Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 50
✝ Kristín HelgaWaage fæddist
28. nóvember 1939.
Hún lést á
hjúkrunar-
heimilinu Skógar-
bæ 16. febrúar
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Matthías
Waage, f. 20. júní
1907, d. 1. janúar
1983, og Ingibjörg
E. Waage, f. 23. júní 1913, d.
12. október 2012.
Systur Kristínar eru Sigríð-
ur Regína, f. 20. janúar 1932,
og Edda, f. 25. apríl 1934.
Eiginmaður hennar var
Örn Pálmi Aðalsteinsson, f.
30. mars 1941, d. 2. júlí 1993.
Þau eignuðust dæturnar El-
ísabetu, f. 2. janúar 1974, hún
á tvö börn, og Helgu, f. 16.
mars 1980, sambýlismaður
Ragnar Friðbjarnarson, hún
á tvö börn og hann tvö börn.
Fyrir átti Kristín Matthías
Waage, f. 22. júlí 1961, giftur
Bryndísi Fjólu Sigmunds-
dóttur, þau eiga
þrjú börn, og
Yngva Ármanns-
son, f. 23. maí
1969, og hann á
fjögur börn. Fyr-
ir átti Örn Arn-
dísi, f. 5. júní
1961, gift Eyjólfi
Þóri Eyjólfssyni
og þau eiga þrjú
börn, og Stefán,
f. 19. október
1963, giftur Laufeyju Naabye
og þau eiga þrjú börn.
Kristín bjó alla tíð í Reykja-
vík og vann í Sanitas og Gunn-
ars Majónesi. Hún naut þess að
ferðast og vera með fjölskyld-
unni sinni, bæði á Íslandi og í
Bandaríkjunum.
Kristín verður jarðsungin
frá Seljakirkju í dag, 25. febr-
úar 2021, útförinni verður
streymt á heimasíðu kirkj-
unnar, stytt slóð:
https://tinyurl.com/1gvtoh78
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Elsku mamma.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þinn sonur,
Matthías Waage.
Elsku mamma, takk fyrir allar
okkur góðu stundir. Á eftir að
sakna þín mikið, ég veit að það
hefur verið tekið vel á móti þér og
þú ert í góðum höndum. Ég elska
þig.
Mamma, elsku mamma,
man ég augun þín,
í þeim las ég alla
elskuna til mín.
Mamma, elsku mamma,
man ég þína hönd,
bar hún mig og benti
björt á dýrðarlönd.
Mamma, elsku mamma,
man ég brosið þitt;
gengu hlýir geislar
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
mér í huga skín,
bjarmi þinna bæna,
blessuð versin þín.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best,
hjartað blíða, heita –
hjarta, er sakna ég mest.
(Sumarliði Halldórsson)
Þín dóttir,
Helga.
Kristín Helga
Waage
50 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
✝ Guðjón ÖrnKristjánsson
fæddist á Arnar-
núpi í Dýrafirði 15.
desember 1922.
Hann lést á Vífils-
stöðum 8. febrúar
2021.
Foreldrar hans
voru Guðbjörg
Kristjana Guðjóns-
dóttir, f. 20.8. 1897,
d. 31.12. 1989, og
Kristján Guðmundsson, f. 27.12.
1889, d. 20.12. 1973, ábúendur
þar. Systkini Guðjóns voru: Guð-
mundur Jón, f. 1921, d. 1988, tví-
burabróðir Guðmundar Jóns,
drengur, f. 1921, sem lést í fæð-
ingu, Guðmunda, f. 1921, d.
1959, Sigríður Guðný, f. 1925, d.
2016, Elís Gunnar, f. 1926,
Bjarni Sverrir, f. 1928, Ingvar
Stefán, f. 1931, d. 1979, og Þor-
geir Björgvin, f. 1937. Uppeld-
isbróðir Guðjóns var Markús
Stefánsson, f. 1928, d. 2010, en
þeir voru systkinasynir.
Guðjón kvæntist 30. júní 1951
Rannveigu Ólafsdóttur, f. 03.05.
5) Örn Már, f. 10.3. 1967,
kvæntur Sigrúnu Svövu Gísla-
dóttur. Þeirra börn eru: Björn
Ívar, f. 1996, og Guðbjörg Halla,
f. 2000. Fyrir átti Örn Már dótt-
urina Elvu Þóru, f. 1994.
