna sláturhús og vinnslu
og starfsmannavelta er lítil hjá
Reykjagarði á Hellu. Þó stór hluti
starfsmanna sé af erlendum uppruna,
þá hafa þeir margir hverjir starfað
hjá fyrirtækinu í áratugi og eru fyrir
löngu orðnir íslenskir ríkisborgarar.
Heildar starfsmannafjöldi hjá
Reykjagarði er
í dag um 120-130 manns, þar af um
70–80 sem starfa á Hellu. Fagfólk er
á öllum stigum framleiðsluferlisins,
jafnt í eldi og vinnslu, sem hefur
mikinn metnað og tryggir gæði og
áreiðanleika vörunnar. Sérstaklega
er gætt að velferð
fuglanna, enda er
góður aðbúnaður,
ásamt hreinu vatni og
hágæðafóðri lykillinn
að góðum árangri
í eldi og gæðum
framleiðslu varanna.
Fjöldi samstarfs-
aðila, verktaka og
bænda eiga í nánu
samstarfi við félagið.
Má þar nefna
verktaka við flutninga, þrif, viðhald
húsa og búnaðar, umsjón með fugli,
húsum og búnaði og fleiru.
Um 40.000 Íslendingar snæða
máltíð sem tengist Reykjagarði
á hverjum degi
Til gamans má geta þess að árleg
fram leiðsla jafngildir u.þ.b. 14-15
milljónum máltíða og má því segja
að á hverjum degi árið um kring
snæði u.þ.b. 40 þúsund Íslendingar
máltíð, sem byggir á starfsemi
Reykjagarðs. Enda er slagorð Holta
– „grunnur að góðri máltíð“.
Með um 40% af
kjúklingaframleiðslunni
„Við erum að framleiða um 50 þúsund
fugla á viku. Heildarframleiðslan á
alifuglakjöti í landinu hefur verið á
bilinu níu til tíu þúsund tonn. Hún
var heldur minni á síðasta ári, eða
8.705 tonn, og af því vorum við með
ríflega 40%. Síðan er Matfugl með
annað eins og Ísfugl með nálægt
20%,“ segir Guðmundur.
Sagan rakin til 1971
Reykjagarður hf. var stofnaður
20. febrúar 1971 af Jóni Vigfúsi
Bjarnasyni, garðyrkjubónda á
Reykjum í Mosfellssveit og konu
hans, Hansínu Margréti Bjarnadóttur.
Árið 1978 hóf félagið eggja-
og kjúklingaframleiðslu og árið
1982 keypti félagið alifuglabúið
Teig í Mosfellsbæ. Þann 1. janúar
1987 kaupir félagið kjúklingarækt
Holtabúsins hf. í Ásahreppi ásamt
útungunarstöð og sláturhúsi á Hellu.
Árið 1990 festir félagið síðan kaup
á þeim hluta Holtabúsins hf. sem
eftir var. Árið 1991 seldi það eggja-
framleiðslu sína og hætti þá sölu
neyslueggja.
Árið 1996 festi félagið kaup
á 1.400 fermetra húsnæði að
Álafossvegi 40 í Mosfellsbæ, þar
var til húsa skrifstofa, dreifingarstöð
og birgðastöð þess. Dreifing var í
höndum félagsins fram til september
2002 þegar samningur var gerður
við Landflutninga um að sjá um
dreifingu, en í mars 2004 tók
Sláturfélag Suðurlands yfir dreifingu
á vörum félagsins. Frá miðju ári
2007 hefur Eimskip/Flytjandi annast
dreifingu allra vara fyrirtækisins.
Skrifstofa félagsins flutti haustið
2003 að Fosshálsi 1 í Reykjavík.
Í ágúst 2002 keypti Sláturfélag
Suðurlands (SS) 67% hlutabréfa
í Reykjagarði af Búnaðarbanka
Íslands, sem litlu fyrr hafði
eignast félagið. Frá árinu 2007 er
Reykjagarður alfarið í eigu SS og
rekið sem sjálfstætt dótturfyrirtæki
þess með sjálfstæðan fjárhag, stjórn
og stjórnendur.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Reykjagarður 50 ára og með um 40%
af kjúklingaframleiðslu landsins
– Mikið lagt upp úr sýkingavörnum í kjúklingaeldi, slátrun og vinnslu
Björgvin Bjarnason framleiðslustjóri og Guðmundur Svavarsson,
framkvæmdastjóri í vinnslusal kjúklingasláturhússins á Hellu.
Starfsmenn Reykjagarðs vinna af mikilli samviskusemi við vinnslulínuna þó stutt væri í grín og glens. Enda ekki á hverjum degi sem ljósmyndara er hleypt
inn á þeirra vinnustað. Þeir eiga uppruna að rekja víða um heim, m.a. til Taílands, Kólumbíu og Austur-Evrópu, en eru margir orðnir íslenskir ríkisborgarar.