Morgunblaðið - 11.02.2021, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 11.02.2021, Qupperneq 56
56 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 ✝ Gunnar Jó-hannsson fæddist 12. febrúar 1935 á Efri-Fljót- um í Meðallandi. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 30. janúar 2021. Foreldrar hans voru Vilborg Guð- mundsdóttir, f. 1893, d. 1977, og Jóhann Þor- steinsson, f. 1897, d. 1995. Systkini Gunnars eru: Páll, f. 1924, d. 2013, Ingibjörg, f. 1925, d. 2015, Óli Ragnar, f. 1926, d. 2009, Jóhanna, f. 1928, d. 2007, Sigurlína, f. 1929, og Steinþór, f. 1932, d. 2016. Fyrri eiginkona Gunnars var Ástdís Guðmannsdóttir, f. 1941, d. 2000. Þau skildu. Sonur þeirra er Einar, f. 1966. Eig- inkona Einars er Elísabet Þórð- ardóttir, f. 1965, og eiga þau Jakob Sturlu, f. 1991, sem er í sambúð með Sonju B. Guttesen, f. 1985, og Karen Eir, f. 1998, sem er í sambúð með Kristjáni Þór Guðmundssyni, f. 1992. Eftirlifandi eiginkona Gunn- ars er Inga Elíasdóttir, f. 26. mars 1943. Þau hófu sambúð 1974 og gengu í hjónaband 1978. Einar ólst upp hjá Gunn- ari og Ingu frá 12 ára aldri. Sonur Gunnars og Ingu er Þor- steinn, f. 1979. Eiginkona hans er Ragnheiður Pétursdóttir, f. 1981, og eiga þau Jóhann Kára, f. 2006, og Birki, f. 2009. Gunnar ólst upp hjá foreldrum sín- um í Meðallandi, fyrst á Efri-Fljót- um en seinna í Sandaseli. Hann stundaði ýmsa al- menna verkamannavinnu þar til hann flutti til Reykjavíkur snemma á sjöunda áratugnum og fór í Iðnskólann og lauk þaðan sveinsprófi í bifvélavirkjun 1967. Hann öðlaðist meistara- réttindi í bifvélavirkjun 1972. Gunnar vann við fag sitt á ýms- um verkstæðum í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum og sér- hæfði sig eftir því sem árin liðu í vöru- og hópferðabílum. Undir lok áttunda áratugarins flutti Gunnar sig til SVR þar sem hann vann til starfsloka 2006. Gunnar og Inga bjuggu fyrst í Reykjavík, síðan um skeið á Akranesi en fluttu svo í Kópa- vog 1977 þar sem þau bjuggu síðan. Gunnar söng með ýmsum kórum í gegnum árin og um langt árabil með Samkór Kópa- vogs og síðar kórum Kópavogs- kirkju og Digraneskirkju. Útför Gunnars fer fram frá Lindakirkju í dag, 11. febrúar 2021, klukkan 13. Streymt er frá athöfninni: https://www.lindakirkja.is/utfarir Virkan hlekk á streymi má finna á https://www.mbl.is/andlat Sumir telja að sterkustum vinaböndum bindist manneskj- urnar ungar að árum. Þá bralla þær eitt og annað saman, kynn- ast kostum og göllum hver ann- arrar, styrkleikum og veikleik- um, og læra að meta þann fjársjóð sem felst í samstöðu, hjálpfýsi og vináttu. Sá sem hér er kvaddur, hann Gunnar okkar, varð þó ekki samferðamaður okk- ar fyrr en 1993 þegar leiðir lágu saman á lútherskri hjónahelgi. Samfylgdin við þau Ingu og Gunnar hefur því eftir nokkrar vikur varað í 28 ár og á margan hátt verið einstök. Það er óneit- anlega dálítið sérstakt að kynn- ast rígfullorðin fólki sem unnt er að bera slíkt traust til að hægt er að opna því leyndustu hólf hjart- ans fullviss þess að þau orð sem féllu af munni manns í trúnaði munu aldrei endurtekin í eyru nokkurs