Bændablaðið - 25.03.2021, Síða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202156
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Björgólfur og Agnes búa í
Refsmýri og stunda sauðfjárrækt
og skógrækt.
Býli: Refsmýri.
Staðsett í sveit: Refsmýri er staðsett
í Fellunum á Fljótsdalshéraði.
Ábúendur: Björgólfur Jónsson,
Agnes Klara Ben Jónsdóttir, Hanna
Dís Björgólfsdóttir og Glódís Tekla
Björgólfsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við erum oftast þrjú í heimili en
elsta dóttir Björgólfs kemur til
okkar reglulega. Gæludýr, já þau eru
nokkur. Fjórir Samoyed hundar, tvær
Pomeranian tíkur svo tvær tíkur af
tegundinni French Bulldog.
Stærð jarðar? Jörðin er frekar lítil
sem er helsti ókostur hennar.
Gerð bús? Við erum í sauðfjárrækt
og einnig erum við með skógrækt.
Fjöldi búfjár og tegundir? Við
erum með 358 hausa og stefnum að
því að fjölga á næstu árum vonandi
í kringum 600 fjár.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Björgólfur er sjómaður og vinnur
tvær vikur á sjó og tvær í „fríi“
heima. Dagarnir eru misjafnir hvort
sem hann er heima eða ekki. Ef hann
er heima þá sér hann meira um búið
þar sem Agnes fer í vinnu en hún
vinnur vaktavinnu sem er skipulögð
þannig að það eru færri vaktir þegar
Björgólfur er á sjó. Ef Björgólfur er
ekki heima þá er Agnes að vinna á
hjúkrunarheimili einnig svo það fer
alveg eftir því hvort dagurinn byrji
með morgunnvakt þar. Annars eru
við með 1.000 fermetra fjárhús á
taði sem er með 12 gjafagrindum
svo stundum þarf aðeins að lyfta
upp í gjafagrindunum eða gefa
nýjar rúllur. Fjárhúsin eru fyrrum
gróðurhús sem var í eigu Barra.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Agnes er ekki alveg
að ná tengingu við liðléttinginn og
getur ein rúlla tekið 2 sek. að komast
í gjafagrindina og einnig meira
en 40 mínútur, sem er virkilega
þreytandi. Skemmtilegast er að
mynda tengingu við dýrin. Björgólfi
finnst leiðinlegast þegar kemur að
ormalyfjum og sprautuferlinu öllu
og skemmtilegast daglega dundið.
Glódísi finnst skemmtilegast að
gefa Grímu sinni gras en Gríma
er gemlingurinn hennar.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Við keyptum jörðina haustið
2020 og markmið okkar er að ná
upp meðalþyngdinni og fjölga
vonandi hausunum með tímanum
en í dag vantar alveg 100-200
fjár í húsin svo þau haldist betur
frostlaus á veturna, höfum verið
í vandræðum með vatnið í vetur
í mesta frostinu. Einnig erum við
með gömul hús á jörðinni sem er
vel hægt að hafa 250-300 hausa í
og eru í góðu standi.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í framleiðslu á íslenskum
búvörum? Við teljum að það þurfi
að skoða betur kjötframleiðslu, það
er alveg merkilegt hvað kjötið
kostar í búðunum miðað við hvað
bóndinn fær fyrir það í sláturhúsi.
Heimaslátrunarverkefnið er
spennandi og á eftir að hjálpa okkur
bændunum að koma okkar kjöti á
framfæri, margir vilja fá að kaupa
beint af býli en ekki í gegnum 2-3
eða 4 aðila.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Harðfiskur frá pabba Agnesar.
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Saltkjöt, hakk og
kjötsúpa borðast alltaf vel hjá
okkur.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þar sem við höfum ekki
verið lengi við bústörf þá eru þrátt
fyrir það komin nokkur skemmtileg
atvik. Við vorum nýlega flutt í
Refsmýri og það skellur á leiðinda
hret í september og var okkur sagt
að það væri gott að hafa hliðið á
túnunum opið ef þær skyldu mæta
heim í veðrinu. Við stóðum úti á palli
og töldum yfir 200 hausa í halarófu
á leiðinni inn á túnin, kindurnar
skiptu sér svo í brekkunni eða á
veginum eftir því hvort við áttum
þær eða ábúendur á næsta bæ. Þetta
var virkilega sérstakt að fylgjast
með. Agnesi leiddist reyndar ekkert
þegar einn lambhrútur náði að
stökkva með Björgólf hangandi á
sér á fóðurganginum þannig að þeir
enduðu í faðmlögum á gólfinu.
Jarðhnetu-hjúpaðar kjúklingabringur
Jarðhnetu-brauðrasp gefur
þessum kjúklingabringum
dýrindis stökka áferð og heldur
þeim mjúkum og safaríkum.
