Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 44

Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 opið laugardag 13. febrúar kl. 12–16 FJÖRUÁHRIF Opið virka daga 10–18, laugardaga 12–16 Lokað á sunnudögum HAUKUR DÓR Sýningu lýkur Fram er komið frumvarp um breyt- ingu á rammaáætlun sem ætlað er að færa samþykki vind- orkuverkefna undir rammaáætlun og staðfestir þannig þá skoðun að vindorka fellur í dag ekki undir rammaáætlun. Frumvarpið er verulegum annmörkum háð eins og það er fram sett. Vinnur gegn raforku- og samkeppnislögum Í fyrsta lagi virðist rammaáætl- un vera óþörf því önnur lög sem gilda nú þegar um sama mál taka á öllu því sem rammaáætlun fjallar um, sjá grein undirritaðs sem birtist í Morgunblaðinu 12. nóv. 20. Engin önnur starfsgrein í land- inu þarf að búa við tvöfalt lagaum- hverfi sem í raun gerir sama hlut- inn. Tvöfalda kerfið gengur gegn markmiði raforkulaga sem stuðla eiga að „…þjóðhagslega hag- kvæmu raforkukerfi og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu,“ og samkeppnislaga sem hafa það að markmiði að „…efla virka sam- keppni í viðskiptum og þar með vinna að hagkvæmri nýtingu fram- leiðsluþátta þjóðfélagsins. Mark- miði þessu skal ná með því að: a) vinna gegn óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnu- rekstri. b) vinna gegn skaðlegri fá- keppni og samkeppnishömlum. c) auðvelda aðgang nýrra samkeppn- isaðila á markaðnum. d) stuðla að heilbrigðu samkeppnisumhverfi til hagsbóta fyrir neytendur.“ Tvöfalda kerfið gerir uppbygg- ingu nýrra raforkuverkefna mjög erfiða, kostnaðarsama og tíma- freka. Í slíku umhverfi er það ein- ungis á færi stórfyrirtækja eða ríkisins að koma verkefnum í gegnum tvöfalda kerfið. Slíkt hindrar aðgang nýrra aðila að markaðinum sem takmarkar sam- keppni og framboð og stuðlar þannig að óheilbrigðu fákeppn- isumhverfi. Þannig vinnur ramma- áætlun gegn raforku- og sam- keppnislögum. Verkefni sem nú falla undir rammaáætlun eru flokkuð í þrjá flokka. Athyglisvert er að tveir flokkar stöðva verkefni en einn flokkur færir verkefni í heimild til framkvæmdar sem þó er ekki víst að verði því enn þarf verkefnið að komast í gegnum nálarauga ann- arra laga, s.s. umhverfismat. Vegna óskilvirkni rammaáætl- unar hafa ný verkefni í raforku ekki fengist samþykkt í sjö ár sem sem heftir framboð á raforku sem getur leitt til hærra raforkuverðs til neytenda. Frumvarpið meingallað Í öðru lagi er frumvarpið mein- gallað. Um 95% af Íslandi eru ann- aðhvort lokuð fyrir vindorkuverk- efni (bannsvæði, merkt með rauðu, sjá mynd) eða 10 km svæði í kringum bannsvæðið sem þarf að fara í gegnum tvöfalda kerfið (merkt með gulu). Landsvæðið sem er undanskilið er ofan á fjalls- toppum eða á svæðum sem vitað er að henta alls ekki fyrir vind- orku. Engin skýring er gefin á því hvers vegna nauðsynlegt er að hafa 10 km svæði í kringum bann- svæðin. Er gagngert verið að úti- loka öll svæði eða gera vinnslu verkefna á gulu svæðunum svo erfiða að enginn sjái sér hag í að fara af stað með þau? Umhverfisráðherra fær alræðisvald í frumvarpinu, ef hann er ekki sammála verkefnastjórn um vindorkukosti getur hann stoppað þau. Hér er um mjög sér- staka þróun að ræða í stjórnsýslu landsins, verulega afturför lýð- ræðisins og þeirrar stefnu sem mörkuð hefur verið, að færa ákvarðanir sem þessar frá stjórn- málamönnum til fagaðila. Í þingsályktun sem fylgir drög- um að frumvarpinu er vikið að því að fagurfræðilegir mælikvarðar verði notaðir til að meta verkefnin (1. mgr., bls. 4) og meta skuli hvort vindorkuverkefni sem eru innan 10 km frá bannsvæði/ friðlýstu svæði „…komi til með að rýra gildi hins friðlýsta svæðis“. Þessi nálgun, að nota