utan hópsins. Gunnar var enginn hávaða- maður, en traust og hlý fram- koma hans umvafði alla þá sem í návist hans komu. Hann var framúrskarandi vandaður ein- staklingur, fremur fátalaður en kunni þá list að velja orð sín af kostgæfni svo að eftir var tekið. Og honum mæltist oft spaklega, þar var ekkert of eða van. Gunn- ar var líka þeirrar gerðar að ef hann gat ekki lagt gott til ein- hvers þá þagði hann. Í orðaflaumi og digurbarkalegri umræðu sam- tímans eru slíkir menn eins og hann fágætir. Þrátt fyrir hógláta framgöngu átti hann þó áreiðan- lega sitt skap en kunni að fara með það. Við leiðarlok er margs að minnast. Við í Kærleikshópnum Fimmunni kveðjum nú góðan og kæran vin, þökkum fyrir inni- haldsríka vináttu og samferð, tryggð og trúnað. Þökkum marg- ar ljúfar samverustundir og varð- veitum minningu um þær. Við er- um þess fullviss að Denna og Sveinn, þau sem á undan eru gengin úr hópnum okkar, hafi tekið vel á móti honum Gunnari. Við sendum Ingu, Einari, Þor- steini og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðj- um þess að minning um góðan mann og fjölskylduföður styðji þau í sorginni. Megi blessun Guðs fylgja Gunnari og leiða hann inn í eilífa ljósið. Kristín, Haukur, Alda og Jóhann. Gunnar Jóhannsson ✝ Hólmfríðurfæddist á Upp- sölum á Húsavík 11. september 1925. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Eir í Reykja- vík 31. janúar 2021. Foreldrar henn- ar voru Valdemar Jósafatsson tré- smiður, f. 1875, d. 1965, og Árnína Kristín Jónsdóttir, f. 1896, d. 1939. Hálfbræður Hólmfríðar, samfeðra: Jón Björgvin Valde- marsson, f. 1906, d. 1974. Olav Valdemarsson, f. 1909, d. 1943. Hálfbræður Hólmfríðar, sam- mæðra: Jón A. Ísfjörð, f. 1920, d. 1971. Sigurpáll A. Ísfjörð, f. 1922, d. 2005. Alsystkini Hólm- fríðar: Steinunn Valdemarsdótt- ir, f. 1928, d. 1984, Aðalsteinn Hilmar Valdemarsson, f. 1930, d. 2020, Valdemar Valdemars- þeirra: Hólmfríður Lilja, Stein- ar Óli. Auður Dúadóttir, f. 1952. Maki, Þórir Vilhjálmur Þór- isson, f. 1957. Eiginmaður Auð- ar var Sigurður Sigurðsson. Þau skildu. Börn Auðar og Sigurðar: Birgir Örn, Sólveig Rósa, Tinna Rut, Jón Þór. Börn Hólmfríðar og Jóhann- esar: Ólafur J. Straumland, f. 1959. Sambýliskona Guðrún Magnúsdóttir, f. 1961. Eig- inkona Ólafs var Katrín Mar- ísdóttir. Þau skildu. Börn Ólafs og Katrínar: Elísabet og Gunnar Marís. Gunnar J. Straumland, f. 1961. Eiginkona Gunnars er Anna Guðrún Torfadóttir, f. 1954. Sólveig Straumland, f. 1962, d. 1963. Hólmfríður starfaði lengst af hjá Pósti og síma, sem talsíma- vörður, póstafgreiðslumaður og skrifstofumaður. Hún var búsett á Húsavík til 1988, síðan á Reyk- hólum og loks í Reykjavík. Síð- ustu tólf ár ævi sinnar átti hún heima á Hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík. Útför Hólmfríðar Valdemars- dóttur verður frá Grafarvogs- kirkju í dag, 11. febrúar 2021, kl. 15. son, f. 1931, d. 1932, Áslaug Valdemarsdóttir, f. 1933, d. 1996. Sambýlismaður Hólmfríðar var Benedikt Gunn- arsson, f. 1921, d. 1995. Hólmfríður giftist 1950 Dúa Axel Björnssyni, f. 1923, d. 2000. Þau skildu. Hólmfríður giftist 