Guðjón ólst upp á Arnarnúpi
fram yfir fermingaraldur við öll
venjuleg sveitastörf eins og þau
voru á þeim tíma en fór þá að
fara að heiman til ýmissa starfa
til sjós og lands. Árið 1941 flutti
hann til Reykjavíkur. Fljótlega
eftir það fékk hann skipspláss á
togaranum Hilmi og var þar
viðloðandi til ársins 1946. Hann
var þó við nám í Héraðsskól-
anum á Núpi 1943-1944. Vorið
1947 lauk hann prófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík.
Síðla árs 1949 tóku sig upp
gömul veikindi frá því hann var
barn og var honum ráðlagt að
hætta að vinna til sjós. Eftir það
vann hann aðallega skrif-
stofustörf, lengst hjá Olíufélag-
inu Skeljungi hf. og Agli Vil-
hjálmssyni hf.
Guðjón tók virkan þátt í
starfi Oddfellow-reglunnar
stúkunnar nr. 9, Þormóðs goða,
sem hann gekk í árið 1976 og
gegndi þar ýmsum trún-
aðarstörfum.
Útför Guðjóns fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 25. febrúar
2021, og hefst athöfnin kl. 13.
1927, d. 23.7. 2015,
frá Hafnarfirði.
Börn Guðjóns og
Rannveigar eru:
1) Guðbjörg
Kristjana, f. 30.8.
1951, gift Stefáni
Þórissyni. Dætur
þeirra eru: Hulda,
f. 1977, og Rann-
veig, f. 1979. Dætur
Guðbjargar frá
fyrra hjónabandi
eru: Berglind, f. 1970, og óskírð
dóttir, f. 1971, d. 1972.
2) Ólafur Jón, f. 5.1.1954,
kvæntur Eyrúnu Ástu Bergs-
dóttur. Þeirra börn eru: Guðjón
Þór, f. 1978, Bergrún Ósk, f.
1981, og Rannveig, f. 1989. Son-
ur Eyrúnar er Erlingur Sig-
urgeirsson, f. 1973.
3) Katrín, f. 27.6. 1959.
4) Erla Björk, f. 8.11. 1965,
gift Gunnari Ólafssyni. Þeirra
börn eru: Sara Dröfn, f. 1995, og
Viktor Örn, f. 2000. Dætur
Gunnars frá fyrra hjónabandi
eru Anna Hlín, f. 1982, og
Thelma, f. 1984.
Kæri faðir, þá er komið að
kveðjustund. Það voru mikil for-
réttindi að fá að hafa þig svona
lengi hjá okkur en ég býst fast-
lega við því að þú hafir verið
hvíldinni feginn að lokum.
Heimsóknirnar til þín eftir
vinnu á Lækjasmárann voru
fastir liðir í hverri viku þar sem
við rifjuðum upp gamla tíma og
fórum yfir fréttir líðandi stund-
ar og stundum vorum við bara
þögulir og nutum kyrrðarinnar.
Þú varst ekki bara góður faðir,
þú varst líka góður leiðbeinandi
sem alltaf var hægt að leita til ef
maður var efins um eitthvað.
Kæri faðir, þú varst fullur af
visku, kærleik og heiðarleika.
Þú vildir allt fyrir aðra gera
og ég veit um marga sem eiga
þér mikið að þakka og er ég einn
af þeim. Frá því að þú kvaddir
okkur hafa minningarnar
hrannast upp. Þær minningar
mun ég geyma í hug og hjarta
um ókomna tíð.
Ég mun af fremsta megni
reyna að leiðbeina börnum mín-
um eins vel og þú leiðbeindir
mér og reynast þeim eins góður
faðir og þú varst mér. Kærar
þakkir fyrir allt elsku faðir.
Gráttu ekki
yfir góðum
liðnum tíma.
Njóttu þess heldur
að ylja þér við minningarnar,
gleðjast yfir þeim
og þakka fyrir þær
með tár í augum,
en hlýju í hjarta
og brosi á vör.
Því brosið
færir birtu bjarta,
og minningarnar
geyma fegurð og yl
þakklætis í hjarta.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Hvíl í friði.