fag- urfræðilega mælikvarða og mat á því hvort verkefni rýri gildi ein- hvers býður upp á að persónuleg skoðun þess sem mælir verði not- uð sem mælikvarði. Augljóst er að það sem einum finnst ljótt getur öðrum fundist fallegt. Notkun mælikvarða sem ekki er hægt að meta faglega, með gegnsæjum og vísindalegum hætti, getur varla talist til eðlilegrar stjórnsýslu og býður upp á mismunun byggða á huglægu mati. Frumvarpið fer gegn ákvæðum stjórnarskrár Íslands, rétti manna til að skapa sér atvinnu á eigin landi. Ríkissjóður Íslands gæti orðið skaðabótaskyldur að veru- legum fjárhæðum til 25 ára. Er al- mannahagsmunum best borgið með slíkri nálgun? Ný hálaunastörf á lands- byggðinni Ísland þarf að skapa um 50.000 ný störf á næstu 10 árum. Stærstu atvinnugreinar landsins eru sveiflukenndar eins og dæmin sanna undanfarin ár. Eitt ein- kenna orkugeirans er stöðugleiki og má nefna að orkugeirinn greið- ir næsthæstu launin að meðaltali samkvæmt Hagstofu Íslands. Ný störf krefjast raforku og erfitt að sjá hvernig skapa á ný störf án þess að framleiða meira rafmagn. Vindorka hefur minnstu umhverfisáhrifin og er því kjörinn kostur á Íslandi. Á sama tíma veldur samdráttur í landbúnaði því að störfum á landsbyggðinni fækkar ár frá ári. Orkuverkefni eru landsbyggðarverkefni sem skapa hálaunastörf og auka stöð- ugleika í byggðum landsins. Niðurstaða Einfalda verður samþykkt- arkerfi orkuverkefna svo ná megi markmiðum raforku- og sam- keppnislaga og tryggja neyt- endum næga raforku á hagstæðu samkeppnisverði. Það verður best gert með afnámi íþyngjandi laga og reglna, s.s. rammaáætlunar, sem vinna gegn almannahags- munum. Eftir Magnús B. Jóhannesson » Tryggja þarf neyt- endum næga raf- orku á hagstæðu sam- keppnisverði með afnámi íþyngjandi laga, s.s. rammaáætlunar, sem vinna gegn al- mannahagsmunum. Magnús B. Jóhannesson Höfundur er framkvæmdastjóri Storm-Orku. Rammaáætlun fyrir vindorku er óþörf og skaðleg Þessir 38.000 eldri borgarar sæta mismun- andi miklum skerð- ingum á greiðslum sam- kvæmt lögum um almannatryggingar (TR). Um 3.500 þeirra sem eru á hjúkr- unarheimilum búa við ofurskerðingu og upp- töku nær allra sinna fjármagnstekna. Um 3.500 eru að stærstum hluta þeir sem þiggja ekki greiðslur frá TR, meta frelsi til að vinna og frelsi frá eftirliti meira virði en að fá skertar greiðslur frá TR. Hinn hlutinn fékk að því er virtist leiðréttingu með lagabreytingu en þrátt fyrir það meiri skerðingar og hindranir en aðrir sem þiggja greiðslur frá TR. Um 32.000 eru skertir minna. Þeir sæta samt 45% skerðingu á fjár- magnstekjum umfram kr. 25.000 á mánuði og 45% samsvarandi skerðingu á vinnulaunum eða verktakagreiðslum umfram kr. 100.000 á mánuði. Staða um 5.000 eldri borgara Við, sem höfum með lífeyri, vinnu og fjármagnstekjum yfir 600 þúsund kr. á mánuði, njótum þess að fá engar skerðingar frá almannatryggingum (TR), því við fáum engar greiðslur það- an, þótt svo hafi átt að vera með lágri grunngreiðslu á móti árlegri greiðslu til almannatrygginga alla starfsævi. Með breytingum á skatta- og gjalda- kerfi ríkisins í upphafi þessa árs lækk- uðu hjá okkur skattar, þótt skattleys- ismörkin hefðu verið lækkuð annað árið í röð, en það kom ekki að sök vegna þeirra tekna sem við höfum. Skattalækkunin hvarf næstum hjá hin- um hópnum sem fjallað er um. Við höf- um efni á lagfæringu íbúðarhúsa og fengum hækkun á endurgreiðslu vsk- skatts vegna vinnu úr 60% í 100%. Langþráð lagfæring fékkst um afnám skattlagningar á söluhagnaði sum- arhúsa, sem nýtist okkur vafalaust bet- ur en hinum hópnum. Við sem eignir eigum fengum einnig þá leiðréttingu fyrir afkomendur okkar, að skattfrels- ismörk erfðafjárskatts voru