Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Ýmsir viðburðir
verða haldnir í
tilefni þess að
Dagur íslenska
táknmálsins er í
dag, 11. febrúar.
Flestir verða
þessir viðburðir
fjarfundir. Mál-
nefnd um ís-
lenskt táknmál mun m.a. birta efni
á síðu sinni á Facebook. Meðal þess
er myndband þar sem ýmsir sem
nota táknmál dagsdaglega svara
spurningunni „Af hverju nota ég
táknmál?“ Kosning hefur verið í
gangi um tákn ársins 2020 og verða
úrslitin birt á síðunni í dag. Þá mun
Félag heyrnarlausra birta mynd-
band á heimasíðu sinni, deaf.is.
RÚV mun í dag senda út Krakka-
fréttir og kvöldfréttir túlkaðar á
táknmáli.
Táknmáls Café Lingua verður
haldið nk. laugardag í Borgar-
bókasafninu í Grófinni undir yfir-
skriftinni „Að læra táknmál á tím-
um Covid-19“.
Dagur íslenska
táknmálsins í dag
Landssamband slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna (LSS) hefur
sent velferðarnefnd Alþingis um-
sögn vegna frumvarps til breytinga
á lögum um slysatryggingar al-
mannatrygginga. Þar óskar LSS
m.a. eftir því að krabbamein hjá
slökkviliðsmönnum verði skilgreint
sem atvinnusjúkdómur.
Vísar LSS í rannsóknir sem sýna
að krabbamein sé mun algengara
hjá slökkviliðsmönnum en öðru
vaktavinnufólki. Þeir séu allt að
tvöfalt líklegri til að fá ákveðnar
gerðir krabbameina. Vill LSS að
bótaréttur verði tryggður vegna
slíkra sjúkdóma.
Morgunblaðið/Hari
Bruni Slökkviliðsmenn vinna erfitt starf.
Krabbamein teljist
atvinnusjúkdómur
Ásmundur Einar Daðason félags-
og barnamálaráðherra hefur sett
drög að frumvarpi um breytingar á
barnaverndarlögum í samráðsgátt
stjórnvalda. Helstu breytingar eru
þær að pólitískt skipaðar barna-
verndarnefndir verða lagðar niður.
Í stað barnaverndarnefndar verður
starfrækt barnaverndarþjónusta
og umdæmisráð barnaverndar á
vegum sveitarfélaga.
Lagt er til að barnaverndar-
umdæmi séu almennt ekki fámenn-
ari en 6.000 íbúar, þó geti sveitar-
félög fengið undanþágu frá reglum
um lágmarksíbúafjölda.
Engar pólitískar
barnaverndarnefndir
Þrjátíu ár eru liðin í dag, 11. febr-
úar, frá því að Ísland viðurkenndi
formlegt sjálfstæði Litháens, fyrst
ríkja heims. Af því tilefni hafa
Litháar búsettir á Íslandi útbúið
myndband með 30 kveðjum til að
þakka fyrir stuðning Íslands. Slóð á
myndbandið er eftirfarandi:
https://youtu.be/Iyr0kXbfPqs.
Í dag búa um 3.500 Litháar hér á
landi, segir í fréttatilkynningu.
Takk Skjáskot af myndbandi Litháa.
30 ár frá stuðningi
við sjálfstæði Litháa
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Verðhrun á
útsöluvörum
Ný prjónavesti
kr. 5.900.-
Str. S-XXL – 3 litir
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi - Vorið 2021 er framundan
Skipholti 29b • S. 551 4422
TRAUST
Í 80 ÁR
FISLÉTTIR VATTJAKKAR,
MARGIR LITIR,
Skoðið laxdal.is
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝ
SENDING
Gallabuxur: 24.980
Skyrta: 19.980
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is