1960 Jóhannesi Marinó Andréssyni Straumland, f. 1922, d. 1994. Þau skildu. Börn Hólmfríðar og Dúa: Árnína Kristín Dúadóttir, f. 1945. Maki, Sigurður Þór Pét- ursson, f. 1944, d. 2010. Börn þeirra: Þóra Kristín, Oddrún Ýr, Pétur Már. Björn Dúason, f. 1950. Sonur Björns og Sigur- rósar Jónasdóttur: Jónas Bjarki. Björk Dúadóttir, f. 1951, d. 2000. Maki Jón Carlsson. Börn Elsku amma Didda, nú er kom- ið að kveðjustund. Við systkinin vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að búa undir sama þaki og hún amma í mörg ár. Amma var einstök kona og það voru forréttindi að fá að alast upp í nálægð við hana. Alltaf var hægt að leita til ömmu enda var hún ljúf, geðgóð, hafði góða nærveru og var til staðar þegar á reyndi. Amma var ein af þeim sem gerði aldrei mannamun né hall- mælti hún neinum enda bæði vin- sæl og vinamörg. Það er margs að minnast þegar litið er um öxl og þá sérstaklega úr Sólbrekku á Húsavík. Alltaf var mikil tilhlökkun í kringum laufa- brauðsgerðina fyrir jólin en þá stóð amma í eldhúsinu og var í ess- inu sínu. Hún bjó til deig allt frá grunni, hnoðaði, flatti út og steikti stökkar laufabrauðskökur fyrir alla fjölskylduna. Það sama mátti segja um sláturgerðina, þar sem þvottahúsið í Sólbrekku var þá undirlagt með vömbum, innmat ásamt öðru tilheyrandi og þá var amma við stjórnvölinn. Þessu tengt eru margar skemmtilegar minningar sem okkur þykir vænt um að rifja upp. Ömmu var margt til lista lagt, áttum við systkinin og langömmubörn til dæmis fallegar flíkur og muni sem hún saumaði og prjónaði í gegnum tíðina. Eftir að við fluttum suður heim- sóttum við ömmu reglulega til Húsavíkur þar sem hún tók á móti okkur með kostum og kynjum. Þegar hún svo flutti suður nutum við oftar samveru við hana ásamt fjölskyldum okkar sem einnig kunnu að meta gestrisni hennar og góða mannkosti. Um leið og við kveðjum ömmu Diddu með trega er gott að geta yljað sér við fallegar minningar um sterka og vandaða konu sem við eigum öll eftir að sakna. Kveðja til ömmu: Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili) Þóra Kristín, Oddrún Ýr, Pétur Már og fjölskyldur. Við stöldrum við, eins og föru- nautar gjarnar gera, eftir göngu gegnum lífið og við hver gatnamót er minning sem er þess virði að rifja upp. Við munum hlýja sólar- daga, hlátur og gleðifagnað með fjölskyldu og við hrífumst með. Við kynnumst nýju fólki, tengjumst vinaböndum og erum allt í einu orð- in hluti af hópi fólks, fjölskyldu sem við þekktum ekkert til áður, en er nú okkar. Hvað gerðist áður en við komum í þennan hóp? Hver er saga þeirra sem við tengjumst nú tryggðarböndum og syrgja ætt- móður sína? Didda tengdamóðir mín gaf mik- ið af sér, hún tjaldaði alltaf því besta og naut þess að vera gest- gjafi. Heimili hennar var fínt heim- ili og hún Didda var alltaf fín. Hún var ákaflega umhyggjusöm og fjöl- skyldan, börn og barnabörn voru hennar mesta dýrmæti. Gleðin skein úr andliti hennar þegar lítil hönd smeygði sér í ömmulófa. Hún var góð amma og margar flíkurnar voru prjónaðar á svip- stundu og voru komnar á lítinn ömmustrák eða ömmustelpu á met- tíma. Didda