Þinn sonur,
Örn Már Guðjónsson.
Elsku pabbi, þá skilur leiðir
okkar í bili. Það er alltaf ákveðið
tóm sem myndast þegar einhver
nákominn hverfur á braut til
feðra vorra.
Þá koma upp í hugann minn-
ingar sem maður getur yljað sér
við og þær eru svo sannarlega
margar.
Þú varst af þeirri kynslóð
sem þurfti að hafa fyrir hlut-
unum ef vel ætti að ganga og
víst er að þú lagðir allan þinn
metnað í að sjá fjölskyldunni
farborða.
Í barnæsku minni man ég að
þú starfaðir í tveimur til þrem-
um störfum í einu til að allir
hefðu nóg að bíta og brenna og
víst er að sjaldan skorti okkur
neitt.
Við krakkarnir gerðum okkur
kannski ekki grein fyrir því
enda ung og óreynd.
Þegar maður varð eldri og
reyndari skildi maður betur hve
mikill dugnaðarforkur þú varst.
Það er ekki öllum gefið að ná 98
ára aldri en trúlega hefur heil-
brigt líferni og óbilandi þraut-
seigja haft mikið um það að
segja. Mér fannst alltaf gaman
að líta inn hjá þér og fá mér
snarl og ræða gamla daga og þá
barst talið oft að æskuárum þín-
um á Arnarnúpi.
Þangað reikaði hugurinn og
þú hafði unun af því að fræða
mann um þá gömlu tíma.
Ég veit að mamma tekur á
móti þér með opnum örmum í
draumalandinu og þið eigið eftir
að njóta samvistanna þar ekki
síður en hér.
Ég kveð þig elsku pabbi og
þakka allt það góða er kennd-
irðu mér.
Þinn sonur,
Ólafur Jón Guðjónsson.
Með söknuði kveðjum við
yndislegan afa og þakklæti er
okkur efst í huga.
Við áttum margar góðar
stundir í gegnum tíðina. Afi
stjanaði mikið við okkur, skutl-
aði og sótti okkur á æfingar og
að þeim loknum tók amma á
móti okkur með kræsingar sem
afi hafði keypt að okkar óskum.
Það var notalegt að koma til
þeirra í Lækjasmára, við spil-
uðum mikið við afa og töluðum
um lífið og tilveruna.
Afi var traustur og góður vin-
ur sem alltaf hlustaði af ein-
lægni og var mjög áhugasamur
og stoltur af því sem við tókum
okkur fyrir hendur.
Við erum ævinlega þakklát
fyrir þann tíma sem við fengum
að njóta með elsku afa okkar og
vitum að amma tekur vel á móti
honum.
Takk fyrir allt elsku afi.
Þín
Sara Dröfn og Viktor Örn.
Elsku tengdapabbi og afi, það
er alltaf sárt og því fylgir djúp
sorg að missa náinn ástvin og
góðan vin.
Takk fyrir allar góðu stund-
irnar á Lækjasmára, kaffisop-
ana, nammið og spjallið, þetta
var svo notalegt með þína góðu
nærveru.
Við vitum að þú ert hvíldinni
feginn. Þú vildir komast sem
fyrst til elsku Rannveigar þinn-
ar, hún hefur beðið þín og tekið
á móti þér með opnum örmum.
Takk fyrir allt og allt.
Hvíl í friði
Sigrún Svava, Björn Ívar
og Guðbjörg Halla.
Guðjón Örn
Kristjánsson
✝ Halla Bene-diktsdóttir
fæddist 12. nóv-
ember 1933 í
Hvassafelli í Djúpa-
dal. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Hlíð 17. febr-
úar 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Benedikt
Hólm Júlíusson frá
Hvassafelli og Rósa
Jónsdóttir Thorlacius frá Öxna-
felli. Halla var elsta barn þeirra
hjóna.
4. desember 1954 giftist hún
Björgvin Runólfssyni frá Litla-
Sandfelli í Skriðdal.
Foreldrar Björgvins voru
Runólfur Jónsson
og Jónína Vilborg
Jónsdóttir.
Börn Höllu og
Björgvins eru:
Benedikt Hólm,
f. 13. mars 1955.
Jónína Vilborg f.
17. seprember
1960, maki Davíð
Stefánsson.
