Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is 2012 2020 HJÁ OKKUR FÁST VARAHLUTIR Í AMERÍSKA BÍLA Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali, leigumiðlari og viðskiptafræðingur BERG Fasteignasala | Háholt 14 | Mosfellsbæ Sími 588 5530 | berg@berg.is | berg.is ATVINNUHÚSNÆÐI SKRIFSTOFUR – IÐNAÐARBIL Hafðu samband við okkur og við aðstoðum og finnum rétta aðilann fyrir þig eða réttu eignina. Þarftu að selja, kaupa, leigja út eða taka á leigu? Norðurhella 8 til sölu eða leigu 321,5 til 1798,1 fm Sími 766 6633 Viðarhöfði 1 til leigu 391,8 fm BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Íbúar á suðvesturhorninu hafa síð- ustu mánuði orðið varir við flokk matarvagna sem fer frá einu hverfi til annars og býður upp á fjöl- breyttan mat, beint úr bílnum. Birgir Rúnar Halldórsson, eig- andi matarvagnsins The Wingman og forsvarsmaður Félags íslenskra matarvagna, segist hafa selt tug- þúsundir kjúklingavængja síðan starfsemin hófst í upphafi kórónu- veirufaraldursins í fyrra. Stofnað í annarri bylgjunni Hann segir í samtali við Morg- unblaðið að félagið hafi verið stofn- að í annarri bylgju faraldursins, í ágúst í fyrra. „Ég ásamt þremur vinum mínum byrjaði upphaflega með Wingman í vagni sem við drógum á eftir okkur árið 2017 en skiptum svo yfir í sérstakan bíl í upphafi síðasta árs. Þegar farald- urinn byrjaði flakkaði ég ásamt nokkrum öðrum um hverfin, en síð- an varð hlé á því þegar losnaði um hömlur í samfélaginu síðasta sum- ar,“ segir Birgir, en fyrsta tilraun hans til að selja úr bílnum var á leikskólaplani í Hafnarfirði í mars, þegar Birgir gerði sér lítið fyrir og seldi upp alla vængina sem í boði voru, rúmlega eitt þúsund stykki. „Ég átti ekki von á miklu, en það var dýrvitlaust að gera.“ Bíllinn klár á fimmtán mínútum Birgir segir að einfalt sé að und- irbúa vagninn fyrir sölu fyrstu mat- arbitanna. „Það tekur um fimmtán mínútur að undirbúa áður en mað- ur byrjar að elda, sem er stór breyting frá því að vera með vagn- inn.“ Vagninn sem Birgir og félagar ráku áður en bíllinn kom til sög- unnar var fluttur inn frá Kína og hafði nokkra agnúa sem hægt var að bæta úr þegar félagarnir ákváðu að færa starfsemina yfir í bíl. Auk þess að ferðast um íbúða- hverfin hefur Félag íslenskra mat- arvagna leitast við að bjóða þjón- ustu sína þar sem fólk safnast saman, eins og á tónlistarhátíðum og menningarviðburðum. „Það hef- ur sýnt sig að það er meiri sala hjá okkur í hverfum þar sem er lítil þjónusta til staðar fyrir,“ útskýrir Birgir. Auk þess að þjónusta höfuðborg- arsvæðið hafa vagnarnir heimsótt Akranes og Selfoss. Birgir segir að þjónustunni sé yfirleitt vel tekið úti á landi. Vagnarnir í félaginu eru Lobster- Hut, The Wingman – Street Food og Vöffluvagninn. „Vonandi bætast enn fleiri vagnar í hópinn síðar.“ Skemmtileg stemmning Markaðsstarf félagsins fer eink- um fram í hverfahópum á Facebook og á Instagram að sögn Birgis. Hann segir að mikil stemmning myndist í kringum vagnana. „Við bjóðum ekki upp á borð og stóla og reiðum okkur eingöngu á að fólk sæki matinn. Fólki finnst skemmti- leg tilbreyting að fá sér smá göngu- túr og sækja mat til að borða heima.