hafði mjög gaman af að ferðast og hún las mikið þegar heilsan var í lagi. Ég minnist góðra daga með tengdamóður minni og telst lánsöm að hafa átt hennar vinskap. Við dætur mínar og barnabörn, sem nutum þess að eiga Diddu að sem ömmu, minnumst hennar með virð- ingu, hlýju og þakklæti. Samúðar- kveðja til ástvina góðrar vinkonu. Anna Guðrún Torfadóttir. Hólmfríður Valdemarsdóttir María Olgeirs- dóttir lést í Reykja- vík 4. desember 2020 og var útför hennar gerð frá Bústaðakirkju 10. desember síðastliðinn. Segja má að lífshlaup Maríu og Stræt- isvagna Reykjavíkur sem síðar urðu Strætó bs hafi verið sam- ofið um hennar daga. Móðir hennar Jóhanna vann langan starfsdag hjá SVR. Jóhanna var burðarás í skrifstofuhaldi SVR um áratuga skeið. María eða Mæja eins og hún var oftast köll- uð af samstarfsmönnum var einkabarn Jóhönnu og myndaði fljótt tengsl við þann vinnustað. Þá vann Laufey föðursystir Mæju einnig á skrifstofunni. Strax og aldur leyfði hóf Mæja störf hjá SVR og kom alfarið þangað er skólagöngu lauk. Mæja nam við Kvennaskólann og er ekki að efa að hún hafi verið öflugur nemandi. Hún vann hjá SVR og Strætó bs í rúm 50 ár. Verkefnin voru mörg og annaðist Mæja öll þau fjölmörgu verkefni sem henni voru falin af einstakri kostgæfni, nákvæm og fær. Á þeim tíma var tekið á móti öllu fé sem kom í fargjaldabaukana í vögnunum á skrifstofu SVR, það flokkað og talið, stundum hundr- uð kílóa eftir daginn. Til þess var notaður búnaður sem þætti for- vitnilegur í dag. Skiptimiðar blásnir frá með þar til gerðum búnaði, mynt sigtuð þannig að seðlar skildust frá mynt. Svo þurfti búnað til að flokka mynt- ina eftir verðgildi og annan bún- að til að telja. Nú heyra þessi vinnubrögð sögunni til. Síðan María Olgeirsdóttir ✝ María Olgeirs-dóttir fæddist 30. september 1947. Hún lést 4. desember 2020. Útför Maríu fór fram 10. desember 2020. þurfti að sinna upp- gjöri eftir hvern dag. Segja má að þetta hafi verið sér- stakur og einstakur heimur. Þarna þurfti traust fólk, örugga vinnuferla, rammgerðan búnað og heiðarleika. Mæja var um langt skeið ritari for- stjóra, á þeim tíma sem vélrita þurfti öll bréf og að- stoðaði við lausn flókinna við- fangsefna. Rita þurfti fundar- gerðir stjórnar og undirbúa fundi. Þar naut sín færni Mæju, öryggi til verka og strangur heiðarleiki. Kannski kom það ekki alveg í opna skjöldu er kom að maka- vali hvar verðandi eiginmaður starfaði. Hreiðar Albertsson eig- inmaður Mæju var starfsmaður SVR þegar leiðir þeirra lágu saman. Einkadóttir þeirra, sem ber nafn Jóhönnu ömmu sinnar, heldur uppi tengslunum við Strætó, en hún er öflugur stjórnandi hjá stærsta verktaka sem ekur fyrir Strætó bs. Góðs eins er að minnast eftir langt og farsælt samstarf. Mæja var alltaf örugg og áreiðanleg í öllum verkefnum. Það er lán hverjum vinnustað að eiga í sín- um hópi starfsmann með starfs- færni og áreiðanleika sem Mæja lagði til á löngum ferli sínum í þágu samgangna á höfuðborg- arsvæðinu. María var glæsileg kona, ætíð vel til höfð, bar sig höfðinglega og vakti athygli fyr- ir myndarskap í framgöngu. Það liðu fáeinar vikur