Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Heimir Bergmann
Löggiltur fasteigna- og
skipasali og löggiltur
leigumiðlari.
Sími 630 9000
heimir@logheimili.is
Kristín
Skjaldardóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími 824 4031
kristin@logheimili.is
Ásgeir þór
Ásgeirsson
Löggiltur fasteignasali og
lögfræðingur
Sími 772 0102
asgeir@logheimili.is
Guðmundur Ólafs
Kristjánsson
Löggiltur fasteigna-
og skipasali
Sími 847 0306
gudmundur@logheimili.is
Unnur Alexandra
Nemi til löggildingar
fasteignasala og
viðskiptalögfræðingur
Sími 788 8438
unnur@logheimili.is
Sólrún Aspar
Hefur lokið námi til
fasteignasala.
Sími 862 2531
solrun@logheimili.is
Jónas H. Jónasson
Nemi til löggildingar
fasteignasala
Sími 842 1520
jonas@logheimili.is
Skipholti 50d, 105 Reykjavík
Skólabraut 26, 300 Akranesi
530 9000 • www.logheimili.is
Ertu í sölu-
hugleiðingum?
Getum bætt
við eignum á
söluskrá
Fagmennska og traust
í meira en áratug
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hvergi á landinu er betra aðbúa en í Vestmanna-eyjum, á Akureyri og íEyjafjarðarsveit. Þetta
má lesa úr niðurstöðum viðhorfs-
könnunar sem gerð var í haust á veg-
um landshlutasamtaka sveitarfélaga
og Byggðastofnunar, þar sem fengið
var álit um 10.300 manns. Spurt var
um 40 atriði; svo sem friðsæld, loft-
gæði, skólamál, atvinnuöryggi og
launatekjur, húsnæðismál, netteng-
ingar, vegakerfi, vöruverð, þjónustu
við fatlaða og aldraða, rafmagn,
ásýnd bæja og sveita og almennings-
samgöngur.
Skólabærinn skorar hátt
Dalamenn virðast ósáttir við að-
stæður í sinni heimabyggð. Í sam-
anburði við önnur svæði eru þar fá
tækifæri til íþróttaiðkunar, farsíma-
samband er götótt og sömuleiðis
þjónusta við fatlaða, vegamál og um-
ferðaröryggi. Þessi viðhorf eru sam-
tóna því sem gerist á sunnanverðum
Vestfjörðum. Í Dölunum kvartar fólk
svo yfir háu vöruverð, en eins og
sagði frá í Morgunblaðinu sl. sumar
telja þeir prísana í verslun Samkaupa
í Búðardal hafa hækkað úr hófi.
Raunar eru verslunarmálin stór
áhrifaþáttur og afgerandi þáttur í því
hvernig fólki líkar í sinni sveit og víða
í dreifbýlinu fá þeir þættir fall-
einkunn.
Þótt íbúar í Vestmannaeyjum, á
Akureyri og í Eyjafjarðardölum
mælist með hæsta heildarstigagjöf í
könnuninni er mismunandi hvaða
þætti þeir eru ánægðir með. Í sam-
anburði við önnur svæði gefa Vest-
mannaeyingar t.d. mannlífi, skipu-
lagsmálum, umferð, íbúðaframboði
og framfærslu góða einkunn. Ak-
ureyringar eru jákvæðir gagnvart til
að mynda skólamálum, menningu og
umhverfismálum. Skólabærinn skor-
ar.
Á landsvísu eru Grindvíkingar,
skv. könnuninni nýju, jákvæðastir
allra gagnvart sínu sveitarfélagi þótt
þeim þyki betur mega gera til dæmis
í heilsugæslumálum. Hve Grindvík-
ingar eru sáttir við sitt þarf kannski
ekki að koma á óvart. Fyrir tveimur
árum var gerð könnun á vegum emb-
ættis landlæknis þar sem spurt var
um hamingju, heilsu og vellíðan. Þar
kom fram að 73% Grindvíkinga segj-
ast vera hamingjusöm, 24% hvorki né
og 3% eru beinlínis þjökuð af óham-
ingju.
