Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 69
ÍÞRÓTTIR 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 Eins og sjá má hér á íþróttasíð- unum er eitt og annað að frétta af landsliðunum í hópíþrótt- unum. Jafnvel þótt heimsfarald- urinn geisi er reynt að halda úti alþjóðlegum keppnum við mis- jafnlega góðar undirtektir. Margir af snjöllustu hand- knattleiksmönnum heims létu í ljós furðu sína á því að Alþjóða- handknattleikssambandið skyldi halda sig við mótshaldið þegar HM karla fór fram í janúar. Allt hafðist það nú en vafalaust hefðu margir kosið að sleppa við ferðalög á milli landa um þessar mundir. Á tímum kórónuveirunnar er ábyggilega einstaklega krefjandi að vera landsliðsþjálfari. Þau störf fela gjarnan í sér tarna- vinnu þar sem reynt er að nýta þann tíma sem best þegar þjálf- ararnir fá landsliðsfólkið til sín. Síðasta árið hefur verið af- skaplega erfitt fyrir fólk í þess- um störfum að gera áætlanir þar sem óvissan hefur verið mikil. Nýráðinn landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, Þorsteinn Halldórsson, fær strax í fangið afboðun á alþjóðlegt mót þar sem hann hefði getað metið liðið og leikmenn í þremur leikjum gegn sterkum andstæðingum. Kollegar hans, Benedikt Guð- mundsson hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleik og Arnar Pét- ursson hjá kvennalandsliðinu í handknattleik, fengu einnig sinn skammt af mótbyr fljótlega eftir að þeir tóku við. Arnar hefur náð örfáum mótsleikjum og Benedikt stýrði sínu liði í mótsleikjum í Grikklandi þegar leikmenn gátu ekki einu sinni æft íþróttina hér heima Í landsliðsþjálfarastarfi fá menn sjaldan langan tíma. Maður getur fundið til með þeim, og afreks- fólki almennt, þegar lítið verður svo úr verkefnum. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslenska kvenna- landsliðið í knatt- spyrnu mun ekki taka þátt í al- þjóðlegu móti í Seden í Frakk- landi seinni hluta febrúarmánaðar eins og til stóð. KSÍ staðfesti þetta í gær en ásamt Íslandi áttu Frakkland, Noregur og Sviss að taka þátt í mótinu. Noregur ákvað að draga sig úr keppni vegna kórónuveirufarald- ursins og í framhaldinu ríkti mikil óvissa varðandi framhaldið. „Ákveðið hefur verið að A-lands- lið kvenna taki ekki þátt í fyrirhug- uðu æfingamóti í Frakklandi (Tour- noi de France) sem fara á fram dagana 17.-23. febrúar. Ákvörð- unin er tekin í ljósi stöðunnar í Evr- ópu gagnvart Covid-19,“ segir í til- kynningu frá Knattspyrnusam- bandinu. Næstu verkefni kvennalandsliðs- ins verða því vináttuleikir í apríl en alvaran tekur við síðsumars þegar undankeppni HM hefst. Ekki liggur fyrir hverjir andstæðingar Íslands verða í þeirri keppni. Þorsteinn Halldórsson tók á dög- unum við liðinu. sport@mbl.is Bakslag í undirbúningi landsliðsins Þorsteinn Halldórsson GOLF Kristján Jónsson kris@mbl.is „Undirbúningur er hafinn,“ segir Brynjar Geirsson, framkvæmda- stjóri Golfsambandsins, um Evr- ópumót stúlknalandsliða sem haldið verður að óbreyttu hérlendis 5.-9. júlí á næsta ári. Í miðjum heimsfar- aldri eru Íslendingar að taka að sér gestgjafahlutverk á viðamiklu al- þjóðlegu golfmóti og því virðist ríkja bjartsýni í hreyfingunni um að betri tímar séu í vændum á næsta ári hvað kórónuveiruna varðar. Mótið mun fara fram á Urr- iðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi en þar hefur áður verið haldið stórt al- þjóðlegt mót. Um er að ræða kepp- endur sem eru 18 ára eða yngri og er evrópska golfsambandið fram- kvæmdaaðili mótsins eins og ávallt þegar um Evrópumót er að ræða. „Oddur hélt Evrópumót kvenna árið 2016 og fengu menn mikið lof fyrir völlinn og framkvæmd móts- ins. Við vorum einstaklega heppin með veður þegar mótið fór fram og það skapaðist alger paradís uppi í Urriðaholti,“ bendir Brynjar á og segir að evrópska golfsambandið hafi haft samband við Odd. „Svona ferli byrjar á því að stjórn GSÍ ákveður að sækja um mótshald hjá EGA [evrópska golf- sambandið]. Þeir höfðu samband við Golfklúbbinn Odd og stjórn Odds samþykkti að taka mótið að sér. Þar með er búið að ræsa allar vélar og GSÍ, EGA og Oddur munu vinna náið saman að framkvæmd mótsins,“ segir Brynjar en búist er við keppendum frá rúmlega tuttugu þjóðum. „Þetta kostar sitt en þjóðirnar borga þátttökugjald og við horfum á þetta þannig að dæmið komi út á sléttu. Einn kosturinn við þetta er að okkar stelpur fá tækifæri til að spila hér heima á stóru móti. Einn- ig skapast þarna tækifæri fyrir yngri kylfinga til að fylgjast með bestu kylfingum Evrópu á þessum aldri. Mér heyrist á fólki í Oddi að mótshaldið árið 2016 hafi gert klúbbnum gott í alþjóðlegri mark- aðssetningu og kynningu á sínu svæði. Við ætlum að halda glæsilegt mót og ég held að Ísland sé spenn- andi áfangastaður þegar við sjáum fyrir endann á heimsfaraldrinum. Ég tel að við verðum í góðri stöðu á næsta ári og áhugi á mótinu verði mikill.