“ Vængir í tugþúsundavís Kjúlli Birgir Rúnar við nýja Wingman-bílinn þar sem vængirnir fljúga út.  Félag íslenskra matarvagna stofnað í fyrra Góð sala í hverfum með litla þjónustu  Yfirleitt vel tekið úti á landi Veitingar » Í Félagi íslenskra mat- arvagna eru Lobster-Hut, The Wingman – Street Food og Vöffluvagninn. » Vagnarnir ferðast um íbúða- hverfi og mannamót. » Wingman hóf starfsemi í vagni árið 2017. ● Íslandshótel hafa hlotið Mennta- verðlaun atvinnulífsins árið 2021 fyrir stefnumiðaða og markvissa vinnu í fræðslu- og menntamálum starfs- manna. Verðlaunin veitti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og veittu for- svarsmenn fyrirtækisins þeim viðtöku. Er þetta í áttunda sinn sem verðlaunin eru veitt á Menntadegi atvinnulífsins. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir útnefn- ingu Íslandshótela er bent á að félagið hefur á markvissan hátt tengt saman uppbyggingu á fræðslu og þjálfun starfsfólksins við heildarstefnumótun sína. Íslandshótel hreppa Menntaverðlaunin 11. febrúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.32 Sterlingspund 175.46 Kanadadalur 99.97 Dönsk króna 20.721 Norsk króna 15.018 Sænsk króna 15.249 Svissn. franki 142.47 Japanskt jen 1.2173 SDR 183.45 Evra 154.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.6279 Hrávöruverð Gull 1846.55 ($/únsa) Ál 2025.5 ($/tonn) LME Hráolía 60.8 ($/fatið) Brent Arðsemi eigin fjár Arion banka var 11,8 prósent á fjórða ársfjórðungi þessa árs og 6,5 prósent á árinu 2020. Þetta kemur fram í uppgjöri bank- ans sem birt var í gær. Afkoma Arion banka á fjórða árs- fjórðungi var 5.761 milljón króna, sem er mun betri afkoma en á sama tímabili í fyrra. Afkoman á árinu í heild var 12.469 milljónir króna. Afkoma Arion banka af áfram- haldandi starfsemi var 8.110 milljón- ir króna á fjórða ársfjórðungi og 16.747 milljónir króna á árinu. Alls námu heildareignir um 1.173 milljörðum króna í árslok, til sam- anburðar við 1.082 milljarða króna á sama tíma árið áður. Eigið fé var jafn- framt 198 millj- arðar króna og jókst þannig um átta milljarða króna milli ára. Bankinn stefnir nú á að kaupa eig- in bréf að andvirði 15 milljarða króna. Hátt í 12% arðsemi á fjórða ársfjórðungi Benedikt Gíslason Hagnaður Íslandsbanka á síðasta fjórðungi 2020 nam rúmum 3,5 millj- örðum króna og jókst um 112% milli ára, en hann var tæplega 1,7 ma.kr. á sama fjórðungi árið 2019. Hagnaður ársins 2020 í heild nam tæpum 6,8 milljörðum. Það er 20% samdráttur milli ára, en árið 2019 hagnaðist Ís- landsbanki um tæplega 8,5 ma.kr. Eignir námu í lok tímabilsins 1.344 milljörðum og jukust um rúm- lega 1% milli ára. Eigið fé bankans nemur nú rúmum 186 milljörðum króna og jókst um rúm 2% milli ára. Eiginfjárhlutfall er 23%. Í tilkynningu segir Birna Ein- arsdóttir banka- stjóri að sterk fjárhagsstaða bankans og að- stæður á mörkuð- um sýni að tíma- setningin til að hefja undirbún- ing að skráningu á hlutabréfamark- að sé góð. Hagnaður Íslandsbanka 3,5 ma. á síðasta fjórðungi Birna Einarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.