Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sundabrautin er enn og aftur komin
á dagskrá eftir að starfshópur sam-
gönguráðherra skilaði skýrslu sinni
til ráðherrans í síðustu viku. Það
hefur legið fyrir frá upphafi að mik-
ilvægasta útfærla brautarinnar væri
þverun Kleppsvíkur. Brú eða jarð-
göng, það var stóra spurningin.
Og nú liggur niðurstaða starfs-
hópsins fyrir. Sundabrú er hag-
kvæmari kostur en Sundagöng.
Og Sigurður Ingi Jóhannsson
samgönguráðherra er afdráttarlaus
eftir útkomu skýrslunnar: Sundabrú
er sá kostur sem unnið verður með
héðan í frá. Hann vill að undirbún-
ingur hefjist þegar í stað. Tíminn er
dýrmætur því það getur tekið allt að
10 ár frá því ákvörðun er tekin þar
til umferð verður hleypt á Sunda-
braut, sem mun ná frá Sundahöfn
upp í Kollafjörð.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir í viðtali við mbl.is að næstu
skref séu að fara vel yfir málið og
svara þeim spurningum sem upp
muni koma. Samráð þurfi að eiga sér
stað, sérstaklega við fólkið sem býr
nálægt Sundabraut og muni verða
fyrir mestum áhrifum. Sæbrautar-
megin verða þrjú fjölbýlishús við
Kleppsveg í mestri nánd. Gufunes-
megin verður byggðin í Gufunesi,
vestan Sundabrautar, í mestri nánd
en austanmegin hús í Hamra-,
Rima- og Borgahverfum.
Og borgarstjóri bætir við að ræða
þurfi við íbúasamtök Grafarvogs og
Laugardals. Áhrifin verða umtals-
verð, bæði á framkvæmdatíma og
eftir að framkvæmdum lýkur. Eftir
er að meta hve mikið umferðin af
Sundabraut muni dreifast inn í ná-
læg íbúðahverfi, t.d. Heima- og
Vogahverfi.
Í fyrri tillögum var gert ráð fyrir
lágbrú (átta metrar yfir sjávarmáli)
frá Gufunesi yfir Kleppsvíkina. Brú-
in myndi taka land á hafnarsvæði
Sundahafnar og vegurinn myndi síð-
an liggja milli Kleppsspítala og
Holtagarða upp á Sæbraut. Þessi út-
færsla hefði haft í för með sér mikla
röskun á starfsemi skipafélaganna,
fyrst og fremst Samskipa, og því
löguðust Faxaflóahafnir gegn henni.
Starfshópurinn, sem skilaði
skýrslu í síðustu viku, fól Eflu verk-
fræðistofu að yfirfara eldri tillögur
að Sundabrú og koma með tillögur
að nýrri brú til móts við Holtaveg.
Nú er gerð tillaga að 1.172 metra
langri brú í 14 höfum. Um helmingur
brúarinnar er yfir Kleppsvík en
helmingur á landi að vestanverðu.
Brúin rís í um 35 metra hæð yfir haf-
flötinn og siglingahæð er áætluð um
30 metrar með um 100 metra breiðri
siglingarennu. Haflengd brúar er
um 130 metrar í siglingarennunni
þar sem tekið er tillit til nauðsyn-
legra öryggisfjarlægða. Sundabrú
endar í um 130 metra fjarlægð frá
Sæbraut og verður langhalli ein-
ungis 2-3% að vestanverðu með lág-
markshæð á farmsvæði Sundahafn-
ar í kringum 20 metra. Mögulegt er
að stytta brúna um 140 metra með
því að auka langhalla í hámark, sem
er 5%. Það myndi þýða að umferð á
Skútuvogi og Barkarvogi kæmist
ekki undir brúna ásamt því að hæð á
farmsvæði yrði minni. Gufunes-
megin er gert ráð fyrir að Sundabrú
mæti landi á stuttri landfyllingu.