“ Brynjar segir ánægjulegt að fá alþjóðleg kvennamót til Íslands þar sem stefnt hafi verið að því í golf- hreyfingunni á Íslandi að fjölga konum og stúlkum í íþróttinni. „Við höfum lagt áherslu á stelpugolfið og að fá konur í golfið og því er frá- bært að fá þetta mót. Einnig er virkilega flott fyrir Odd að fá annað stórt alþjóðlegt mót en mótshaldið 2016 styrki félagsstarfið í klúbbnum en þá komu um áttatíu sjálf- boðaliðar að mótshaldinu.“ Fengu mikið lof fyrir völlinn  EM stúlknalandsliða í golfi fer fram á Íslandi á næsta ári  Búist við kepp- endum frá meira en tuttugu þjóðum Ljósmynd/Golfklúbburinn Oddur Urriðavöllur Verður vettvangur EM stúlknalandsliða í júlí 2022. Björgvin Páll Gústavsson, lands- liðsmarkvörður í handknattleik, hefur gert langtímasamning við Val og gengur í raðir félagsins í sumar. Í tilkynningu frá Val kemur fram að Björgvin hafi gert fimm ára samning við félagið en Björgvin verður 36 ára í sumar. Mun Björg- vin einnig starfa í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Björgvin leikur nú með Haukum og mun ljúka keppnistímabilinu með Haukum en frá því var greint á dögunum að hann væri á förum í sumar. kris@mbl.is Gerir fimm ára samning við Val Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsso Reyndur Björgvin Páll Gústavsson er hvergi nærri hættur í boltanum. Dóra María Lárusdóttir hefur skrif- að undir nýjan samning við knatt- spyrnudeild Vals. Dóra verður 36 ára gömul í sumar og er að hefja átjánda tímabilið í meistaraflokki. Er hún leikjahæsta knattspyrnu- kona í sögu Vals með 310 leiki þar sem hún hefur skorað 117 mörk. Dóra getur jafnframt orðið sú næst- leikjahæsta í efstu deild kvenna frá upphafi fljótlega á næsta tímabili og vantar til þess einungis tvo leiki. Dóra María hefur sjö sinnum orð- ið Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari með Val. Sú leikjahæsta tekur slaginn Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Farsæl Dóra María er á sínu átj- ánda tímabili í meistaraflokki. Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið nítján leikmenn til æf- inga hjá A-landsliði kvenna og eru fimm nýliðar í hópnum. Markverðirnir þrír, Eva Dís Sig- urðardóttir Aftureldingu, Sara Sif Helgadóttir Fram og Saga Sif Gísladóttir Val og útileikmennirnir Harpa Valey Gylfadóttir ÍBV og Tinna Sól Björgvinsdóttir HK. Arn- ar gat ekki valið leikmenn sem spila með erlendum félagsliðum og þá gáfu þær Katrín Ósk Magnúsdóttir og Sigríður Hauksdóttir ekki kost á sér að þessu sinni. Næsta verkefni kvennalandsliðs- ins er 19.-21. mars í undankeppni HM en liðið er með Norður- Makedóníu, Litháen og Grikklandi í riðli. Leikið verður í Norður- Makedóníu.  Hópinn í heild sinni er að finna á mbl.is/sport/handbolti. Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Markvörður Sara Sif Helgadóttir er í landsliðshópnum. Arnar valdi fimm ný- liða í æfingahópinn Styrmir Snær Þrastarson, leik- maður Þórs frá Þorlákshöfn, er í ís- lenska landsliðshópnum sem mætir Slóvakíu og Lúxemborg í Pristina í Kosovó í forkeppni HM 2023 dagana 15.-21. febrúar. Er hann eini nýlið- inn í hópnum en Styrmir hefur vakið athygli í vetur fyrir framgöngu sína í Dominos-deildinni. Íslenska liðið mætir Slóvakíu 18. febrúar og Lúxemborg 20. febrúar en þetta eru lokaleikir Íslands í for- keppninni. Ísland er sem stendur í efsta sæti B-riðils forkeppninnar með 7 stig og þarf einn sigur til þess að tryggja sig áfram á næsta stig keppninnar en tvö efstu lið riðilsins fara áfram og leika í ágúst um sæti í undankeppn- inni í þriggja liða riðli. Landsliðsþjálfarinn Craig Ped- ersen valdi þrettán leikmenn til að taka þátt í leikjunum en gat ekki val- ið lykilmenn eins og Martin Her- mannsson og Hauk Helga Pálsson. Landsleikir stangast á við leiki Val- encia í Evrópudeildinni eins og fram hefur komið og því getur Martin ekki mætt í landsleiki á veturna. Haukur gaf ekki kost á sér og það gerðu heldur ekki Ægir Þór Stein- arsson, Kristófer Acox, Pavel Er- molinskij, Breki Gylfason og Collin Pryor. Í hópnum eru þó sex leikmenn sem leika erlendis en það eru Elvar Már Friðriksson, Hjálmar Stef- ánsson, Jón Axel Guðmundsson, Kári Jónsson, Sigtryggur Arnar Björnsson og Tryggvi Snær Hlina- son.  Hópinn í heild sinni er að finna á mbl.is/sport/korfubolti. sport@mbl.is Sex leikmenn gáfu ekki kost á sér Ljósmynd/KKÍ/Jónas Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason verður landsliðinu æ mikilvægari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.