Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 38

Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 38
38 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 Dömu ALPENROSE 2 MID GORE-TEX® Kr. 30.990.- Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Um þessar mundir er þess minnst að um tíu ár eru liðin frá því að borgara- styrjöld hófst í Líbíu, sem endaði með því að einræðisherranum Móammar Gaddafí var steypt af stóli og hann tekinn af lífi. Tíu árum síðar er landið enn í viðjum átaka og upplausnar, og almenningur líður skort þrátt fyrir að landið búi yfir auðugum olíulindum. Sameinuðu þjóðirnar standa nú að friðarferli milli hinna viðurkenndu stjórnvalda, sem ráða yfir höfuðborg- inni Trípólí í vesturhluta landsins, og stríðsherrans Khalifa Haftar, sem ræður yfir meginhluta landsins frá höfuðbóli sínu í borginni Benghazi. Hinar stríðandi fylkingar samþykktu með sér vopnahlé í október, og var ný bráðabirgðaríkisstjórn mynduð á föstudaginn fyrir helgi og falið að undirbúa jarðveginn fyrir kosningar hinn 24. desember nk. En enn er langt í land áður en frið- ur næst, og segja sérfræðingar í mál- efnum Líbíu að öflin sem standi að hinni nýju þjóðstjórn séu einkum sammála um að vera ósammála. Vill erlend öfl úr landi Eitt af því sem flækir stöðuna er að báðar fylkingar hafa notið mikils stuðnings erlendra ríkja, og þykir óvíst að friður geti náðst án stuðnings þeirra. Tyrkir hafa þannig sent stjórnvöldum í Trípólí mikinn liðs- auka, sem forðaði borginni meðal annars frá því að falla í umsátri her- sveita Haftars, sem staðið hafði í rúmt ár. Stjórnvöld í Katar hafa síðan sett sín lóð á vogarskálarnar í formi fjárhagslegs stuðnings við Trípólí-stjórnina. Haftar nýtur svo stuðnings frá ná- grönnum sínum í Egyptalandi, en auk þeirra hafa Rússar og Sameinuðu arabísku furstadæmin einnig stutt við bakið á honum. Bandaríkjastjórn skoraði nýverið á öll erlend ríki að draga hermenn á sínum vegum frá Líbíu, en það er hluti af skilmálum vopnahlésins í október. Engu að síður eru enn um 20.000 málaliðar og erlendir víga- menn í landinu, meira en þremur vik- um eftir að tímafrestur þeirra til þess að yfirgefa Líbíu rann út. En þó að friður náist er mikið verk enn óunnið við endurreisn landsins. Heilbrigðiskerfið er í molum, og heimsfaraldurinn hefur einungis auk- ið á örbirgð og vosbúð landsmanna. Olíuiðnaðurinn, sem eitt sinn borg- aði fyrir ríkulegt velferðarkerfi Gaddafís er nú ekki svipur hjá sjón, og innviðir framleiðslunnar eru orðn- ir fúnir. Þá er enn ógetið hvernig upplausn- in ýtti undir flóttamannavanda á Mið- jarðarhafi, en tugþúsundir hafa reynt að fara yfir það og yfir til ríkja Evr- ópusambandsins. Ferðalagið er hættulegt og flóttamennirnir vanbún- ir, og fjölmargir hafa týnt lífi. Þó að enginn sakni Gaddafís og harðstjórnar hans hefur leitin að end- anlegum friði eftir valdatíð hans því ekki enn skilað þeim árangri sem vonast var eftir. AFP Uppreisn Líbía hefur glímt við mikla erfiðleika frá því einræðisherranum Gaddafí var steypt af stóli. Áratugur upplausnar  Tíu ár liðin frá upphafi borgarastyrjaldarinnar sem felldi Gaddafí  Friðarferli farið af stað  Erfitt að sætta stríðandi fylkingar  Stefnt að kosningum í árslok Joe Biden Bandaríkjaforseti krafð- ist þess í gærkvöldi að herforingja- stjórnin í Búrma sleppti Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarflokksins NLD, úr stofufangelsi sínum ásamt öllum öðrum samviskuföngum sem nú séu í haldi hersins eftir valdarán- ið í síðustu viku. Tilkynnti Biden jafnframt að Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að frysta allar eigur herforingjanna og um leið beita þá, fyrirtæki sem tengjast þeim og nánum ættingjum refsiaðgerðum vegna valdaránsins. Gert er ráð fyrir að fleiri ríki muni fylgja í fótspor Bandaríkj- anna, en Josep Borrell, utanríkis- málastjóri Evrópusambandsins, hafði áður kallað eftir refsiaðgerð- um gegn þröngum hópi helstu her- foringjanna til þess að beita þá þrýstingi. Fyrr um daginn höfðu þúsundir manna flykkst út á götur helstu borga landsins, sem einnig er þekkt sem Mjanmar, til þess að mótmæla herforingjastjórninni. Var það fimmti dagurinn í röð sem valdaráni hersins var mótmælt, og kröfðust mótmælendur sérstaklega að Aung San Suu Kyi yrði sleppt úr haldi. Lögreglan í höfuðborginni Nay- pyidaw brást við mótmælunum í fyrrinótt með því að beita skotvopn- um. Særðust tveir mótmælendur al- varlega í kjölfarið, þar á meðal kona sem fékk skot í höfuðið. Settu mót- mælendur myndir af konunni þar sem hún lá í blóði sínu á borða og skilti til þess að mótmæla ofbeldi hersins, en auk þess hefur mynd- unum verið deilt á samfélagsmiðlum landsins og vakið þar upp mikla reiði. Frysta eignir herforingjanna  Biden krefst að Suu Kyi verði sleppt AFP Mótmæli Valdaráninu var mótmælt í Jangon fimmta daginn í röð. Öldungadeild Bandaríkjanna sam- þykkti í gær með 56 atkvæðum gegn 44 að málaferli fulltrúadeildarinnar gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, stæðust stjórn- arskrá landsins, jafnvel þótt Trump sé ekki lengur í embætti. Komst deildin að þeirri niðurstöðu þrátt fyrir mótbárur verjendateymis Trumps, en Jamie Raskin, helsti sækjandi fulltrúadeildarinnar, sagði að engin „janúar-undanþága“ væri í stjórnarskránni, og að ekki væri hægt að setja það fordæmi að forseti gæti komist upp með brot gegn stjórnarskránni, svo fremi að þau séu framin í janúar síðasta ár hans í embætti. Verjendateymið gagnrýnt Atkvæði féllu á svipaðan veg og fyrri atkvæðagreiðsla, en þá völdu fimm repúblikanar að greiða at- kvæði ásamt 50 demókrötum um að vísa ekki málinu frá. Einn repúblikani, Bill Cassidy frá Louisiana snerist hins vegar á sveif með þeim 55 þegar gengið var til at- kvæða um málið nú, en Cassidy sagði að málatilbúnaður verjenda Trumps hefði verið ruglingslegur og ekki snúið að efninu, hvort lögmætt væri að draga forseta fyrir dóm eftir að valdatíð hans lyki. Hermdu heimildir bandarískra fjölmiðla að Trump væri ósáttur við frammistöðu verjenda sinna, en þeir tóku við starfinu viku fyrir rétt- arhöldin eftir að fyrra verjenda- teymi hans sagði af sér í heild. AFP Málaferli Sækjendur demókrata úr fulltrúadeildinni halda yfir í þingsal öldungadeildarinnar í fyrradag. Málaferlin standist stjórnarskrá  Engin „janúar- undanþága“ fyrir brot Móammar Gaddafí, sem réð yfir Líbíu með harðri hendi í 42 ár, var að lokum handsamaður 20. októ- ber 2011 og tekinn samdægurs af lífi. Þrír af sjö sonum hans týndu sömuleiðis lífi í borgarastríðinu það ár, en aðrir fjölskyldumeðlimir hans náðu að flýja land. Eiginkona Gaddafís, Safíya, Mohammed, elsti son- ur hans, og Aisha dóttir hans flúðu öll til Alsírs þegar Trípólí féll í hendur uppreisnarmanna. Þaðan fóru þau í útlegð til Ómans, þar sem þau fengu hæli með þeim skilyrðum að þau tækju engan þátt í stjórnmálum. Aisha, sem er lögfræðingur, hafði áður verið meðal verjenda íraska einræðisherrans Saddams Husseins í rétt- arhöldunum yfir honum í Írak. Einn af sonum Gaddafís, Seif al-Islam Gaddafí, sem einræðisherrann hafði útnefnt sem eftirmann sinn, er hins vegar í felum, en hann er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi hjá Alþjóðaglæpadómstólnum. Talið er að Seif al-Islam sé enn í Líbíu, en síðast spurðist til hans árið 2014 í bænum Zintan í vesturhluta landsins. Ekki vitað um „erfingjann“ ÖRLÖG GADDAFÍ-ÆTTARINNAR Móammar Gaddafí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.