Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Árið 2018 samein-
uðust tvö starfandi
leikfélög svæðisins í
Leikflokk Húnaþings
vestra með heim-
ilisfestu í Félagsheim-
ilinu Hvammstanga.
Frá sameiningu hef-
ur starfsemi flokksins
verið mjög virk og var
leikárið 2018-2019
mjög viðburðaríkt.
Leikflokkurinn setti
upp barnaleikritið Snædrottn-
inguna um jólin 2018 og söngleik-
inn Hárið um páskana 2019. Bæði
verkin komu sterklega til greina í
Áhugaverðustu áhugaleiksýningu
ársins 2019 og úr varð að Hárið
var valið. Var því leikflokknum
boðið að koma með söngleikinn í
Þjóðleikhúsið þar sem sýndar voru
tvær sýningar fyrir nær fullu húsi.
Það eru ekki mörg leikfélög á
landsbyggðinni sem hafa þann
mannafla og aðstöðu sem Leik-
flokkur Húnaþings hefur. En hins-
vegar er staðreyndin sú að leik-
flokkurinn þarf ár hvert að leigja
búnað með tilheyrandi kostnaði þar
sem viðeigandi búnaður er ekki til
staðar í húsnæði leikflokksins. Að
auki hafa þátttakendur gefið alla
vinnu til að aðstaða áhorfenda sé
sem best. Sem dæmi má nefna að
við uppsetningu á Hárinu voru um
550 vörubretti borin inn í hús og
utan um þau smíðaður áhorf-
endapallur svo að allir sæju vel til
sviðs. Ekki má gleyma vinnunni við
að taka það svo allt niður aftur.
Þar sem starfsemi leikflokksins
hefur gengið vel hefur hann getað
kostað tæki og búnað í húsnæði fé-
lagsheimilisins og má þar nefna
upphækkandi áhorfendapalla. En
það er eins og dropi í hafið m.v.
það viðhald sem er nauðsynlegt til
að í félagsheimilinu sé viðunandi
aðstaða fyrir leikflokkinn, gesti og
aðra viðburði sem fram fara í hús-
inu.
Félagsheimilið á Hvammstanga
er hjarta samfélagsins og er vilji
hjá notendum og sveitarfélaginu að
gera það sem best úr garði til að
allir íbúar geti nýtt það í fjöl-
breytta menningarstarfsemi.
Eins og flestum er kunnugt um
var gerður menning-
arsamningur við sveit-
arfélagið Skagafjörð
um uppbyggingu
menningarhúss sem
átti að þjóna Norður-
landi vestra. Var fé-
lagsheimilið Mið-
garður í Skagafirði
tekið í gegn og form-
lega opnað sem menn-
ingarhús árið 2009.
Miðgarður á að þjón-
usta íbúa á Norður-
landi vestra og því voru ekki fleiri
félagsheimili sem fengu sams kon-
ar upplyftingu.
Fyrir u.þ.b. ári var lögð fram
beiðni til ráðuneytis um að í fjár-
lagagerð yrði fjármagn sett í Fé-
lagsheimilið Hvammstanga enda
færi ástand þess versnandi og hús-
ið lægi undir skemmdum. Óskað
var eftir að ríkið kæmi að viðhaldi
félagsheimilisins með 70% fjár-
framlagi og sveitarfélagið kæmi á
móti með 30%. Sveitarfélagið fékk
munnlegt vilyrði frá ráðherra
menntamála um að félagsheimilið
fengi fjármagn í fjárlögum/
fjármálaáætlun næstu þriggja ára.
Þrátt fyrir þetta vilyrði var Fé-
lagsheimilið á Hvammstanga ekki í
fjárlögum ársins 2021 né í fjár-
málaáætlun næstu þriggja ára. Í
fjárlögum 2021 er gert ráð fyrir
fjármagni í menningarhús á Sauð-
árkróki, þrátt fyrir að áður hafði
verið sett fjármagn í menningarhús
í Skagafirði um 25 km frá því húsi
sem nú á að rísa. Rétt er að geta
þess að frá Hvammstanga til Sauð-
árkróks eða Varmahlíðar þar sem
þessi tvö menningarhús verða eru
100 km og bætast við 80 km fyrir
þá sem búa vestast í Húnaþingi
vestra. Þessi hús nýtast ekki dag-
legri menningarstarfsemi í Húna-
þingi vestra vegna þeirra vega-
lengda sem þangað eru og yfir
vetrartímann er yfir fjallvegi að
fara sem oft á tíðum eru ófærir.
Leikflokkurinn spyr annars veg-
ar; átti Miðgarður ekki að þjónusta
allt Norðurland vestra? Og hins-
vegar; fyrst mögulega er búið að
fella það úr gildi, af hverju þá að
færa sig um ca. 25 km (og í leiðinni
innan sama sveitarfélags) þegar
Norðurland vestra sem er mjög
víðfeðmt svæði með fjallvegum nær
yfir 200 km svæði eða yfir sjö
sveitarfélög?
Stjórn Leikflokks Húnaþings
vestra er farin að huga að næsta
söngleikjaverkefni. Leikflokkurinn
hefur þegar fjárfest í búnaði og
tækjum sem liggja undir skemmd-
um ef ekkert verður gert. Við
stærri sýningar eins og söngleiki
þarf leikflokkurinn að leigja dýran
búnað og mikilvægt að húsnæðið sé
viðunandi og að ekki sé hætta á að
búnaðurinn skemmist t.d. vegna
leka í þaki sem er umtalsverður á
ákveðnum stöðum í húsinu sem og
vegna raka eða annarra ut-
anaðkomandi áhrifa.
Leikflokkur Húnaþings vestra
hefur verið upplýst um samtal
sveitarstjórnar, þingmanna og ráð-
herra menntamála um ósk sveitar-
félagsins um aðkomu að viðhaldi.
Leikflokkurinn leggur mikla
áherslu á að þingmenn og ráðherra
mennta- og menningarmála beiti
sér fyrir því að fjármagn komi til
viðhalds og uppbyggingar félags-
heimilisins á Hvammstanga sem
allra fyrst svo að sú öfluga menn-
ingarstarfsemi sem á sér stað í
sveitarfélaginu hafi áfram sama-
stað fyrir starfsemi sína og við-
burðahald.
Fyrir hönd stjórnar Leikflokks
Húnaþings vestra sem í sitja Arnar
Hrólfsson, Ingibjörg Jónsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir og Þorleif-
ur Karl Eggertsson auk undirrit-
aðs.
Eftir Hörð Gylfason
» Í Húnaþingi vestra
hefur öflug leik-
starfsemi verið við lýði
aftur til fjórða áratugar
síðustu aldar. En hver
er framtíð þess?
Hörður Gylfason
Höfundur er í stjórn Leikflokks
Húnaþings vestra.
leikur@leikflokkurinn.is
Félagsheimilið Hvammstanga
Ljósmynd/Kristín Guðmundsdóttir
Frá sýningu leikflokksins á Snædrottningunni 2018.
Ljósmynd/Hulda Signý Jóhannesdóttir
Frá sýningu leikflokksins á Hárinu 2019
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is