Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 26
Loftmynd/maps.is/Kópavogsbær Kópavogur 2021 Kópavogur og nágrannasveitarfélög hafa runnið saman. Loftmynd/Kópavogsbær Kópavogur 1988 Svona var bærinn þegar Birgir varð skipulagsstjóri. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Birgir Hlynur Fannberg Sigurðs- son, skipulagsstjóri Kópavogs, er sjötugur í dag en hann lætur form- lega af störfum um mánaðamót. Næstu vikur mun hann þó verða eftirmanni sínum innan handar enda að mörgu að hyggja í embættinu. Birgir Hlynur var ráðinn til Kópa- vogs árið 1988 sem starfsmaður skipulagsdeildar og var þá eini starfsmaðurinn á deildinni. Leið ekki á löngu þar til hann fékk tit- ilinn skipulagsstjóri Kópavogs og hefur hann því gegnt stöðunni í þrjá áratugi, ef frá eru talin nokkur ár sem skipulagsstjóri Reykjavíkur 2005-8. Birgir Hlynur fæddist í Reykjavík 25. febrúar 1951, sonur hjónanna Sigurðar Hauks Guðjónssonar og Kristínar Sigríðar Gunnlaugsdóttur. Þjóðþekktur kirkjunnar þjónn Sigurður Haukur var lengst af sóknarprestur í Langholti í Reykja- vík en áður á Hálsi í Fnjóskadal. Hann var þjóðþekktur maður, meðal annars fyrir kjarnyrtar ræður og sálarrannsóknir. Kristín Sigríður var bankastarfsmaður. Þegar Sigurður Haukur tók við prestakallinu norður í Fnjóskadal fluttist fjölskyldan með honum. „Ég er því Suður-Þingeyingur að hluta en ég á ættir að rekja þangað og í Svarfaðardalinn sem og suður í Hafnarfjörð,“ segir Birgir Hlynur um bernskuárin. „Við fluttum svo aftur í bæinn þegar ég var tólf ára gamall og bjuggum í Vogahverfinu. Ég bjó unglingsárin þar,“ segir Birgir Hlynur sem minnist Voganna með hlýju. Það hafi verið barnmargt og lifandi hverfi með uppátækjasömum unglingum og stórum bekkjum. „Þar var margt brallað. Vogaskól- inn var langstærsti gagnfræðaskól- inn, eins og þetta hét þá, með yfir þúsund nemendur. Reyndar eigum við nú skóla í Kórahverfinu, Hörðu- vallaskóla, sem er ekki ósvipaður að stærð hvað varðar nemendafjölda. Fann sig ekki í kennslunni Ég útskrifast sem stúdent 1974 frá Kennaraskólanum. Ég ætlaði að verða kennari. Systir mín Anna Mjöll er kennari, mjög góður kenn- ari, og var lengi aðstoðarskólastjóri í Snælandsskóla. Ég fann mig hins vegar ekki í kennslu og ákvað því að halda áfram námi. Fór í landafræði í Háskóla Íslands og tók jafnframt nokkra áfanga hjá verkfræðiskor. Meðal annars í samgönguverkfræði hjá Einari B. Pálssyni verkfræðingi og síðan í borgarskipulagi og borg- arsögu sem Gestur Ólafsson, arki- tekt og skipulagsfræðingur, kenndi. Þá kviknaði áhuginn á borgar- skipulagi,“ segir Birgir Hlynur. „Ég áttaði mig snemma á því að þú setur aldrei punkt á eftir skipu- lagi. Því lýkur aldrei heldur á það að vera lifandi.“ Spurður hvað hafi glætt áhuga hans á náminu segist Birgir Hlynur hafa yndi af því að sjá hugmyndir verða að veruleika. „Ég held að Gestur hafi kveikt áhugann á þessum fræðum. Hann lærði í Liverpool á Englandi og þangað lá leiðin hjá mér einnig. Ég fór í framhaldsnám í sömu deild og Gestur en tíu ár voru á milli okkar. Deildin hjá háskólanum í Liverpool er sú elsta á skipulagsfræðum í heiminum, hóf göngu sína 1909. Áður en ég lauk meistaranámi 1980 hafði Gestur sent mér bréf og spurt hvort ég vildi koma heim að vinna. En þá var búið að setja á laggirnar Skipulagsstofu