Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 53

Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 53
að sjá ungt fólk komast til mennta í heimabyggð og að finna þekkingu sinni farveg öðrum til góðs. Þakklæti er mér efst í huga á þessum tímamótum, kæri Aage, þegar leiðir okkar skilur um stund. Halldór Þorgeirsson. Haustið sem ég byrjaði í lands- prófi kom nýr strákur í bekkinn okkar. Hann hét Torfi Steinsson. Torfi féll strax vel inn í hópinn og áður en varði vorum við nokkrir orðnir heimagangar hjá honum og fjölskyldu hans. Þar var alltaf margmenni. Systkinin voru mörg og húsið öllum opið. Aldrei heyrðist æðruorð frá húsráðendum, þeim Önnu og Aage. Þau höfðu alltaf nógan tíma til að tala við alla og aldrei að sjá að þau hefðu neitt annað að gera. Þó voru þau með þetta stóra heimili, Anna að lesa menntaskóla utanskóla og síðan háskóla, auk þess að kenna við Iðnskólann, og Aage stjórnaði RARIK á Vestfjörðum, var skólastjóri Iðnskólans á Ísafirði og aðalkennari og sat svo í bæj- arstjórn. Hvernig allt þetta var hægt veit ég ekki, en komst þó að því mörgum árum síðar, að það að vera upptekinn er fyrst og fremst hugarástand. Aage var einstakur kennari. Þess fengum við félagarnir oft að njóta. Mér er minnisstætt þegar við sátum niðri á skrifstofunni hjá honum í Mjallargötu 6 og hann fór með okkur yfir stærð- fræðidæmi. Hann tók brosandi á móti okkur þegar við komum og tjáðum honum vandræði okkar. Hann lagði í rólegheitum frá sér það sem hann var að gera, tók krítarmola og sýndi okkur dæmi á töflunni. Hann sagði að þetta væri nú barasta svona og allt laukst ljóslifandi upp fyrir okkur. Við félagarnir vorum ekki þeir einu sem nutu kennslu á skrif- stofunni hjá Aage. Iðulega komu þangað nemendur úr Iðnskólan- um sem höfðu misst af kennslu eða þurftu að fá sérstaka aðstoð við námið. Í Iðnskólanum lyfti Aage grettistaki og kom með margar nýjungar. Hann fann skólanum hentugt húsnæði og festi iðnnám- ið í sessi sem alvörunám. Kennsla í skólanum hafði áður verið síð- degis og á kvöldin, en Aage gerði hann að dagskóla. Námsbrautum var bætt við, svo sem vélstjórn, skipstjórn, tækniteiknun og frumgreinanámi til undirbúnings námi við Tækniskóla Íslands. Skólinn var þar með orðinn að eins konar fjölbrautaskóla, þótt það hugtak hafi ekki orðið til fyrr en nokkru síðar. Hugmyndir Aage í mennta- og skólamálum voru því töluvert á undan sinni samtíð. Aage tók við sem bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins á Ísafirði af mannvininum Halldóri Ólafssyni. Í bæjarstjórn lét Aage mikið að sér kveða, þótt hann væri eini fulltrúi síns flokks. Þar sem ann- ars staðar var hann tillögugóður og ávann sér traust samstarfs- fólksins. Mér er það minnisstætt þegar ég síðar kom að bæjarmál- unum á Ísafirði, hve þau sem höfðu starfað með Aage báru honum vel söguna og mátu hann mikils. Hið opinbera starf Aage á Ísa- firði var að stjórna RARIK á Vestfjörðum. Þar komu vel í ljós stjórnunarhæfileikar hans, ásamt þekkingu á viðfangsefninu og yfirsýn. Þessu kynntist ég bæði sem heimilisvinur og sem starfsmaður hjá RARIK. Þegar hefðbundnum starfs- ferli lauk lagði Aage aldeilis ekki árar í bát heldur hóf fiskeldi, sem hann rak í mörg ár. Sýnir það vel hve lifandi og hugmyndaríkur hann var. Með þessum fátæklegu minn- ingarorðum vil ég votta aðstand- endum Aage samúð og þakka honum og fjölskyldu hans ein- staka vináttu. Smári Haraldsson. MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 ✝ Ásdís Hann-esdóttir fædd- ist í Reykjavík 23. september 1941. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 1. febrúar 2021. For- eldrar hennar voru Sigurlaug Jónsdóttir, f. 14. september 1915, d. 6. ágúst 2010, og Hannes Ágústsson, f. 11. nóvember 1912, d. 15. nóvember 1996. Bróðir hennar er Baldur, f. í Reykjavík 5. október 1946. Hinn 12. júlí 1969 giftist Ás- dís Gunnari I. Waage, f. 17. mars 1937, og hófu þau búskap í Hörðalandi í Fossvogi en bjuggu lengst af í Breiðholti. Síðustu 20 árin bjuggu þau í Sóltúni í Reykjavík. Börn Ás- dísar og Gunnars eru: 1) Bene- dikt, f. 2. maí 1972, unnusta hans er Ólöf Björnsdóttir sem á eina dóttur. 2) Davíð, f. 28. febrúar 1975, maki Carolina Castillo. Börn þeirra eru Alex- anna tveggja fyrstu æviár þeirra. Sneri hún síðan aftur út á vinnumarkaðinn og vann um nokkurra ára skeið í Hóla- brekkuskóla og Fellaskóla í Breiðholti. Árið 1988 sneri hún aftur til Ríkisútvarpsins og hóf þá störf á fréttastofu sjónvarps- ins. Þar var hún allt þar til hún lét af störfum 2007. Ásdís var einn af stofnendum góðgerðarfélags fyrrverandi flugfreyja og flugþjóna, Sval- anna. Var hún virk í starfi þess um árabil og sat í stjórn þess. Auk þess sinnti hún um árabil sjálfboðastarfi á vegum Rauða kross Íslands á Borgarspítal- anum. Hún var auk þess um árabil virk innan skiptinema- samtakanna AFS, en á vegum þeirra fór hún 16 ára gömul til Baraboo í Wisconsinríki Banda- ríkjanna og dvaldi þar hjá McArthur-fjölskyldunni í eitt ár. Allt til síðasta dags héldust sterk vinabönd á milli Ásdísar og hinnar bandarísku fjöl- skyldu hennar og voru heim- sóknir tíðar á báða bóga. Útför Ásdísar verður frá Laugarneskirkju í dag, 11. febrúar 2021, klukkan 13, en vegna aðstæðna í samfélaginu verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. ander, f. 9. nóv- ember 2005, Ísa- bella, f. 2. desem- ber 2009, og Emma Björk, fædd 9. október 2013. Ásdís fæddist í Reykjavík og bjó þar alla tíð, fyrstu árin bjó hún á Njálsgötu og í Drápuhlíð og flutt- ist svo á Laugar- nesveg. Hún lauk gagnfræðaskólaprófi frá Aust- urbæjarskóla og hélt eftir það út á vinnumarkaðinn. Vann hún nokkuð víða, m.a. í Verzlunar- bankanum og sem flugfreyja hjá Loftleiðum. Lengst af vann hún þó hjá Ríkisútvarpinu, sjónvarpi, en þangað réðst hún fyrst til starfa á stofnári sjón- varpsins 1966, daginn eftir fyrsta útsendingardag. Þar var hún í nokkur ár og sinnti ýms- um störfum. Eftir nokkurra ára starf þar sneri hún sér að öðr- um störfum um skamma hríð, en helgaði sig svo uppeldi son- Elsku mamma, tengdamamma og amma Ásdís kvaddi okkur í síðustu viku eftir stutta sjúdóms- legu. Hennar er sárt saknað og verður sárt saknað um ókomna tíð. Allra góðu áranna munum við alla tíð minnast með þökk og hlýju. Hún var alveg einstaklega gjafmild, hlý og fjölskyldan var henni allt, allt hennar líf ein- kenndist af mikilli ást og um- hyggju til sinna nánustu og allra í fjölskyldunni. Það var alltaf vinsælt að fá að fara til ömmu og afa og vinsælast var að fá að gista, þar var nóg af kexi, dekri og endalausri þolin- mæði, ást og umhyggju og ekki sömu kröfur gerðar og heima hjá pabba og mömmu. Amma Ásdís var alltaf með hugann við okkur fjölskylduna, hún flaug yfir hálfan hnöttinn til að vera viðstödd giftinguna okk- ar, enda var hún manneskja sem vildi alltaf gleðjast með öðrum. Þegar við svo fluttum til Spánar var alltaf sérlega gaman að fá þau í heimsókn til okkar og gerð- um við okkur far um að fara í skemmtilegar ferðir og njóta saman og búa til skemmtilegar minningar sem við getum yljað okkur við nú þegar hennar nýtur ekki við. Þegar fyrsta barnabarnið fæddist fjölgaði heimsóknunum um mjög til okkar enda hafði stór draumur ræst. Hún tók svo með mikilli gleði á móti Ísabellu og Emmu og naut þess að fá loksins stelpur til að dekra við. Það er okkur sérstaklega mik- ilvægt að við fjölskyldan náðum að eiga heilan dag saman í góðu veðri uppi í sumarbústað nokkr- um dögum áður en mamma datt og þurfti að fara inn á spítala, þaðan sem hún í raun sneri aldrei aftur. Ömmu Ásdísar verður minnst sem glaðlegrar, umhyggjusam- rar ömmu, í langbesta skilningi þess orðs. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Davíð, Carolina, Alexander, Ísabella og Emma Björk. Elsku mamma kvaddi okkur þann 1. febrúar síðastliðinn. Sorgin er mikil, enda benti fátt til þess að komið væri að kveðju- stund og því gafst mér ekki tími til að kveðja hana og segja henni allt sem mig langaði að segja henni. Það er þó von mín og trú að hún hafi vitað hvaða hug ég bar til hennar, enda var alltaf sterkur þráður á milli okkar sem aldrei slitnaði. Hún kom mér í heiminn og frá fyrsta degi var henni umhugað um mína velferð sem og allra sinna nánustu. Það voru ekki margir dagarnir sem við annaðhvort töluðum ekki saman í síma eða hittumst í eigin persónu. Ég er enn að átta mig á því að því er nú lokið og það er næstum óbærilegt til þess að hugsa. Mömmu þótti óendanlega vænt um sína nánustu fjölskyldu og vini og var sú sem tengdi sam- an alla þræði í okkar litlu fjöl- skyldu. Það veitti henni ómælda gleði að sjá afkomendur og ætt- ingja ganga vel í lífinu og ánægð- ust var hún þegar hún náði að gleðja ástvini sína, enda með ein- dæmum fórnfús og hjálpsöm. Nú þegar ég sest niður til að skrifa þessi orð hellast yfir mig minningar af okkar samveru- stundum í gegnum tíðina. Þær minningar eru of margar til að tí- unda hér, en hafa veitt mér hugg- un síðustu daga og þakklæti í hennar garð. Minningar frá sam- verustundum fjölskyldunnar, ferðalögum og svo fjölmörgum öðrum atburðum standa mér nú ljóslifandi fyrir hugskotssjónum og ég veit að þær eiga eftir að lifa með mér um alla framtíð. Síðustu mánuðir hafa verið okkur öllum erfiðir en þá dvaldi mamma inni á Landakoti eftir beinbrot og heimsóknir þangað voru gríðarlega takmarkaðar. Svo takmarkaðar að barnabörnin sem voru henni svo kær fékk hún ekki að sjá í eigin persónu í rúma fimm mánuði. Það veit sá sem allt veit að það reyndist henni erfitt ekki síður en okkur, sem og að fá ekki að hitta fjölskyldu og vini reglulega líkt og áður. Um miðjan janúar fékk hún inni á Hrafnistu í Reykjavík og var það einlæg von okkar allra að þar myndi hún eiga ánægjulegt ævikvöld, en dvölin þar varð ekki nema rétt rúmar tvær vikur. Takk fyrir allt og allt elsku mamma. Þú lifir áfram í hugum og hjörtum okkar allra. Benedikt. Nokkur kveðjuorð til vinkonu og vinar, hennar Ásdísar okkar. Við Ásdís kynntumst ekki fyrr en á miðjum aldri, þá báðar giftar og búnar að eiga börn. Með okk- ur tókst mikil vinátta og ákváðum við að hittast með öðr- um sameiginlegum vinum og spila félagsvist. Vorum við tutt- ugu saman eða tíu pör. Auðvitað voru heiðursverðlaun og skamm- arverðlaun. Ég slapp við að halda boðið á heimili okkar Bjössa því þeim fannst nóg að ég bauð öllum í þorrablót á bóndadag ár hvert. Núna á síðasta þorrablóti árið 2020 var Ásdís mætt ásamt Gunnari og hélt hún smá ræðu sem þakklæti fyrir samveru- stundirnar og minntist þeirra nokkurra sem þegar voru fallnir frá. Svo var ræðan áhrifarík að ég hreinlega táraðist. Það var alltaf stutt í brosið hjá henni Ás- dísi minni. Þakka ég góð og falleg kynni og óska henni góðrar ferð- ar. Að lokum vil ég senda hlýja strauma til Gunnars og fjöl- skyldu, megi guð styrkja ykkur í sorginni. Áslaug H. Kjartansson. Gulli og perlum að safna sér, sumir endalaust reyna, vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Í