Sólskinsblettir í heiði
Stærsti hópur þátttakenda í
könnuninni nú mat hamingju sína 8 á
skalanum 1-10. Eyjamenn og íbúar í
Snæfellsbæ reyndust hamingjusam-
astir allra. Fólk á höfuðborgarsvæð-
inu og í Reykjanesbæ reyndist mark-
tækt óhamingjusamara en aðrir sem
spurðir voru – þótt bæði í borginni og
suður með sjó megi líka í viðhorfum
íbúa sjá sólskinsblett í heiði.
Íbúakönnun 2020
Afstaða íbúa eftir landshlutum til alls 40 búsetuskilyrða
s.s. skóla, heilsugæslu, atvinnumála, samgangna, umhverfis,
húsnæðismála, þjónustu, skipulagsmála o.fl.
Vestmannaeyjabær
Akureyri
Eyjafjörður
Akranes og Hvalfjörður
Höfuðborgarsvæðið
Snæfellsnes
Grindavíkurbær
V-Húnavatnssýsla
Skagafjarðarsýsla
N-Vestfirðir
Rangárvallasýsla
Árnessýsla
Þingeyjarsýsla
Hérað og N-Múlasýsla
Suðurnesjabær
Reykjanesbær
Fjarðabyggð og Suðurfirðir
Skaftafellssýslur
Borgarfjarðarsvæði
A-Húnavatnssýsla
Sveitarfélagið Vogar
Strandir og Reykhólar
Dalir
S-Vestfirðir
753
749
653
621
614
614
591
578
565
564
536
516
496
462
436
429
48
405
401
397
372
331
255
253
Hamingja
Íbúar Vestmannaeyjabæjar og Snæfells-
ness voru marktækt ham-
ingjusamastir í könnuninni
Íbúar Reykjanesbæjar og
höfuðborgarsvæðisins
marktækt óhamingju-
samastir
Lítill munur var á svörun á milli
landshluta
Viðhorf til sveitarfélagsins
Íbúar Grindavíkurbæjar voru
ánægðastir með sveitarfélagið sitt, því næst íbúar
Vestmannaeyja og síðan Suðurnesjabæjar
Íbúar Dalanna voru óánægðastir með sveitarfélagið sitt,
því næst íbúar Fjarðabyggðar og Suðurfjarða og síðan
Borgarfjarðarsvæðis
Lítill munur var á svörun á milli landshluta
Samanlögð stig í öllum búsetuskilyrðum (einföld raðtölueinkunn)
D
e
ig
la
–
r
it
a
tv
in
n
u
þ
ró
u
n
a
rf
é
la
g
a
n
n
a
,
B
yg
g
ð
a
st
o
fn
u
n
a
r
o
g
la
n
d
sh
lu
ta
sa
m
ta
ka
n
n
a
,
Íb
ú
a
k
ö
n
n
u
n
2
0
2
0
: Í
b
ú
a
r
o
g
m
ik
ilv
æ
g
i
b
ú
se
tu
sk
ily
rð
a
, J
ja
n
ú
a
r
2
0
2
1
Hamingjan er fundin
Í Vestmannaeyjum og
Snæfellsbæ búa lukk-
unnar pamfílar sýnir ný
könnun. Eyjar, Akureyri
og Eyjafjarðarsveit þykja
vera best til búsetu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyri Bæjarbúar eru sáttir við sitt samkvæmt búsetukönnuninni, þá
til dæmis starf menntastofnana enda er Akureyri réttnefndur skólabær.
„Dreifbýli hér á Eyjafjarðarsvæðinu nýtur nálægðar við Akureyri þar sem býðst
öll sú þjónusta sem nútímasamfélag kallar eftir. Þar nefni ég menningarstarf,
skóla á öllum stigum og örugga heilbrigðisþjónustu,“ segir Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson, fv. alþingismaður og nú ferðaþjónustubóndi á Öngulsstöðum í Eyja-
fjarðarsveit. „Að búa í sveitinni felur svo í sér frelsi, friðsæld, öryggi, heilnæmt
umhverfi auk þess sem hér í sveit eru góðir skólar og öflug félagsleg þjónusta.
Þetta eru allt þættir sem vógu þungt í afstöðu fólks í búsetukönnuninni.“
Eyjafjarðarsveit er byggðirnar sunnan Akureyrar; rótgróið landbúnaðarsvæði
þar sem ferðaþjónustan kemur æ sterkar inn. Íbúar eru um 1.100 og ágætt jafn-
vægi er í flestu í sveitinni. „Kannski hafa Eyfirðingar til að bera eðlislæga hóg-
værð og nægjusemi, hún kann að ráða nokkru um hve íbúar hér eru sáttir við
sitt. Að félagslegt öryggi sé til staðar og efnamunur fólks hóflegur veit á gott.
Könnunin sýnir líka að höfuðborgarsvæðið er ekki endilega sú paradís eða sælu-
staður sem margir vilja vera láta. Dreifbýlið kemur sterkt út á ýmsum sviðum,
sem kemur mér ekki á óvart.“
Höfuðborgin er ekki paradís
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eyfirðingur Að félagslegt öryggi sé til staðar veit á gott, segir Jóhannes Geir.
Hógværð og nægjusemi meðal Eyfirðinga
Verslunarmál og hátt vöruverð brenna á Dalafólki og Halla
Sigríður Steinólfsdóttir, bóndi í Ytri-Fagradal á Fellsströnd,
kannast við málið. „Samkaupsbúðinni í Búðardal var breytt
úr kjörbúð í krambúð og vöruverðið hækkað verulega. Íbúar
eru ósáttir og sækja nauðsynjar núna í vaxandi mæli í Bónus,
til dæmis í Stykkishólmi eða Borgarnesi. Héðan frá mínum
bæ eru 50 kílómetrar hvort sem ég fer á Reykhóla, Hólmavík
eða í Búðardal og því er langt að sækja alla þjónustu, en ég
segist sama búa í nafna alheimsins,“ segir Halla.
„Hér í Dalabyggð er góður grunnskóli, heilsugæslustöð og
margvísleg önnur ómissandi starfsemi í Búðardal. Ég vænti
þess líka að við fáum eitthvað gott og betri þjónustu með
sameiningu sveitarfélaga, sama í hvaða átt við Dalamenn tengjum okkur. Við eig-
um góða granna og möguleikarnir sem við höfum um sameiningu eru nokkrir.
Stóra málið er að fram undan eru mikilvæg og spennandi verkefni sem gera lífið
betra,“ segir Halla Sigríður.
Spennandi að gera lífið betra
Halla
Steinólfsdóttir
Fellsströndin er nafli alheimsins
„Að íbúar í Snæfellsbæ séu þeir hamingjusömustu á land-
inu er ánægjuleg niðurstaða og staðfestir að hér sé staðið
rétt að málum,“ segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri.
„Góðir skólar, hreinlegt umhverfi, möguleikar til útivist-
ar, öflugt íþróttalíf og menningarstarf. Þetta eru atriði sem
við vitum að íbúar vilja hafa í lagi. Ráða miklu um hvernig
þeim líður og líkar við sitt nærumhverfi. Mér hefur á síð-
ustu árum orðið æ betur ljóst hvað menningin er stór
áhrifaþáttur í því að fólk finni sig; svo sem að afþeying sé í
boði, veitingastaðir og öflugt félagsstarf svo sem Lions,
kvenfélag eða annað slíkt. Allt þetta styður sveitarfélagið
vel við og telur mikilvægt. Undirstaða þessa alls er síðan sú
að atvinnulífið sé í lagi. Ferðaþjónustan er að vísu í biðstöðu sem stendur og
svo sjávarútvegurinn; sem skapar háar tekjur og skatttekjur sem streyma út í
allt hagkerfið hér í bæ.“
Menningin er stór áhrifaþáttur
Kristinn
Jónasson
Hamingjan ráðandi í Snæfellsbænum