Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Loksins Vegfarendur um Sæbraut og aðrir íbúar höfuðborgarsvæðisins fögnuðu snjónum sem blasti við í gærmorgun. Snjór hefur verið sjaldséður sunnanlands í vetur, mörgum til ama.
Kristinn Magnússon
Við sjáum merki
þess að heimsfarald-
urinn hafi magnað upp
aðrar áskoranir á al-
þjóðavettvangi, að
friðarhorfur versni og
að þróunar- og mann-
úðarmálum fari hrak-
andi. Það kallar á meiri
alþjóðasamvinnu, ekki
minni. Baráttan við
kórónuveiruna vinnst
svo endanlega með þró-
un og dreifingu bóluefnis um víða
veröld, því enginn er óhultur fyrr en
allir eru óhultir. Veiran virðir engin
landamæri og eina leiðin til að
stemma stigu við útbreiðslu hennar
er að ríki heims vinni saman að sótt-
vörnum en standi um leið vörð um ut-
anríkisviðskipti og vöruflutninga.
Það hefur að mestu tekist sem er alls
ekki sjálfgefið.
Við þessar aðstæður er mikilvægt
að hafa trausta fótfestu. Það höfum
við Íslendingar með aðild að al-
þjóðastofnunum og -samningum, en
ekki síður í gegnum
virkt svæðasamstarf og
tvíhliða samskipti við
önnur ríki. Norrænt
samstarf og samvinna
Norðurlanda og
Eystrasaltsríkja (NB8)
skiptir þar miklu máli.
Fjarfundir frekar en
flugferðir
Í fyrra tók ég þátt í
31 ráðherrafundi með
Norðurlöndunum og
Eystrasaltsríkjunum.
Þetta er metfjöldi og
hefur mikill meirihluti verið fjar-
fundir á netinu. Að mínu mati hefur
reynslan af fjarfundum verið svo góð
að full ástæða er til að halda þeim
áfram. Ég hef þess vegna lagt til við
kollega mína á Norðurlöndum að
taka höndum saman við að hvetja
stofnanir og aðra til að fjölga fjar-
fundum og minnka þannig kolefn-
isspor, spara og færa alþjóða-
samskipti inn í 21. öldina. Ég hef nýtt
alla þessa fundi til að útskýra hags-
muni Íslands fyrir samstarfsríkjum
og óska liðveislu í einstökum málum.
Ég hef einnig lagt mig fram um að
hlusta og læra af reynslu annarra
enda þarf hvort tveggja til að ná ár-
angri í alþjóðasamskiptum: Að
standa með sjálfum sér og þekkja
hagsmuni annarra.
Ísland í forystu
grannríkjasamstarfs
Ísland gegndi formennsku í Norð-
urlanda- og NB8-samstarfinu áður
en heimsfaraldurinn brast á. Á for-
mennskuárinu bar hæst tveggja
daga ráðherrafund Norðurlandanna
og Eystrasaltsríkjanna í Borgarnesi í
september 2019 og svo sameiginlega
norræna ákvörðun tveimur mán-
uðum síðar um tillögu mína að fela
Birni Bjarnasyni að gera tillögur um
aukið samstarf á sviði utanríkis- og
öryggismála, svipað og Thorvald
Stoltenberg gerði í frægri skýrslu
áratug fyrr. Þessi samstaða lýsir
miklu trausti í garð okkar Íslendinga
og hin svokallaða „Bjarnason Re-
port“ hefur verið lofuð sem góður
grunnur að frekara samstarfi, nú síð-
ast á vel heppnuðum fjarfundi á veg-
um Norðurlandaráðs fyrr í þessari
viku. Með þessu frumkvæði Íslands
höfum við sýnt að við erum ekki bara
þátttakendur í Norður-
landasamstarfinu heldur getum við
líka mótað áherslur þess og framtíð-
arstefnu.
