Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Hafnarstræti 1–3 > fjallkona.isfjallkonan.rvk fjallkonan
FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR!
Nánar á fjallkona.is
BRJÁLÆÐISLEGA GÓÐUR
BRUNCH
LAUGARDAGA & SUNNUDAGA
11.30-14.30
NÝR OG SPENNANDI SEÐILL!
Berjafylling
500 ml rjómi
2 tsk. vanillusykur
2 dl blönduð ber (helst frosin)
berjasulta, magn eftir smekk
fersk jarðarber og bláber, magn
eftir smekk
100 g saxað Síríus-rjóma-
súkkulaði
Maukið blönduð ber og van-
illusykur í matvinnsluvél eða
með töfrasprota, einnig er gott
að setja eina matskeið af vatni
út í ef berin eru of þykk.
Stífþeytið rjómann og blandið
maukuðum berjum saman við.
Saxið rjómasúkkulaði afar
smátt og blandið varlega sam-
an við rjómann.
Skerið bollurnar í tvennt,
smyrjið berjasultu á botninn,
skerið niður jarðarber og
bláber og setjið yfir sultuna.
Sprautið berjarjómanum
yfir.
Lakkrískúlukrem
150 g Nóa-piparkúlur
1 dl rjómi
Skraut
Siríus-suðusúkkulaði, rifið
fersk ber eftir smekk
Bræðið piparkúlurnar í
rjómanum við vægan hita,
dýfið lokinu í blönduna og
lokið bollunni.
Rífið suðusúkkulaði yfir
og fersk ber eftir smekk.
Berjalúxus með lakkrískeim
Ljósmyndir/Nói Síríus
½ l rjómi
150 g Síríus-rjómasúkkulaði með kara-
mellu og salti
sítrónusmjör (lemon curd)
150 g Nóa-rjómakúlur
50 g Síríus-suðusúkkulaði
1 msk. olía
Stífþeytið rjómann. Saxið Síríus-
rjómasúkkulaði með karamellu og salti
frekar smátt. Skerið bollurnar í
tvennt.
Setjið sítrónusmjör innan á hliðarnar
á rjómasprautupokanum með skeið og
setjið svo þeytta rjómann í miðjuna.
Sprautið á bollurnar. Stráið um það bil
einni teskeið af saxaða Síríus-rjóma-
súkkulaðinu með karamellu og salti of-
an á rjómann. Setjið lokið á.
Saxið helminginn af Nóa-rjómakúl-
unum og geymið til skrauts. Bræðið
hinn helminginn af kúlunum og Síríus-
suðusúkkulaðinu í vatnsbaði ásamt ol-
íunni. Setjið yfir bollurnar og skreytið
með saxaða rjómasúkkulaðinu og söx-
uðu rjómakúlunum.
Saltkaramellusæla með sítrónutvisti
½ l rjómi
2½ dl hindber
50 g Síríus-suðusúkkulaði
1 msk. matarolía
150 g Nóa-Kropp
Stífþeytið rjómann, bætið hind-
berjunum saman við.
Skerið bollurnar í tvennt og
sprautið rjómanum inn í. Raðið Nóa-
Kroppi þar á.
Setjið suðusúkkulaði og olíu í skál
og bræðið í vatnsbaði. Dýfið lokinu
af bollunni í súkkulaðið og setjið of-
an á. Stráið Nóa-Kroppi yfir.
Nóa-Kropp-
bomba með
hindberjablæ
Hvítsúkkulaðirjómi
150 g Síríus hvítir súkkulaðidropar
75 ml rjómi
600 ml rjómi (þeyttur)
hindber
Síríus-rjómasúkkulaði með tromp-
bitum
Súkkulaðiglassúr
250 g Síríus-suðusúkkulaði
125 g smjör
35 g flórsykur
215 ml rjómi
1 msk. kaffi
1⁄4 tsk. salt
Skraut
Nóa-Kropp
Síríus hvítir súkkulaðidropar
Hitið 75 ml af rjómanum að
suðu og hellið yfir hvítu súkku-
laðidropana og hrærið vel saman.
Hrærið því næst blöndunni var-
lega saman við þeytta rjómann.
Skerið bollurnar í tvennt. Raðið
hindberjum á botninn og setjið
hvítsúkkulaðirjómann ofan á og
síðast saxaða rjómasúkkulaðið
með trompbitum.
Setjið öll hráefnin í pott og
bræðið á lágum hita, takið síðan
blönduna úr pottinum og leyfið
henni að standa aðeins meðan hún
kólnar.
Dýfið lokunum af bollunum í
glassúrinn og skreytið með söx-
uðum hvítum súkkulaðidropum og
Nóa-Kroppi.
Eftirréttabolla með hvítsúkku-
laðirjóma og trompbitum
Bolluveislan mikla!
Bolluát hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og nú keppist
fólk við að búa til eins bragðgóðar og sniðugar bollur og hugsast
getur. Hér er fjölbreytileikinn lykilatriði en við fengum þessar bollur
frá Nóa-Síríusi og eins og sjá má kennir hér ýmissa grasa.