Jón, f. 9. janúar
1965.
Rúnar, f. 10. september 1970,
d. 29. nóvember 1971.
Barnabörnin eru fjögur og
barnabarnabörnin eru fjórtán.
Útför Höllu verður gerð frá
Glerárkirkju 25. febrúar 2021
kl. 13.30.
Amma í sveitinni, eða amma
í blokkinni eins og við kölluðum
hana síðustu árin, lést frekar
snögglega á Hlíð í síðustu viku.
Þrátt fyrir að hafa vitað að
þetta gæti gerst með aldrinum
var samt sem áður erfitt að fá
fréttirnar, hún var búin að
lenda í ýmsu síðustu árin en
hélt alltaf áfram.
Það var greinilega mikil
seigla í henni.
Okkur þótti virkilega leitt að
hafa ekki getað heimsótt hana
síðan í haust vegna Covid, en
við fengum reglulegar fréttir af
henni frá mömmu, sem var að-
alheimsóknagestur hennar í
samkomubanni, og starfsfólki
Hlíðar.
Það var vel hugsað um hana
þar og ákveðin huggun í því
fyrir okkur að sjá myndir af
henni á ýmsum viðburðum með
starfsfólki og öðru heimilisfólki
Hlíðar.
Amma í sveitinni bjó á
Dvergasteini með afa og Jóni
frænda þangað til fyrir nokkr-
um árum.
Í Dvergasteini er gullfallegt
útsýni í allar áttir. Það var
gaman að koma þangað að
klappa lömbunum sem hún
naut þess að sinna, heimsækja
kýr og kálfa sem reyndu að
sleikja okkur hægri vinstri, fá
að smakka jarðarber úr kass-
anum í garðinum hennar, skoða
blómin og læra að taka upp
kartöflur. Ömmu leið vel í garð-
inum sínum, sem var einkar
glæsilegur þegar hún gat sinnt
honum.
Allt með blómamynstri
minnir okkur á ömmu. Þó að
hún hafi verið farin að gleyma
ýmsu mundi hún líka ótrúleg-
ustu hluti sem hún hafði lesið,
hún var fróð kona og hafði
gaman af því að ræða þjóðfræði
og þjóðhætti fyrri tíma.
Þrátt fyrir að líf ömmu hafi
ekki alltaf verið auðvelt átti
hún fjölskyldu sem þótti vænt
um hana og tók henni eins og
hún var.
Hún vildi öllum vel og við er-
um þakklátar fyrir allt sem hún
kenndi okkur.
Við vonum að nú sé hún að
faðma litla drenginn sinn hann
Rúnar og vitum að minning
hennar mun lifa áfram í hjört-
um okkar.
Hún lifir í ást okkar mæðgna
á blómum og blómamynstri
sem við erfðum frá henni.
Dagný, Fanney, Sigrún
Harpa og Halla Björg.
Halla
BenediktsdóttirMinningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Sálm. 14.2
biblian.is
Drottinn horfir á
mennina af himnum
ofan til þess að sjá
hvort nokkur sé
hygginn, nokkur
sem leiti Guðs.
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir,
mágur og tengdasonur,
ÁSTÞÓR HLÖÐVERSSON
rafvirki,
Erluási 28, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 17. febrúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði mánudaginn 1. mars klukkan 15. Allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir. Einnig verður athöfninni streymt og hægt
er að nálgast virkan hlekk á https://youtu.be/Fe1VgBI9Jlo
S. Helga Guðmundsdóttir
Hilmar Ástþórsson Rakel Svala Gísladóttir
Elva Björk Ástþórsdóttir Lee Wade Barrett Lee
Berglind Alda Ástþórsdóttir Styr Orrason
Hlöðver Pálsson Sonja Gränz
Ólafur Ómar Hlöðversson
Geir Sigurpáll Hlöðversson Jóna Lind Sævarsdóttir
Vignir Þröstur Hlöðversson Lilja Björk Hauksdóttir
Hlöðver Hlöðversson Margrét Perla Kolka Leifsd.
Róbert Karl Hlöðversson Erla María Árnadóttir
Víóletta Ósk Hlöðversdóttir Sverrir Örn Gunnarsson
Guðmundur Tr. Ólafsson Alda Hauksdóttir