Við höfum einnig gegnt for-
mennsku í Norðurskautsráðinu í tæp
tvö ár. Þeirri formennsku lýkur á
ráðherrafundi sem vonandi fer fram
hérlendis í maí með þátttöku Banda-
ríkjanna, Rússlands og Kanada, auk
Norðurlandanna og fjölda áheyrn-
arríkja og annarra. Ég nefni þetta
hér því vel undirbúin og fagmannlega
framkvæmd formennska í norrænni
samvinnu, í NB8-samstarfinu og í
Norðurskautsráðinu hefur styrkt
stöðu Íslands og þjónað íslenskum
hagsmunum.
Staða Íslands sterk
Alls staðar í þessu fjölbreytta sam-
starfi höfum við lagt áherslu á mann-
réttindi, öryggismál, þ.m.t. net-
öryggi, á hagsmuni á norðurslóðum
og umhverfismál. Viðskiptasamstarf
er svo ávallt í forgrunni. Þar er mik-
ilvægt að hafa í huga að samanlagt
eru Norðurlöndin eitt stærsta „við-
skiptaríki“ Íslands þegar litið er til
inn- og útflutnings á vörum og þjón-
ustu, sjónarmun á eftir Bandaríkj-
unum. Í gegnum fótfestu okkar í
samstarfi Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna er staða Íslands
því sterk. Og þegar efnahagslífið fer
aftur á fullt þegar farsóttin rénar
bendir margt til þess að viðskipti
milli þessara vinaríkja muni aukast
enn frekar. Sú vinna sem við í ráðu-
neytinu höfum lagt í undanfarin
misseri við að búa í haginn fyrir vax-
andi utanríkisviðskipti á því án efa
eftir að koma sér vel.
Eftir Guðlaug Þór
Þórðarson » Samanlagt eru nor-
rænu ríkin eitt
stærsta „viðskiptaríki“
Íslands. Í gegnum fót-
festu okkar í NB8-
samstarfinu er staða Ís-
lands því sterk.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Höfundur er utanríkis- og þróunar-
samvinnuráðherra.
Grannríkjasamstarfið gulls ígildi
Í málflutningi af
hálfu Benedikts Boga-
sonar í málinu sem
dæmt var í Hæstarétti
sl. föstudag lagði hann
mikla áherslu á að ég
hafi í febrúar 2012,
meðan málið gegn
Baldri Guðlaugssyni
var til meðferðar í
Hæstarétti, afhent
samdómurum mínum
minnisblað í því skyni
að hafa áhrif á dóm þeirra. Það er
vandséð hvaða þýðingu þetta hefur í
máli sem höfðað er gegn mér í nóv-
ember 2017 vegna ætlaðra meiðyrða
í bókarkafla sem kom út í byrjun
þess mánaðar. Samt varði lögmaður
Benedikts drjúgum málflutnings-
tíma í þetta minnisblað. Dómarar
hefðu auðvitað átt að stöðva þennan
málflutning, þar sem hann kom
dómsmálinu ekkert við. Eins konar
blaðafulltrúi dómaraelítunnar, sem
starfar hjá Fréttablaðinu, gerði
þetta að sérstöku frásagnarefni í
frétt um sýknudóminn nú. Áður
hafði Benedikt afhent fjölmiðlum
minnisblaðið. Mikill
bragur á því hjá starf-
andi hæstaréttardóm-
ara.
Ljóst er að þessum
málflutningi var ein-
ungis ætlað að sverta
mig í augum dómsins
og gera mig að tor-
tryggilegri persónu.
Ég sé því ástæðu til að
fara um þetta nokkrum
orðum og birta þá um
leið minnisblaðið sem
átti að hafa þessi áhrif í
málinu nú.
Það hefur verið algengt að dóm-
arar við Hæstarétt leggi til efni um
mál sem þar eru til meðferðar, þó að
þeir sitji ekki í dómi. Fullyrðingar
um annað eru hafðar uppi í þeirri
vissu að ekki sé unnt að fá réttar
upplýsingar um þetta frá réttinum
sjálfum.
Málið gegn Baldri var fyrsta mál-
ið í Hæstarétti, sem varðaði ákærur
á hendur einstaklingum eftir hrunið.