hækkuð úr 1,5 milljónum í 5 milljónir króna. En það sem var gert sér- staklega fyrir okkur, um- fram hinn hópinn, var að frítekjumark fjármagns- tekna frá skatti var hækkað um 100%, úr 150 þúsund í 300 þúsund kr. á ári. Frítekjumark hjá hinum hópnum er 0 kr. frá skatti og að auki með óbreytt skerðingarmörk hjá TR, eins og und- anfarin fjögur ár. En sérstaklega þökkum við fyrir að vera ekki undir ströngu eftirliti TR um allar okkar tekjur og eignir, sem við erum frjáls að hafa, eiga og ráðstafa. Stutt samantekt um 38.000 eldri borgara Engar bætur hafa náðst fram til þeirra, heldur þvert á móti, að þeir sem minnst hafa innan hópsins fengu smátt og smátt minna undanfarin 11 ár en aðrir hópar í þjóðfélaginu. Greiðslur frá TR hafa ekki fylgt launaþróun frá hruni og skerðingarnar hafa skert enn frekar greiðslur allt frá 2009 og verið óbreyttar hjá núverandi ríkisstjórn frá 2017, þótt allar aðrar greiðslur í sam- félaginu hafi árlega tekið mið af verð- lagi og launaþróun. Ein lagasetning var þó gerð 3. júlí 2020 af núverandi stjórnarflokkum um viðbótarstuðning við aldraða. Það var stuðningur sem átti að ná líklega til um 800 eldri borg- ara hér á landi; innflytjenda sem höfðu ekki réttindi til greiðslu frá TR og til Íslendinga sem höfðu misst réttindi vegna búsetu erlendis, enda þótt þeir hefðu áður greitt til almannatrygginga og sjúkrasamlaga hluta af launum sín- um til 1986 og eftir það sambærilegar greiðslur með hækkun skattprósentu. Þessi lagabreyting er líklega það sem ráðherrar höfða til um hækkaðar greiðslur þegar þeir segja að staða eldri borgara hafi verið bætt í stjórn- artíð núverandi ríkisstjórnar. Hverju skilaði sú löggjöf? Lög um félagslegan viðbót- arstuðning við aldraða Lög nr. 74 / 3.7. 2020 kveða á um 90% af grunngreiðslu TR til eldri borg- ara, eða kr. 129.310, en með heimilis- uppbót kr. 170.784 á mánuði, báðar eft- ir skattgreiðslu. Lögin eru með svo ýtarlegum skerðingum, hindrunum og eftirliti frá TR að aðeins hafði 141 sótt um greiðslur í árbyrjun 2021. Í 4. gr laganna er kveðið á um að við- komandi hafi áður „sótt um og tekið út að fullu öll réttindi sem hann kann að eiga eða hafa áunnið sér“. Í 5. gr. segir m.a.: „Hafi umsækjandi þegar fengið greidda fjárhagsaðstoð sveitarfélags á sama tímabili sem greitt er fyrir aftur í tímann … skal viðbótarstuðningurinn nema mismun- inum fyrir það tímabil.“ Í 7. gr. segir: „Ekki kemur til greiðslu viðbótarstuðnings samkvæmt lögum þessum nemi eignir umsækj- anda í peningum eða verðbréfum hærri fjárhæð en 4.000.000 kr.“ Í 12. gr. er kveðið á um upplýs- ingaskyldu til TR varðandi þessa ein- staklinga, til að hægt sé að skerða þessa lágmarksgreiðslu enn frekar: Í upptalningunni eru taldar nær allar stofnanir landsins. Í 13. grein er m.a. fjallað um rök- studdan grun og hvernig með skuli fara. Niðurstaða samantektar Núverandi ríkisstjórn hefur ekkert gert í þágu þeirra sem fá greiðslur frá TR, þrátt fyrir skrifuð loforð og fram- setningu í þingræðum um bætur. Hún hefur viðhaldið áfram skerðing- arákvæðum fyrri ríkisstjórna vinstri- flokka. Var það lagabreytingin um við- bótarstuðning við aldraða sem ráðherrar meintu um auknar bætur TR til eldri borgara undanfarin tæp fjögur ár? Ef svo er þá gefur lagasetn- ingin og framkvæmdin alls ekki tilefni til að þakkað sé fyrir það. 38.000 og hins vegar 5.000 eldri borgarar Eftir Halldór Gunnarsson »Núverandi rík- isstjórn hefur ekk- ert gert í þágu þeirra sem fá greiðslur frá TR, þrátt fyrir skrifuð loforð og framsetningu í þing- ræðum um úrbætur. Halldór Gunnarsson Höfundur er formaður kjararáðs félags eldri borgara í Rangárvallasýslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.