Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 45
máluð strútaegg sem talin eru vera
um 60 þúsund ára gömul.
Minjar um skreytt egg hafa
einnig fundist við fornleifarann-
sóknir í Mesapótamíu, Egyptalandi
og á eyjunni Krít og í flestum tilfell-
um eru þau talin tengjast helgisiðum
dauða og endurfæðingar. Ríkulega
skreytt egg sem hafa fundist við
eða nálægt grafreitum hefðarfólks
eru slegin gulli og silfri og ígrædd
gimsteinum.
Ôstara, gyðja vorsins
Þýski þjóðsagnasafnarinn Jacob
Grimm taldi mögulegt að páska-
egg meðal germanskra þjóða
tengdust fornri hátíð og dýrkun
gyðju vorsins, Ôstara. Fáar heim-
ildir styðja hugmyndina og jafn-
vel talið að hátíðin og gyðja hafi
verið hugarburður enska benedikt-
usar-munksins heilags Bebe, sem
var uppi á áttundu öld. Bebe er
meðal annars þekkur fyrir ritið De
temporum ratione, þar sem hann
segir frá ýmsum fornum siðum og
heimssýn forvera sinna.
Páskaeggjaleikir
Á miðöldum gengu börn á
Bretlandseyjum milli húsa á síðasta
sunnudegi fyrir föstuna og sníktu
egg, ekki ólíkt því að börn í dag
ganga milli húsa í dag á öskudag
og biðja um nammi. Þannig að í
dag hefur siðurinn að gefa börnum
egg færst frá upphafi föstunnar til
páska.
Það að fela páskaegg og leyfa
börnum að leita að þeim á páskadag
er gamall siður sem er enn víða
haldinn. Í Mið-Evrópu voru egg
oft falin í trjám eða undir þeim í
körfu sem líktist hreiðri til að minna
á komu vorsins.
Í Evrópu og Bandaríkjum
Norður-Ameríku þekkist leikur sem
felst í því að börn velti harðsoðnu
eggi niður brekku á páskadag og eru
reglur leiksins ólíkar milli svæða.
Einnig þekkist víða leikur sem felst
í því að reyna að brjóta egg keppi-
nautanna með því að kasta sínu
eggi í egg þeirra og sá sigrar sem
á síðasta heila eggið. Á Grikklandi
er til siðs að fólk heilsist á páskum
með því að slá saman eggjum og
brjóta þau.
Þjóðverjar eiga sér sérstakan
eggjadans á páskum sem felst í að
dreifa eggjum á gólfið og markmið-
ið að dansa í kringum eggin án þess
að brjóta þau.
Í eina tíð þótti við hæfi í Austur-
Evrópu að sækja egg til kvenna sem
voru flengdar með víðiberki sem
var klofinn eins og hrosstagl og
dýft hafði verið í vatn. Siðurinn,
sem átti að veita styrk og fegurð,
er nátengdur bolluvendinum sem
við þekkjum í dag og jafnvel talinn
forveri hans.
Einnig þekkist sá siður að færa
látnum páskaegg og leggja þau á
grafir með þeim orðum, „Kristur er
risinn“ og í þeirri trú að svo muni
hinn látni einnig gera.
Ólíkir siðir
Á Grikklandi er hefð fyrir því að
egg séu lituð með lauk og ediki
á fimmtudögum og dögum þegar
gengið er til altaris og kallast eggin
kokkina avga og tengjast helgihaldi.
Í Egyptalandi eru soðin egg skreytt
vegna hátíðarhalda sem kallast
Sham el-Nessin og er eins konar
sumardagurinn fyrsti þar í landi og
er haldinn hátíðlegur skömmu eftir
páskahald kristinna manna. Í Íran
tengjast egg nýja árinu sem hefst á
sumarsólstöðum.
Fyrir utan að mála egg með pensli
eða höndum má gera það í suðu með
ólíkum litarefnum. Séu egg soðin
með laukskræli verða þau brún, en
svört séu þau soðin með eikar-, elri-
berki eða valhnetum og rauðrófusafi
gerir þau bleikleit. Auk þess sem má
ná fram ýmsum litarafbrigðum með
blöndu ólíkra litargjafa.
Eins og fram hefur komið tákna
rauðmáluð egg í kristni blóð Krists
á krossinum. Hvít og ómáluð tákna
hreinleika, blá himininn sem sam-
einar okkur, svört frjósemi, gul tákna
sólina og kraft og græna náttúruna.
Ólíkar línur á lituðum eggjum hafa
líka ólíka merkingu. Lóðréttar
línur merkja líf og láréttar dauða en
tvær samhliða línur óendanleika.
Þríhyrningur gormlaga lína tákna
þekkingu og tíma en bylgjaðar línur
vatn og hreinleika. Krossinn á eggi
er merki kristnidóms.
Súkkulaðiegg
Egg gerð úr súkkulaði kom fyrst
fram á tíma Loðvíks 14. í Versölum
og árið 1725 hóf ekkja við hirðina að
búa til þannig egg með því að blása
úr hænueggjum og hella í þau bráðið
súkkulaði. Fyrstu páskaeggin komu
fram á Bretlandseyjum árið 1873 og
barst þaðan út um víða veröld.
Samkvæmt Heimsmetabók
Guinness vó þyngsta súkkulaði-
páskaeggið sem búið hefur verið til
tæp 7,2 tonn og var rúmir 10 metrar
að hæð.
Í Góa-héraði á Indlandi eru
páskaegg gerð úr marsípani.
Gimsteinaegg
Skrautegg urðu vinsælar gjafir
efnaðra fólks á barroktímanum á
17. öld. Inni í eggjunum voru oft
trúarlegar myndir, tákn eða andleg
heilræði á blaði. Skilaboðin inni í
eggjunum gátu líka verið ástarjátn-
ingar, brandarar og málshættir eins
og Íslendingar þekkja vel. Með inn-
reið upplýsingarinnar þóttu eggin
óþarfa pjátur og var sala þeirra
bönnuð um tíma í Evrópu en með
komu rómantísku stefnunnar hófst
sala þeirra á ný.
Af þess konar skrauteggjum
þóttu svokölluð Fabergé-egg bera
af. Eggin voru framleidd sérstak-
lega fyrir feðgana Alexandar III
og Nikolas II Romanov, tvo síð-
ustu keisara Rússlands, sem gjafir
fyrir eiginkonur þeirra og mæður.
Eingöngu voru búin til 69 slík og
í dag er einungis vitað um 57. Inni
í Fabergé-eggjunum, sem voru
iðulega úr gulli og silfri og skeytt
eðalsteinum, leyndust svo minni
gjafir eins og demantsnæla, perlur
eða annað glingur.
Í Fjallkonunni, árið 1893,
segir að á „páskunum í vor fann
Rússakeisari liggjandi á skrifborði
sínu mjög skrautlega málað páska-
egg; þegar það var opnað, hafði það
þrennt inni að halda, og brá honum
undarlega við það. Innan í egginu
var rýtingur úr silfri, tvær manns-
hauskúpur mjög haglega skornar
úr fílabeini og pappírsrenningur
með þessum orðum á: „Kristur er
upprisinn; vér munum einnig upp
risa.“ Í egginu leyndist því greinileg
hótun um uppreisn.
Sama ár gaf keisarinn, Alexandar
III, eiginkonu sinni, Maríu Feod-
dorovna, Fabergé-egg sem kall-
ast Kákasus. Egg sem búið er til
úr gulli, silfri, rúbínum, perlum,
fílabein og sér skornum demönt-
um. Keisaraynjan þótti einstaklega
glæsileg og greind og tekið til þess
hvað hún var alltaf snyrtileg til fara,
enda af dönsku hefðarfólki komin.
Eins og títt er með siði sem aðall-
inn tekur upp fylgdi millistéttin í
kjölfarið og ekki leið á löngu þar
til eiginmenn í Austur-Evrópu voru
farnir að gefa eiginkonum sínum
postulínsegg á páskum.
Páskaegg á Íslandi
Í Sögu daganna eftir Árna Björnsson
segir meðal annars um páskaegg að
þeirra sé fyrst getið í ofangreindri
frásögn í Fjallkonunni. Að sögn
Árna verða páskaegg ekki áberandi
á Íslandi fyrr en eftir 1920 en að ef-
laust hafi margir Íslendingar kynnst
þeim í Danmörku og að mögulega
hafi innflutt súkkulaðipáskaegg
verið til sölu í verslunum fyrir þann
tíma.
Árið 1923 auglýsir Smjörhúsið
Irma í Hafnarstræti: „Nýorpin páska-
egg komu með Botníu. Verðið mikið
lægra en áður“ og bendir það til að
páskaegg hafi verið áður til sölu.
Bakarar í Björnsbakaríi voru
fyrstir til að framleiða súkkulað-
ipáskaegg í mótum hér á landi árið
1922, auk þess sem bakaríið aug-
lýsir páskaegg úr marsípani, pappa
og silki. Sælgætisgerðin Víkingur
fylgd fast á eftir og hóf framleiðslu
á súkkulaðipáskaeggjum skömmu
síðar. „Verðmunur dýrustu og ódýr-
ustu hjá Björnsbakaríi vekur líka
nokkra athygli. Árið 1922 er hann
35-faldur, en árið eftir hvorki meira
né minna en 240-faldur. Ódýrustu
eggin kosta eftir sem áður 20 aura en
hin dýrustu 48 krónur. Stærstu eggin
hljóta að hafa verið nánast risavaxin
og hin minnstu örsmá.“
Hvað varðar þá hefð að mála
hænuegg á hún sér litla sem enga
hefð á Íslandi, lítið var um hænur
á landinu langt fram undir miðja
20. öld.
Á fjórða áratug síðustu aldar og
allt til dagsins í dag hefur samkeppn-
in á páskaeggjamarkaði harðnað
með hverju árinu og ólíkar útgáfur
af páskaeggjum aukist þrátt fyrir
að grunnurinn sé alltaf sá sami. Á
fimmta áratugnum var farið að setja
málshætti, eins og árinni kennir illur
ræðari, best er illu af lokið og margur
er knár, inn í páskaeggin. Ekki má
gleyma páskaunganum sem þykir
ómissandi á páskaeggið.
Súkkulaðipáskaegg eru í dag
hluti af páskahátíðinni og börn á
öllum aldri hlakka til að fá eggið
sitt og þeir sem eru búnir að slíta
barnsskónum eiga flestir sína upp-
áhaldsgerð af páskaeggi.
Fabergé-eggið Liljur vallarins frá 1889.
Páskaeggjaauglýsing í Dagblaði.
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku hefur
lengi verið til siðs að fara í leik sem
felst í því að velta eggjum á lóð Hvíta
hússins og víðar á páskadag.
Harðsoðin hænuegg eru víða lituð til skrauts fyrir páskahátíðina.
Þýskt páskaegg frá 1920 gert úr
pappamassa.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR
gerðir dráttarvéla