dag kveðjum við Ásdísi, kæra vinkonu sem við höfum fylgst að með frá barnaskóla, eða tæp 73 ár. Fljótlega stofnuðum við saumaklúbb sem varaði ævina út, fylgdumst hver með annarri í barneignunum og öðrum stórum og smáum viðburðum í lífinu. Fylgdumst með þegar hún kynntist Gunna sínum og eign- aðist synina tvo, Benedikt og Davíð sem allir reyndust henni svo frábærlega vel, hver á sinn hátt. Hún gekk í gegnum ýmiskon- ar veikindi en þrátt fyrir það telj- um við hana hafa verið hamingju- sama konu. Ásdís hafði sterka réttlætis- kennd. Hún var hrifnæm og for- vitin um lífið en líka viðkvæm og táraðist auðveldlega, t.d. yfir fal- legri tónlist og þegar hún var að segja frá yndislegu barnabörn- unum sínum. Með þessum orðum kveðjum við Ásdísi, þökkum góða sam- fylgd og vottum Gunna, sonun- um, tengdadætrum og barna- börnum okkar innilegu samúð. Margrét (Magga) og Unnur. Djúp depurð, sár tómleiki og söknuður fylgir brotthvarfi Ás- dísar vinkonu okkar til margra áratuga. Glaðlyndi hennar og tryggð hefur fylgt okkur frá fyrstu kynnum. Minningarnar eru fjársjóður okkar allra í þessu lífi og þær eigum við. Augnablikið hverfur. Fletti- bókin er löng. Störf Ásdísar mörg; afgreiðslustörf hjá Verzl- unarbanka Íslands, flugfreyja hjá Loftleiðum og þularstörf hjá Sjónvarpinu. Við vinkonurnar kynntumst í háloftunum, þá ný- ráðnar flugfreyjur hjá Loftleið- um. Á þeim vinnustað voru starfsmenn samheldnir og vina- böndin sterk. Flug, vinna og ferðalög styrktu böndin, sem aldrei hafa rofnað. Fjölskyldurn- ar þekktust og hópurinn stækk- aði. Nú er skarð fyrir skildi. Við sjáum á bak kærri vinkonu, sem nú er kvödd með döprum huga. Eiginmanni hennar og vini okkar Gunnari, sonunum Benedikt og Davíð, tengdadætrum og börnum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Öll stöndum við saman í sorg. Marta María og Poul (Palli). Ásdís Hannesdóttir FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 11-16 virka daga Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BIRGIR LÚÐVÍKSSON, Sléttuvegi 23, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 15. febrúar klukkan 13. Allir eru hjartanlega velkomnir svo lengi sem pláss leyfir í ljósi aðstæðna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið. Helga Brynjólfsdóttir Lúðvík Birgisson Sigríður Birgisdóttir Brynjar Gauti Sveinsson Guðríður Birgisdóttir Steingrímur Gautur Pétursson Unnur Jónsdóttir og afabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG MAGNÚSDÓTTIR frá Vindheimum í Skagafirði, lést á Grund 26. janúar. Útför hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ólafur Jóhannes, Anna Maggý, Selma Sigrún og Bragi Geir Gunnarsbörn Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir og amma, KRISTJANA ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Reyrengi 34, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 15. febrúar klukkan 13 og verður jafnframt streymt á https://youtu.be/jjAUNegHizU. Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat. Stefán Ásgeirsson Olsen Hanna Jóna Ragnarsdóttir Kristján Páll Kristjánsson Una Olsen Meisam Rafiei Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir Katrín Diljá Kristjánsdóttir Máni Rafiei Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINN JÓHANN SVEINSSON bifreiðarstjóri, Vallarbraut 4, Seltjarnarnesi, varð bráðkvaddur á heimili sínu laugardaginn 6. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Lilja I. Sveinsdóttir Margrét Þóra Sveinsdóttir Sævar Már Kjartansson Sigurður Ingi Sveinsson Signý Leifsdóttir Logi Arnar Sveinsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.