Morgunblaðið - 11.02.2021, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Áhættustjóri
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir
háskólamenntaða. Allir sem lokið hafa
grunnnámi á háskólastigi geta skráð sig í
sjóðinn.
Lífverk var fyrsti lífeyrissjóðurinn sem
byggði á aldurstengdum réttindum, tók
upp sjóðfélagalýðræði og rafrænt
stjórnarkjör.
Sérstaða Lífsverks er m.a. hár ávinningur
réttinda og val um leiðir fyrir
skyldusparnað.
Sjóðurinn er ört vaxandi og nemur hrein
eign í árslok um 120 milljörðum króna.
Gildi sjóðsins eru:
Heilindi – jákvæðni – ábyrgð
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna
á heimasíðu hans www.lifsverk.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
Lífsverk lífeyrissjóður óskar eftir að ráða öflugan einstakling í nýtt og spennandi starf áhættustjóra. Í starfinu
felst einnig greiningarvinna og eftirfylgni á sviði eignastýringar.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is)
í síma 511 1225.
• Ábyrgð á starfssviði áhættustýringar
• Greining, mæling og skýrslugjöf um áhættu
• Mótun og umsjón með áhættustefnu og
áhættustýringarstefnu
• Frumathugun og greining nýrra fjárfestingarkosta
• Eftirfylgni með óskráðum eignum
• Flokkun eigna, skýrslugjöf og skoðun fjárfestinga
með tilliti til stefnu Lífsverks í ábyrgum fjárfestingum
• Aðstoða stjórn og stjórnendur við þróun og viðhald
á skilvirku eftirlitskerfi fyrir áhættu í rekstri sjóðsins
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá
og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður
með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Háskólapróf á sviði fjármála, verk- eða tölfræði eða
sambærileg menntun. Meistarapróf er kostur
• Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni og
niðurstöður í tölum og texta
• Haldgóð starfsreynsla í eignastýringu eða á
fjármálamarkaði
• Sjálfstæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Góð færni í íslensku og ensku
• Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Slökkviliðsstjóri
Bæjarfélagið Fjallabyggð varð til við
sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og
Siglufjarðarkaupstaðar árið 2006.
Báðir bæir byggja afkomu sína að mestu
á sjávarútvegi, vinnslu fiskafurða og ýmis
konar þjónustu við þessar greinar. Í seinni
tíð hefur fjölbreytnin í atvinnulífinu aukist
og mikill vaxtarbroddur er í ferðaiðnaði.
Mikil náttúrufegurð er í Fjallabyggð og
margar góðar gönguleiðir eru á svæðinu
Á veturna er Fjallabyggð sannkölluð
vetrar- og skíðaparadís og draumur
útivistarmannsins. Afþreyingarmöguleikar
eru nánast ótæmandi. Í Fjallabyggð eru
einnig tveir níu holu golfvellir og tvær
sundlaugar, fjöldi safna, gallería,
veitingahús, hótel og verslanir.
Þann 1. september 2020 voru íbúar
Fjallabyggðar 2.000.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.fjallabyggd.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fjallabyggð auglýsir lausa til umsóknar framtíðarstöðu slökkviliðsstjóra Fjallabyggðar.
Slökkviliðsstjóri er yfirmaður slökkviliðsins og faglegur stjórnandi þess. Hann hefur yfirumsjón með og ber
ábyrgð á daglegum rekstri brunavarnarmála Fjallabyggðar. Mikil áhersla er lögð á áreiðanlega þjónustu við
bæjarbúa og fagleg vinnubrögð. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem er tilbúinn að taka
þátt í að stjórna og leiða faglegt starf.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ármann Viðar Sigurðsson, deildarstjóri tæknideildar (armann@fjallabyggd.is) og Elías
Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar (elias@fjallabyggd.is).
• Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun slökkviliðsins
• Ábyrgð á faglegri starfsemi ásamt menntun og þjálfun
slökkviliðsmanna
• Stjórn slökkvistarfs við eldsvoða og á vettvangi
mengunaróhappa á landi
• Eldvarnareftirlit sveitarfélagsins, skipulag, úttektir,
umsagnir og eftirfylgni
• Stefnumótun og áætlanagerð
• Samskipti við hagsmunaaðila
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Einnig skal fylgja afrit af leyfisbréfi og prófskírteini. Um er að ræða fullt starf sem hentar öllum kynjum.
Umsókn gildir í 6 mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
• Löggilding sem slökkviliðsmaður sbr. 17. gr. laga nr. 75/2000
og að lágmarki eins árs reynsla í slökkviliði sem löggiltur
slökkviliðsmaður
• Stjórnunarreynsla og þekking á rekstri
• Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg
• Þekking á yfirferð og eftirliti tækja og búnaðar æskileg
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði í starfi
• Leiðtogafærni, þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum
samskiptum
• Vilji til þess að tileinka sér nýjungar í starfi
• Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg