Morgunblaðið - 11.02.2021, Qupperneq 66
66 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Fæst í öllum helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum.
Ertu við tölvuna
allan daginn?
Hyabak® augndropar er ný aðferð
við meðhöndlun augnþurrks. Til þess
að koma jafnvægi á tárafilmuna er
notast við hýalúronsýru sem smyr
yfirborð hornhimnunnar og gefur
henni raka og aktínókínól sem
vinnur gegn útfjólubláum geislum
Nýtt
90 ára Sigurður er
fæddur og uppalinn í
Stöðvarfirði, en fluttist
um tvítugt til Reykjavík-
ur og býr nú í Laugar-
neshverfi. Hann starfaði
sem yfirverkstjóri hjá
ÍSAL frá stofnun þess til
65 ára aldurs. Áhugamál Sigurðar eru lax-
veiðar og ferðalög og hann er auk þess
mikill bridsspilari og hefur keppt á mótum
innanlands og utan.
Maki: Jónína Herborg Eiríksdóttir, f. 1931,
fyrrverandi heildsali og rak eigið fyrirtæki
um árabil.
Börn: Anna Sigríður, f. 1956, Aðalheiður
Steinunn, f. 1961, og Eiríkur, f. 1966.
Foreldrar: Aðalheiður Sigríður Sigurðar-
dóttir, f. 1903, d. 1988, og Kristján Þor-
steinsson, f. 1905, d. 1977. Þau voru bú-
sett á Löndum í Stöðvarfirði.
Sigurður
Kristjánsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Félagslífið er blómlegt um þessar
mundir, en þú ert ekki alveg viss hvers er
krafist af þér. Ef ekkert er að gert lognast
samband út af og þú getur engum um
kennt nema þér sjálfum.
20. apríl - 20. maí
Naut Það skiptir miklu fyrir framvindu
mála að þú farir að leikreglum því annars
fer allt úr böndunum og þú kemur engu
máli í höfn. Þú finnur fyrir leiða.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hlustaðu af samúð á fjölskyldu-
meðlimi. Allt, sem maður getur sigrast á í
huganum, getur maður sigrað í raunveru-
leikanum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú munt hugsanlega hitta áhuga-
verða manneskju í dag. Mundu að allir eiga
skilið leiðréttingu orða sinna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Íhugaðu hvernig þú vilt koma fyrir áð-
ur en þú hefst handa. Ef þú lítur fram hjá
eigin þörfum er lítið gagn í þér fyrir aðra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Njóttu samvista við einhvern sér-
stakan í dag. Makar og/eða nánir vinir eru
ekki sérstaklega samvinnuþýðir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur frumlegar hugmyndir um það
hvernig þú getir aukið tekjur þínar. Til að
vinna hjarta einhvers er best að vera ein-
læg/ur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur verið þægilegt að
hreiðra um sig í hægindastólnum og láta
tímann líða átakalaust. Fæst er eins og
virðist í fljótu bragði svo það skiptir sköp-
um að þú gefir þér nægan tíma.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fólkið í kringum þig hefur frá
nægu að segja en þú kýst að draga þig í hlé
og fylgjast með.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér finnst þú þurfa að vanda um
við barn eða ungling. Fólk er tilbúið til að
hjálpa þér og veita þér allan þann stuðning
sem þú þarft til að ljúka ákveðnu verki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Mundu að aðgát skal höfð í
nærveru sálar og fæst orð hafa minnsta
ábyrgð. Eitthvað sem þú álítur truflun gæti
verið það minnisstæðasta sem gerist í
þessum mánuði.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu það sem þér var alltaf sagt:
ef eitthvað er þess virði að framkvæma
það á maður að vanda sig.
Síðan lá þjálfaraleiðin í fæðingar-
bæinn Ólafsfjörð, en Leiftur hefur
eðlilega átt stóran hlut í hjarta Mar-
teins. „Þar var yndislegt að koma og
vera og þar eignaðist ég marga vini,
Eðvaldsson. Marteinn var fyrirliði
landsliðsins í 20 leikjum og skoraði
átta mörk.
Marteinn var kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins 1972 og varð
enn fremur Íslandsmeistari með
Fram sama ár. Hann lék með Fram
til 1976, hann spilaði með Royal
Union, 2. deildar félagi í Brussel í
Belgíu. Þar var hann þrjú keppnis-
tímabil en fór aftur að leika með
Fram 1979 og sama ár var hann
kjörinn knattspyrnumaður ársins í
annað sinn. Hann lék með Fram til
1983 og hafði þá verið fyrirliði stóran
hluta ferilsins. Hann varð fjórum
sinnum bikarmeistari með Fram.
Árið 1981 var Marteinn kjörinn
íþróttamaður Reykjavíkur.
Marteinn hóf þjálfun árið 1984 og
var spilandi þjálfari með Víði í Garði,
þar var mikill uppgangur meðan á
dvöl Marteins hjá félaginu stóð og
komst félagið upp í efstu deild undir
hans stjórn í fyrsta sinn. Næst tók
Marteinn við Fylki 1986, sem þá var
í þriðju efstu deild, og kom félaginu
líka upp í efstu deild í fyrsta sinn.
M
arteinn Elí Geirsson
fæddist 11. febrúar
1951 í Ólafsfirði.
Fyrstu mánuðina
bjó Marteinn í
Ólafsfirði hjá mömmu sinni og Mar-
gréti ömmu. Mamma hans flutti síð-
an til Reykjavíkur með drenginn,
þar sem pabbi hans bjó. „Við litla
fjölskyldan að norðan fluttum til afa
og ömmu, kjörforeldra pabba, á
Bollagötu 8 í Reykjavík. Þar bjó ég
fyrstu fimm árin mín. Pabbi byggði
hús á Sogavegi 200, sem var nánast
uppi í sveit á þeim árum. Þangað
flutti fjölskyldan og átti þetta eftir
að verða heimili mitt þar til ég flutti
að heiman árið 1970.
Smáíbúða- og Bústaðahverfið var
barnmargt og hreint frábært að búa
þar. Ég átti og á marga og góða vini í
hverfinu okkar og við lékum okkur í
fótbolta og öðrum leikjum. Strákur
sem var tveimur árum eldri en ég
æfði með Fram. Hann hafði þau
áhrif á mig að biðja mig að ganga
frekar í Fram en Víking, þar sem
Víkingur var í 2. deild en Fram í 1.
deild. Það var nóg, því metnaðurinn í
boltanum var mikill strax í æsku.
Flestir leikfélagar mínir og vinir
æfðu með Víkingi en það breytti því
ekki að þeir voru áfram vinir mínir
þrátt fyrir að ég veldi að æfa og spila
með Fram. Með Fram lék ég upp
alla yngri flokka, bæði handbolta og
fótbolta. Velgengni Fram var mikil á
þessum árum og vinskapurinn
sterkur og skemmtilegur.“
Knattspyrnuferillinn
Marteinn var í unglingalandsliði
Íslands 1968, þegar keppt var á
Norðurlandamóti á Laugardagsvelli.
Ísland spilaði til úrslita við Svía en
tapaði leiknum í vítaspyrnukeppni.
Marteinn varð hins vegar Norður-
landameistari í handknattleik pilta
árið 1970 en eftir það sneri hann sér
alfarið að fótboltanum.
Hann var valinn í A-landslið Ís-
lands í fótbolta árið 1971 og spilaði
sinn fyrsta landsleik í Björgvin í
Noregi og sinn síðasta á Spáni 1982.