Gera þarf ráð fyrir árekstrarvörnum
við stöpla brúarinnar næst siglinga-
rennunni, áhættumeta og setja sér-
stakar reglur um siglingar undir
brú. Gert er ráð fyrir göngu- og
hjólaleið í austurkanti á brúnni.
Æskileg breidd göngu- og hjóla-
leiðar er talin vera 5,7 metrar en lág-
marksbreidd er eitthvað minni. Gert
er ráð fyrir fjórum akreinum á
brúnni, sem hver verður 3,5 metrar
á breidd.
Með aðskilnaði akstursstefna, ör-
yggisfjarlægðum og 5,7 metra
göngu- og hjólastíg er heildarbreidd
brúarinnar áætluð 26 metrar.
Sæbrautin mögulega í stokk
Í skýrslunni er gert ráð fyrir að
Sundabraut á brú yfir Kleppsvík
tengist Sæbraut inn á núverandi
gatnamót Holtavegar og Sæbrautar.
Í fyrsta áfanga sé mögulegt að
tengja Sundabraut inn í núverandi
gatnamót Sæbrautar og Holtavegar
en á síðari stigum sé mögulegt að
Sæbraut verði lögð í stokk gegnum
gatnamótin og að Sundabraut teng-
ist með hálfmislægum gatnamótum
við Sæbraut.
Nú þegar er mikil bílaumferð um
Sæbraut og langar bílaraðir geta
myndast á háannatíma. Hvernig
verður álagið á gatnamótin Holta-
vegur/Sæbraut þegar umferðin um
Sundabraut bætist við? Samkvæmt
umferðarspám munu 32 þúsund öku-
tæki aka Sundabraut yfir Kleppsvík
2030 og 47 þúsund ökutæki 2050.
Holtavegur er mikilvæg aðkoma
að Holtagörðum, Skútuvogi og
Barkarvogi. Gert er ráð fyrir að
hægt sé að aka undir Sundabrú vest-
an gatnamóta við Skútuvog og
tengja þannig svæðin austan Sæ-
brautar
Sundabraut á brú lokar tengingu
Holtavegar austan Sæbrautar við
Sæbraut. Þar með er lokað fyrir
beinan aðgang athafnasvæðis Sam-
skipa og Holtagarða við Sæbraut og
einnig fyrir tengingar gatna bæði til
suðurs (Skútuvogur og Barkar-
vogur) og norðurs (Vatnagarðar). Til
að vega upp á móti þessari lokun er,
í samræmi við eldri hugmyndir
Faxaflóahafna, lögð til ný hafnar-
tenging norðan við Holtagarða með
nýjum gatnamótum við Sæbraut og
Vatnagarða. Þá leggst af núverandi
tenging við Sæbraut.
Morgunblaðið/sisi
Gatnamótin mikilvægu Um þessi gatnamót mun umferð um Sundabraut fara. Myndin er tekin frá Holtavegi í áttina að Sundahöfn. Nú þegar er þung umferð á Sæbrautinni á háannatímum.
Hlustað eftir sjónarmiðum íbúa
Sæbraut/Holtavegur Umferð um Sundabraut fer um þessi gatnamót. Síð-
ar verður Sæbraut lögð í stokk. Gula svæðið sýnir hve langt Sundabrú nær.
Myndir/Úr skýrslu
Gufunes Sundabraut mun tengjast Hallsvegi í Gufunesi. Á myndinni eru
sýnd mislæg gatnamót en mögulegt er að bíða með byggingu þeirra.
Sundabrú er sá kostur sem unnið verður með héðan í frá, segir ráðherra Samráð þarf að eiga
við fólkið sem býr nálægt Sundabrautinni og mun verða fyrir mestum áhrifum, segir borgarstjóri
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
VALENTÍNUSAR-
DAGURINN
Glas af J.P. Chenet freyðivíni fylgir
með öllum samsettum matseðlum
á valentínusardaginn
www.matarkjallarinn.is
Á MATARKJALLARANUM