Hráefni
› 1 msk. ólífuolía, plús meira fyrir
bökunarplötu
› 3/4 bolli jarðhnetur
› 3 sneiðar hvítt samlokubrauð, rifið í
litla bita
› salt (ath. salt af hnetum) og malaður
pipar
› 2 stór egg
› 4 beinlausar, skinnlausar kjúklinga-
bringur skornar í helminga
› 1 búnt aspas
› 1 msk. smjör
› 2 teskeiðar fínt rifinn sítrónubörkur
Aðferð
Hitið ofninn í 220 gráður. Takið
bökunarplötu með álpappír, dreifið
olíu létt yfir og setjið til hliðar.
Í matvinnsluvél, „púlsið“ saman
hnetum og brauði þangað til áferðin
er orðin hæfilega gróf. Flytjið í
miðlungsstóra skál; þeytið olíu, 1/2
tsk. salti og 1/4 tsk. pipar saman.
Þeytið egg í stórri skál; kryddið
ríkulega með salti og pipar. Bætið
kjúklingi við og snúið yfir á hina
hliðina. Takið einn bita í einu og setj-
ið í hnetubrauðsmylsnuna, þrýstið
varlega á kjúklinginn og flytjið yfir á
bökunarplötu. Bakið þar til léttbrúnt
og rétt eldað í gegn, um það bil 15
mínútur.
Á meðan kjúklingur er að bakast,
eldið aspas í stórum potti af sjóðandi
saltvatni þar til hann er meyr, þrjár
til fjórar mínútur, allt eftir þykkt.
Tæmið og færið yfir í skál ásamt
smjöri og sítrónuberki, kryddið með
salti og pipar. Berið kjúkling fram
með aspas.
Ristað grasker með pestó og
mozzarella-osti
Bakið grasker með papriku og
lauk og berið síðan fram í salati
með basil-pestó og rjómakenndum
mozzarella-osti og fullt af gleði.
Hráefni
› 1 lítið butternut grasker, klofið í
helminga og skorið í 2 sentimetra
þykkar sneiðar
› 3 tsk. ólífuolía
› 1 tsk. þurrkaður mulinn chilli
› 1 rauðlaukur, skorinn í þunna fleyga
› 2 rauðar paprikur, skornar í bita
› 50 g poki klettasalat
› Safi úr ½ sítrónu
› 125 g kúla mozzarella
› 4 msk. pestó úr dós eða heimalagað
Aðferð
Hitið ofninn í 220 gráður. Setjið
graskerið á stóra bökunarplötu. Veltið
upp úr 2 tsk. af olíunni, chilli og kryddi.
Bakið í 15 mínútur.
Takið graskerið úr ofninum og snúið
því við. Dreifið lauknum og paprikunni
yfir og setjið aftur í ofninn í 25 mínútur
til viðbótar, eða þar til grænmetið er
orðið meyrt og hefur tekið á sig fal-
legan lit.
Veltið klettasalatinu upp úr afgangn-
um af olíu, sítrónusafa og smá pipar.
Færið yfir á diskana, með graskerinu,
lauknum og paprikunni ofan á. Rífið
mozzarellaost yfir graskerið og látið
aðeins bráðna.
Skreytið með pestói. Berið fram heitt.
Kókos-karrí-kál
Þetta er einföld, fljótleg og auðveld
uppskrift og er mjög sveigjanleg. Veljið
hráefnið eftir eigin smekk, eða bætið til
dæmis við fennel eða papriku, jafnvel
heitri papriku til að krydda það aðeins!
Það er frábært með steiktum fiski.
Hráefni
› 1 msk. ólífuolía
› 2 msk. smjör
› 1 lítill gulur laukur, þunnur skorinn
› 1 bolli gulrætur
› 1 hvítlauksrif, hakkað
› 1 lítið höfuðkál, skorið
› ½ bolli ferskur rifinn kókos
› 2 msk. indverskt karríduft
› ¾ bolli kókosmjólk
› salt og pipar eftir smekk
› ¼ bolli teningur ferskur tómatur
› ¼ bolli saxaður grænn laukur
› ¼ bolli saxaður kóríander
Aðferð
Setjið stóra pönnu yfir háan hita.
Hitið olíuna og smjörið þar til það er
er sjóðandi heitt. Hrærið saman lauk,
gulrót og hvítlauk þar til laukurinn
byrjar að mýkjast, um það bil eftir
eina mínútu. Bætið hvítkáli, kókos-
hnetu og karrídufti út í; hrærið í tvær
mínútur í viðbót.
Lækkið hitann í miðlungs lágan;
hellið kókosmjólkinni út í og kryddið
eftir smekk með salti og pipar. Setjið
lok á pönnuna og eldið að vild. Fyrir
framreiðslu, stráið tómötum, vorlauk
og kóríander yfir.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Refsmýri