Morgunblaðið - 11.02.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.02.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga og 11-15 laugardaga. www.spennandi-fashion.is ÚTSÖLULOK! HÖNNUN OG GÆÐI Morgunblaðið/Golli Friðlýst Dómkirkjan og Alþing- ishúsið eru bæði friðlýst hús. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Um 150 friðlýstar kirkjur eru í eigu og umsjá safnaða þjóðkirkjunnar um land allt. Þar á meðal er Húsa- víkurkirkja sem þarfnast kostnaðar- sams viðhalds, eins og greint var frá í Morgunblaðinu á mánudaginn var. Að sögn Agnesar M. Sigurðar- dóttur biskups Íslands var reiknað út í mars 2019 að viðhaldsþörf frið- lýstu kirknanna væri rúmlega 217 milljónir króna, sem er 1,75% af brunabótamati þeirra. Heildartala sóknargjalda til sókna þjóðkirkjunn- ar á sama ári var tæplega 193 millj- ónir króna. Þau þurfa að standa und- ir margvíslegum rekstri sóknanna. Sóknargjöldin skorin niður Agnes sagði í skriflegu svari að viðhaldsvandi kirkna væri útbreidd- ur og tengdist niðurskurði sóknar- gjalda. Hún benti á að þegar um friðlýst hús væri að ræða yrði að fara eftir ákveðnum reglum við við- gerðir sem gæti reynst dýrt. „Sóknargjöldin eru notuð í við- hald, rekstur og starfið innan sókn- anna. Djáknar, organistar, barna- og æskulýðsstarfsfólk og annað launað starfsfólk sóknarinnar fær laun sín frá sókninni en fjölmargir sjálfboðaliðar sóknanna fá engin laun. Sóknargjöldin hafa verið skor- in niður af ríkisins hálfu miðað við lög um sóknargjöld nr. 91/1987 um tugi prósenta,“ sagði í svari biskups Íslands. Agnes vitnaði í greinargerð með ályktun héraðsfundar Reykjavíkur- prófastsdæmis eystra 2019 en hann skoraði á Alþingi og ríkisstjórnina að leiðrétta sóknargjöldin. Þar var m.a. bent á að sóknargjaldið hefði verið skert gríðarlega frá árinu 2009 og langt umfram þann niðurskurð sem aðrir máttu þola vegna efna- hagshrunsins. „Hefur þessi skerðing leitt til þess að sóknargjaldið er nú kr. 925 kr. á mánuði fyrir hvern gjaldanda, og lækkar þannig um 6 kr. frá fyrra ári, en ætti skv. lögum að vera 1.649,72 kr., eða 724,71 kr. hærra á mánuði. Heldur ríkisvaldið því nú eftir um 44% af innheimtu sóknargjaldi,“ sagði í greinargerðinni. Skorið niður um 10,4 milljarða Þar kom fram að sumir söfnuðir væru að komast í þrot fjárhagslega, hefðu ekki getað sinnt brýnasta við- haldi eigna og væru ellefu árum eftir hrunið enn að segja upp starfsfólki og draga úr starfsemi sinni. Bent var á að árið 2019 hafði sóknargjald- ið aðeins hækkað um 6,3% frá árinu 2008 en vísitala neysluverðs hafði hækkað um 63,6% á sama tímabili. Heildarniðurskurður sóknargjalda til allra safnaða þjóðkirkjunnar nam á sama tíma rúmlega 10,4 milljörð- um króna. Jöfnunarsjóður sókna styrkir við- hald kirkna. Í fyrra sóttu sóknir um slíka styrki að upphæð um 900 millj- ónir króna en sjóðurinn hafði ekki nema um þriðjung þeirrar fjárhæð- ar til úthlutunar, að sögn biskups. Langvarandi fjársvelti  Sóknir geta ekki sinnt viðhaldi eigna Freyr Bjarnason Alexander Kristjánsson Til skoðunar er að semja um kaup á rússneska bóluefninu Spútnik V inn- an Evrópusambandsins, sem þar með yrði tekið í notkun hér á landi. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. „Það er mín sannfæring að það var rétt ákvörðun að vera samferða Evrópu í þessum málum. Á þeim vettvangi er verið að skoða þetta rússneska efni. Við erum þar um borð og við sjáum hvernig vindur fram með það,“ segir Svandís, sem veit ekki hvenær Spútnik V gæti hugsanlega komið til landsins. Bólu- efnið sé til skoðunar hjá Evrópsku lyfjastofnuninni. Spurð hvort annað erlent ríki hafi boðið Íslandi aðstoð um milligöngu að bóluefni svarar hún því neitandi. Svandís bendir á að Ísland sé með átta bóluefnaframleiðendur í sigtinu, en efnin séu mislangt á veg komin. Bólusetning hófst í Laugardalshöll Bólusett var í Laugardalshöll í Reykjavík í fyrsta sinn í gær. Um 400 lögreglu-, slökkviliðs- og sjúkra- flutningarmenn voru bólusettir á rúmri klukkustund en allir fengu þeir seinni skammt af bóluefni lyfja- fyrirtækisins Moderna. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæð- inu, segir að aðgengi sé mun betra í Laugardalshöll en á Suðurlands- braut þar sem áður var bólusett. Til að mynda sé hægt að hleypa fólki inn á einum stað en út á öðrum. Alls hafa nú 4.856 verið bólusettir að fullu, en 3.089 til viðbótar fengið fyrri skammt af tveimur. Ekkert innanlandssmit Ekkert kórónuveirusmit greindist innanlands á þriðjudag. Einungis sjö innanlandssmit hafa greinst síðustu 14 daga, og er nýgengi veirunnar innanlands því um 1,9 en það hefur ekki verið lægra síðan í júlí. Sautján eru í sóttkví vegna veirunnar og tólf á sjúkrahúsi. Morgunblaðið/Eggert Bólusetning Byrjað var að bólusetja í Laugardalshöll í gær. Um 400 framlínustarfsmenn fengu síðari bólusetningu. Rússneska bóluefnið Spútnik til skoðunar  Ekkert innanlandssmit  Nýgengi ekki lægra síðan í júlí Hugmyndir um að koma á milli- landaflugi um Hornafjarðarflugvöll myndu kalla á miklar framkvæmd- ir og kostnað. Þetta kemur fram í umsögn Isavia um þingsályktun- artillögu þess efnis sem lögð hefur verið fram á Alþingi. „Hornafjarðarflugvöllur er ekki búinn nauðsynlegum búnaði í flug- vernd til að taka á móti millilanda- flugfarþegum og ljóst að ráðast þyrfti í breytingar á flugstöð til að koma fyrir búnaði bæði vegna flug- verndar og tollskoðunar. Að auki væri nauðsynlegt að fjölga starfs- mönnum í daglegum rekstri á flug- vellinum,“ segir í umsögninni. Umfangsmiklar framkvæmdir Rakið er að Hornafjarðarflug- völlur hafi eina flugbraut sem sé 1.500 metra löng og 30 metra breið. Slitlag flugbrautarinnar beri ekki stærri flugvélar og breidd hennar gæti verið takmarkandi þáttur. „Því gæti þurft að ráðast í um- fangsmiklar framkvæmdir á flug- braut ef horfa á til mikillar aukn- ingar í umsvifi og breytingar á tegundum flugvéla sem nota völl- inn,“ segir í umsögninni. Jafnframt er bent á að innan- landsflugvellir séu „undirfjár- magnaðir fyrir þau verkefni sem þeir sinna í núverandi kerfi og að uppsöfnuð framkvæmdaþörf er nokkrir milljarðar miðað við óbreytt þjónustustig. Því myndi aukin þjónusta og breytt flugum- ferð kalla á auknar fjárveitingar, bæði fyrir framkvæmdir og þjón- ustu.“ Telja milljarða þörf í framkvæmdir  Millilandaflug á Hornafjörð dýr biti Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugstöð Endurbóta er þörf eigi að vera hægt að sinna millilandaflugi á Hornafirði eins og lagt hefur verið til.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.