höfuðborg- arsvæðisins, sem tekur til starfa á árinu 1980. Við störfuðum þar þrír – við Gestur og Þórarinn Hjaltason, samgönguverkfræðingur. Eftir fimm ár ákváðum við Þórarinn að söðla um og fara til borgarinnar. Hann fór þá yfir til borgarverkfræðings sem var Þórður Þorbjarnarson en ég fór til Þorvaldar S. Þorvaldssonar sem var þá yfir borgarskipulaginu. Síðan var mér boðin vinna hjá Kópavogsbæ árið 1988 en Kristján Guðmundsson var þá bæjarstjóri. Ég hef síðan unnið með Kristjáni, Sigurði heitnum Geirdal, Hansínu Björgvinsdóttur, Gunnari Inga Birg- issyni, Gunnsteini Sigurðssyni, Guð- rúnu Pálsdóttur og núverandi bæj- arstjóra; Ármanni Kr. Ólafssyni. Margra manna verk Ég minnist margra góðra sam- starfsmanna. Meðal annars vann ég náið með Kristni heitnum Magn- ússyni verkfræðingi sem á mínum upphafsárum hjá bænum var bæði bæjarfulltrúi og formaður skipulags- nefndar bæjarins,“ segir Birgir Hlynur sem er hógvær eins og margir af hans kynslóð. Ítrekar að árangurinn sé margra manna verk. Meðal góðra samstarfsmanna fyrstu árin hjá bænum voru Mál- fríður Kristiansen arkitekt og Aðal- heiður Kristjánsdóttir landslags- arkitekt og Smári M. Smárason, arkitekt sem kom til starfa 2000. „Við Smári höfum unnið sleitu- laust saman síðan þá. Ég byrjaði einn árið 1988 en nú erum við sjö auk mín á þessari deild, allt hörku- duglegt og hæfileikaríkt fólk,“ segir Birgir Hlynur um skipulagssviðið. Hefur yndi af hugmyndavinnu Þegar Birgir Hlynur kom á skipu- lagsdeildina árið 1988 bjuggu um 15.500 manns í bænum. Bærinn skiptist í Vesturbæ og Austurbæ og Suðurhlíðarnar, sem voru í uppbygg- ingu, að sögn Birgis. Nær engin byggð var frá Hafnarfjarðarvegi og upp að Elliðavatni í Vatnsenda. Nú búa um 40 þúsund manns í bænum og hafa fimm skólahverfi orðið til á vakt Birgis Hlyns: Smár- inn, Lindirnar, Salirnir, Kórarnir og Þingin/Hvörfin. Þá hefur þétting byggðar leitt til uppbyggingar íbúða- byggðar í Digraneshlíðum, í Lundi, í Bryggjuhverfinu í Naustavör, á Kópavogstúni, á Kársnesi, á Glað- heimasvæðinu og atvinnusvæðinu í Lindum, á svæðinu sunnan Smára- lindar og á kolli Nónhæðar. Fram undan er svo umbreyting á Hamra- borg og nágrenni. „Hraðinn í uppbyggingunni var slíkur að við sáum hugmyndir í gær verða að veruleika í dag,“ segir Birg- ir Hlynur. Íbúarnir séu bestu dóm- ararnir um skipulagið. Hverfin séu vinsæl og sú stefna að klára hverfin snemma hafi skilað góðri þjónustu. Hvert hverfi hafi miðju með skólum, þjónustu og verslunum. Bærinn hafi skipulagt byggð til ársins 2040 en þá sé reiknað með að íbúarnir verði orðnir liðlega 50 þúsund. „Þetta hef- ur verið skemmtilegur og gefandi tími, margs að minnast og margt að þakka. Nú tekur nýtt fólk við,“ segir Birgir Hlynur að lokum. Faðir úthverfanna í helgan stein  Birgir Hlynur Sigurðsson, skipulagsstjóri Kópavogs, er sjötugur í dag  Lætur af embætti 1. mars Morgunblaðið/Íris Fjölskyldan Frá vinstri: Müller, Sigríður með Marel, Birgir Hlynur með Hrafnhildi Köru. Aftari röð frá vinstri: Birgir Hrafn, Unnur Ósk, Birgir Valur, Sigurður Haukur, Þóra Kristín, Birgir, Kristín Fjóla, Gunnlaugur og Andri. 26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira VIÐ GERUM VIÐ allar tegundir síma, spjaldtölva, tölva og dróna Bolholt 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.