Mér varð strax ljóst hvernig vindar
blésu á dómaraganginum í Hæsta-
rétti á þessum tíma. Menn biðu
hreinlega eftir tækifæri til að láta
hrunið til sín taka og sýna þjóðinni
að tekið yrði fast á málum. Það var
því fyrir fram ljóst að hér var hætta
á að sá grandvari maður Baldur yrði
fyrir spjótalögum af þessum sökum.
Ég setti því niður á blað nokkur at-
riði um lagaleg atriði sem vörðuðu
innherjasvik, en ákæran á hendur
Baldri var um slík svik.
Minnisblaðið fer á eftir í orðréttri
útgáfu:
„Spurning: Er refsivert að selja
hlutabréf ef sá sem selur veit eitt-
hvað (neikvætt) um hlutafélagið sem
„markaðurinn“ veit ekki? Svar: Nei.
Þetta er því aðeins refsivert, að um
sé að ræða innherjaupplýsingar og
sá sem selur teljist vera innherji.
(Hér má hafa í huga að verð-
bréfamarkaður byggist hreinlega á
því að þeir sem hafi viðskipti með
hlutabréf hafi mismunandi vitneskju
og skoðanir um viðkomandi hluta-
félag; ekkert er athugavert við þetta
nema annar þeirra búi yfir inn-
herjaupplýsingum.)
Spurning: Hvað eru þá inn-
herjaupplýsingar? Svar: Þær upp-
lýsingar sem efnislega uppfylla skil-
greiningu 120. gr. laganna
(„nægilega tilgreindar upplýs-
ingar“) og skylt er að birta almenn-
ingi samkvæmt 1. mgr. 122. gr.
Upplýsingarnar falla aðeins undir
skilgreininguna fram að birtingu
þeirra (síðari málsliður 121. gr.).
Spurning: Voru það innherjaupp-
lýsingar í LÍ, að breskir og hol-
lenskir eftirlitsaðilar með fjármála-
fyrirtækjum létu í ljós áhyggjur af
því að innistæðutryggingakerfi
bankans væri ófullnægjandi fyrir
hagsmuni innlánseigenda á Icesave-
reikningum í þessum löndum? Svar:
Nei. Almenningi var kunnugt um
hvernig innistæðutryggingakerfi LÍ
var fyrir komið. Hugleiðingar og til-
mæli hinna erlendu eftirlitsaðila
sem lutu að þessu geta ekki hafa
verið tilkynningaskyldar, fyrr en
þessir aðilar tóku formlega ákvarð-
anir innan valdheimilda sinna um að
takmarka starfsemi LÍ í þessum
löndum. Sjálfsagt hefði LÍ orðið
skylt að birta upplýsingar um slíkar
ákvarðanir almenningi ef þær hefðu
verið teknar.
Spurning: Hvað þarf að liggja
fyrir til þess að manni verði refsað
samkvæmt 123. gr.? Svar: A. Til-
greina verður nákvæmlega með full-
nægjandi rökstuðningi hvaða upp-
lýsingar bar að birta almenningi
(vafaatriði ber að túlka sakborningi í
hag samkvæmt almennum reglum).
B. Hinn sakaði maður verður að
teljast hafa verið innherji (121. gr.).
C. Sanna verður að hann hafi búið
yfir upplýsingunum þegar hann
seldi (123. 1. gr.).“
Allir sem lesa þetta sjá að hér var
ekki um neitt annað að ræða en
hlutlausar ábendingar um lögfræð-
ina í málinu. Ég hefði eins getað
skrifað blaðagrein um þetta. Það er
bara fyndið að dómarinn mikli skuli
telja afhendingu þessa blaðs í febr-
úar 2012 skipta máli, þegar hann
stefnir mér fyrir ummæli í bók sem
kom út í nóvember 2017.
Eftir stendur aðeins, að dóm-
ararnir hefðu betur tileinkað sér
þann lögfræðilega fróðleik sem fram
kom í minnisblaði mínu. Þá hefði
ekkert dómsmorð verið framið.
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson » „Allir sem lesa þetta
sjá að hér var ekki
um neitt annað að ræða
en hlutlausar ábend-
ingar um lögfræðina í
málinu.“
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur lögmaður.
Minnisblaðið hræðilega