Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Merkel kanslari er loks á förum.Fyrir tveimur árum lét hún
kjósa formann í flokknum í sinni
mynd, og gerði ráð fyrir að sú tæki
seint og um síðir við
kanslaraembættinu.
Formannsefniðgekk þó ekki
upp og hvarf gjör-
samlega í skuggann
frá „mömmu Mer-
kel“, sem hún átti að
taka við af.
Þá var ArminLaschet kosinn
og sá lýsir sjálfum
sér sem táknmynd
óbreytanleikans í forystunni.
Efasemdir hafa þó vaknað um aðsá „nýi“ sé vænleg eftirmynd,
þótt hún sé skoðanalega úr sama
móti.
Nýleg könnun, sem gerð var umstuðning við kanslaraefni, gaf
formanni CDU, stóra kristilega
flokksins, Laschet 13% stuðning, en
Markus Söder, foringja þeirra í
CSU í Bæjaralandi, vel yfir 40%.
Söder er sagður fjarri því að verajafn hallur undir ESB og Mer-
kel og dvergarnir 77 í kringum
hana.
Söder sagði nýlega að „fjölmenn-ingarfrasinn“ færi illa í flesta
Þjóðverja! Sumir fréttaskýrendur
fullyrða að Söder sé efasemd-
armaður um ESB, svo að kjör hans
myndi valda titringi í hópi lýðræð-
ishallans í Brussel.
Aðrir benda á að slík viðhorfgætu mildast kæmist Söder
inn fyrir skotheldar dyr kansl-
arahallarinnar í Berlín.
Markus Söder
Illa steyptur í mót?
STAKSTEINAR
Armin Laschet
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Fjögur skip voru í gær að lonuveiðum
undan Breiðamerkursandi, græn-
lensku skipin Polar Amaroq og Tasi-
laq og Finnur Fríði og Nordborg frá
Færeyjum. Loðnan stóð djúpt og litl-
ar fréttir voru af miðunum síðdegis í
gær. Grænlenskum skipum er heimilt
að veiða samtals 9.293 tonn af loðnu í
lögsögunni og færeyskum 6.365 tonn.
Líklegt er að íslensku loðnuskipin
haldi til veiða um eða upp úr helgi.
Um 20 norsk skip hafa undanfarið
verið að loðnuveiðum út af Austfjörð-
um og hafa þau landað afla í Noregi,
Færeyjum og hér á landi. Hátt verð
hefur verið greitt fyrir loðnuna í upp-
hafi vertíðar miðað við það sem áður
hefur verið, eins og fram hefur komið
í Morgunblaðinu. Í farmi sem norskt
fyrirtæki keypti í gær úr einu skip-
anna var meðalverðið 15,33 krónur
norskar fyrir kílóið eða sem nemur
um 230 ísl. kr. Í Fiskaren í Noregi
kemur fram að meðalverð fyrir kíló af
makríl hafi verið 180 krónur undan-
farið, en venjulega sé makrílverðið
mun hærra en greitt sé fyrir loðnu.
Fjöldi norskra skipa, sem samtímis
fá leyfi til að veiða í fiskveiðilandhelgi
Íslands, takmarkast við 30 skip.
Norskum skipum er heimilt að veiða
samtals 41.808 tonn af loðnu, mega
aðeins veiða í nót og ekki sunnan línu,
sem dregin er í austur frá punkti
sunnan Álftafjarðar (64°30’N).
aij@mbl.is
Við veiðar við Breiðamerkursand
Styttist í að íslensk skip byrji veiðar
Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson
Vertíð Grænlenska skipið Polar
Amaroq við Reykjanes 2017.
Aðalmeðferð í máli Jóns Baldvins
Hannibalssonar á hendur Aldísi
Schram, dóttur Jóns, Ríkisútvarpinu
og Sigmari Guðmundssyni, frétta-
manni Ríkisútvarpsins, hófst í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Jón
Baldvin höfðaði málið vegna um-
mæla sem féllu í Morgunútvarpi
Rásar 2 þann 19. janúar 2019, þar
sem Aldís lýsti sifjaspelli af hálfu
föður síns og nauðungarvistun sem
hún segir að Jón hafi farið fram á.
Aldís sagði fyrir dómi í gær að
hún hefði verið nauðungarvistuð á
geðdeild með ólögmætum hætti þar
sem engin gögn væri að finna um að
nauðungarvistun hennar hafi verið
lögð fyrir ráðuneyti eða dómara.
Jafnframt sagði hún að Jón Baldvin
hefði knúið á um nauðungarvistina
vegna þess að hún sakaði hann um
kynferðisbrot.
Vísar ásökunum á bug
Jón Baldvin sagði fyrir dómi að
hann hefði fyrst heyrt af meintu
kynferðisofbeldi í Morgunútvarpinu
á Rás 2. Hann segist ekki hafa tekið
neina ákvörðun um nauðungarvistun
en að hann hafi þó þurft að sam-
þykkja hana vegna mats læknis um
að slíkt væri nauðsynlegt.
Umfjöllunin ekki úr lausu lofti
Sigmar Guðmundsson fréttamað-
ur sagði fyrir dómi að saga Aldísar
um meint sifjaspell og ólögmæta
frelsissviptingu hefði átt erindi við
almenning, sérstaklega vegna þess
að sögur af meintum kynferðis-
brotum Jóns Baldvins hefðu verið
margar. Sigmar sagðist jafnframt
hafa talið það skyldu fjölmiðla gagn-
vart almenningi að skýra frá því að
hinar fjölmörgu ásakanir hefðu kom-
ið fram. ragnhildur@mbl.is
Aðalmeðferð í máli
Jóns Baldvins hafin
Spennuþrungið
andrúmsloft Vísar
ásökunum á bug
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Héraðsdómur Jón Baldvin Hanni-
balsson og Kolfinna dóttir hans.