Hann lék alls 67 landsleiki, sem var
met, og var það ekki slegið fyrr en
árið 1991 og var þar að verki Atli
eins og reyndar hjá þeim félögum
sem ég hef verið hjá. Ég átti frábær-
an tíma hjá öllum þessum félögum
og fjölskyldan undi sér einnig vel
þegar við vorum í Belgíu.“ Árið 1994
tók Marteinn við liði Fram og þar
þjálfaði hann til byrjunar Íslands-
mótsins 1995 en lét þá af störfum.
Marteinn hætti allri þjálfun það ár
og má segja að hann hafi áttað sig á
því að það er líf eftir fótbolta.
Lífið fyrir utan fótboltann
Slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
starfið hefur verið aðalstarf Mar-
teins um ævina, en hann starfaði í
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í
yfir 40 ár. „Svona starf er erfitt,
sorglegt oft, en jafnframt svo gef-
andi. Það vill nú verða svo að vinnu-
félagar, sem starfa eins náið saman
og oft í miklum tilfinningarússíbana
eins og slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingafólk gerir, verða hin fjölskylda
manns. Vaktavinnan stangaðist
reyndar oft á við íþróttirnar og þá
var gott að eiga góða vinnufélaga,
sem skiptu við mig á vöktum. Ég
reyni að vera í samskiptum og hitta
mína fyrrverandi vinnufélaga og nýt
þess að spjalla við þá. Starfið er jú
stór hluti af lífi mínu.“
Áhugamálin biðu í hrönnum eftir
að Marteinn hætti að spila og þjálfa
fótbolta. „Sérstaklega var gaman að
geta farið að ferðast með fjölskyld-
unni á sumrin og njóta samvista við
hana. Íþróttaiðkun er samt nokkurs
konar lífsstíll fjölskyldunnar, þannig
að íþróttir urðu sjálfkrafa áhugamál
allrar fjölskyldunnar. Brids skipaði
stóran sess hjá mér og svo er það
veiðimennskan, lax-, silungs- og
skotveiði. Það sport hefur ekki vikið
frá mér síðan ég hætti afskiptum af
knattspyrnu og ég nýt þess að fara
með félögum mínum til veiða og ég
er heppinn með góðan hóp fyrrver-
andi samstarfsmanna sem fara ár-
lega í veiðiferðir. Það er ómetanlegt.
Veiðin er í dag aðaláhugamálið. Svo
er nú úr ansi miklu að velja af
íþróttasviðinu í sjónvarpinu.“
Fjölskylda
Eiginkona Marteins frá árinu
1971 er Hugrún Pétursdóttir, f.
Marteinn Geirsson, fyrrverandi knattspyrnumaður og slökkviliðsmaður – 70 ára
Fjölskyldumaðurinn Marteinn og
Hugrún ásamt börnum þeirra.
Átti landsleikjametið í níu ár
Fótboltamaðurinn Marteinn í leik
með Fram snemma á ferlinum.
Veiðimaðurinn Marteinn ásamt Har-
aldi Noregskonungi við Vatnsdalsá.
Slökkviliðsmaðurinn Marteinn
vann í slökkviliðinu í 40 ár.
50 ára Jón er Húsvík-
ingur, fæddur þar og
uppalinn og býr á
Húsavík. Hann er
grunnskólakennari að
mennt frá Kennara-
háskóla Íslands og er
með diplómu í upplýs-
ingatækni og kennslu frá Kennaraháskól-
anum í Ósló. Jón er fræðslufulltrúi Norð-
urþings og situr í stjórn Þekkingarnets
Þingeyinga og er virkur í starfi íþrótta-
félagsins Völsungs.
Maki: Elísa Rún Jónsdóttir, f. 1977, leik-
skólakennari á Grænuvöllum.
Börn: Anna Karen, f. 2001, Jóna Björg, f.
2003, og Höskuldur Ægir, f. 2008.
Foreldrar: Þorbjörg Björnsdóttir, f. 1934,
fv. verkakona, og Höskuldur Jónsson, f.
1934, fv. sjómaður. Þau eru búsett á
Húsavík
Jón
Höskuldsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is