frá því hún greindist veik þar til hún lést. Eiginmanni hennar, dóttur, vinum og vandamönnum eru sendar samúðarkveðjur. Megi minningin um Maríu Olgeirs- dóttur fylgja okkur fram á veg. Guðmundur Sigurjónsson Hörður Gíslason. Sigurður Árna- son viðskiptafræð- ingur lést í Reykja- vík 11. janúar 2021. Leiðir okkar lágu saman hjá Strætisvögnum Reykjavíkur, sem síðar varð Strætó bs. Oftast var hann kall- aður Siggi Árna, stundum einnig 35, en vagnstjórar höfðu hver sitt númer, sem þeim þótti vænt um og margir kunnu hvaða númer tengdist hverjum. Siggi var starfsmaður í hlutastarfi og fullu starfi í 44 ár hjá SVR og Strætó bs. Hann var óvenju vinnusamur. Þannig var að á námsárunum ók hann strætisvagni á höfuðborg- arsvæðinu. Þrátt fyrir langan starfsdag á Skólaskrifstofu Reykjavíkur um áratugi sleppti hann ekki strætóstýrinu. Kvöld og helgar voru góður tími til að aka strætisvagni. Þá sótti hann vagnstjóra til vinnu árla morguns um áratugi. Að endingu kom hann alfarið til Strætó, sinnti akstri en valdist einnig til verk- stjórnar í akstri. Svo færði hann bókhald Strætó í nokkur ár. En þetta var ekki allt í vinnuseminni. Hann gerði skattskýrslur og að- stoðaði marga í þeim efnum. Fjöldi samstarfsmanna voru meðal annarra sem nutu hjálp- semi hans og greiðvikni, trúnaðar og færni. Enda varð hann vinur margra samstarfsmanna. Siggi var vel gerður maður, þreklegur, góðlegur og ætíð vel tilhafður. Svo hafði hann til að bera einstakt fas, ætíð í jafnvægi, kurteis og hófsamur í orðræðu. Sigurður Árnason ✝ Sigurður Árna-son fæddist 18. október 1945. Hann lést 11. janúar 2021. Útför hans fór fram 26. janúar 2021. Lét ekki endilega mikið fyrir sér fara, en menn lögðu við hlustir um það sem hann hafði fram að færa. Kom með nestispakkann sinn, allt snyrtilegt og vel gert, og gaf sér tíma. Eins í allri um- ræðu og stjórnun, enginn asi en allt gekk vel fram. Allt- af sama yfirvegunin. Vaktfor- mennirnir vildu hafa hann á sinni vakt og svo er hann var alkominn tll Strætó þótti sjálfsagt að hann settist í stól vaktformanns. Siggi var alla jafna dulur um sína hagi, en víst er að margir trúðu honum fyrir sínum málum. Slíkt lagði grunn að góðum kunn- ingsskap og fjölmargir í hópi vagnstjóra hjá Strætó töldu hann vin og góðan félaga. Siggi var ein- staklega talnaglöggur, mundi kennitölur, símanúmer og upp- rifjun eldri bílnúmera í Mýrdaln- um kallaði fram góðar minningar. Þegar sest var niður í góðu tómi og rabbað um stund leið gjarnan ekki á löngu þar til Litli-Hvamm- ur kom til umræðu. Þar lágu hin- ar djúpu rætur. Þar var uppvöxt- urinn, vakningin til lífsins og mannlíf, sem mátti finna að var Sigga kært að minnast. Saga Mýrdalsins, fuglinn og ævintýri. Gott mannlíf og gott fólk. Það var á hreinu. Það komust færri að en vildu frá Strætó að fylgja honum síð- asta spölinn vegna þeirra tak- markana sem nú eru uppi. Minningin um góðan mann fylgir okkur. Aðstandendum Sig- urðar eru sendar samúðarkveðj- ur. Megi hann í friði fara og gott eitt mæta honum. Guðmundur Sigurjónsson, Hörður Gíslason. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.