Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 Aðalstræti 2 | s. 558 0000 SUNNUDAGSSTEIK Við eldum, þú sækir, tilbúið beint á borðið hjá þér! Heilt lambalæri á gamla mátann • Koníaksbætt sveppa-piparsósa, kartöflugratín, rauðkál og salat • Marengsbomba Fyrir 4-6 manns Verð 12.990 kr. Pantaðu fyrir kl.18 laugardaginn 27. febrúar á info@matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000. Afhent milli 17.30 og 19.00 sunnudaginn 28. febrúar Takmarkað magn í boði Kórsöngur hefur líklega fráfyrstu tíð verið einhverfyrsti nálgunarmáti al-mennings að listrænni músík á nótum. Þótt ekki standi hann á ýkja gömlum merg hérlendis, kannski sízt hvað ungmenni varðar (ætli megi ekki miða tilkomu fyrstu æskulýðskóra landsins við milli- stríðaár 20. ald- ar), þá hafa nokkrir, einkum á síðustu 50 ár- um, staðið upp úr og m.a.s. vakið athygli á erlendri grundu. Meðal þeirra standa kórar Menntaskólans í Hamrahlíð án efa í fremstu röð. Undir neðanmálstitlinum Ice- landic Choral Music from Björk‘s Cornucopia Tour kom sl. 4. desem- ber út nýjasti geisladiskur Hamra- hlíðarkórsins, þ.e. eldri deildar sam- nefnds menntaskólakórs sem Þorgerður Ingólfsdóttir hefur stjórnað allt frá stofnun hans um 1967. Skal fúslega játað að ekki hef ég fylgzt í þaula með framkomum Bjarkar Guð- mundsdóttur (f. 1965) á seinni ár- um og er því lítt með á þeim nót- um, enda skiptir það varla höfuðmáli fyrir frumupplifun þessa hljómdisks – jafnvel þótt Gróa á Neti hafi hermt af víða hagstæðum undirtektum á erlendum vettvangi eins og í ofan- getinni nægtarhornsför. Má þó nefna að Björk var sjálf í MH- kórnum 1981 og honum því eðlilega vildarbundin, eins og af samstarfinu sést. Það fyrsta sem sló mann við disk- inn var hve hann var tiltölulega stuttur. Aðeins ríflega 34 mínútna af 90 mín. geymslugetu (geislasniðið kvað upphaflega hafa miðazt við tímalengd 9. sinfóníu Beethovens). En eins og stundum er sagt um magn hjá gæðum: „Minna er meira.“ Og það á að sönnu við hér, jafnt um verkefnaval og túlkun. Nánast hvert einasta númer er perla út af fyrir sig, auk uppsafnaðs kærleiksgildis fyrir flestum landsmönnum – ýmist á lögðum tóna eða texta, nema hvort tveggja sé. Allar götur aftur til 10. aldar fornskálda eins og Víga-Glúms og fram til vorra daga. Sungið er af æskuþrungnum krafti og innlifun – en einnig þeirri agaðri einbeitingu sem gerir gæfumuninn. Hver og einn á sér eflaust sín uppáhöld. En hvað mig varðar hreifst ég á slembivali ekki sízt af Vísum Vatnsenda-Rósu (með snilld- ar-táknrænni uppdúrun Jóns Ás- geirssonar á miðerindinu), Haldið ‘ún Gróa hafi skó Gunnars Reynis – og Veröld fláa Hafliða Hallgríms- sonar í afbragðsgóðum flutningi kórsins. Það var ekki laust við að margt næði hér að gleðigræta undirritaðan lengst aftur um aldir. Hitt er þó margfalt mikilvægara hvað frjóvg- andi kórstarf á þessum gæðastaðli getur veitt táningjum okkar tíma gjöfula verðleikaviðmiðun – og jafn- vel lífsgildi til frambúðar. Af æskukrafti og innlifun Ljósmynd/Santiago Felipe Hamrahlíðarkórinn „Nánast hvert einasta númer er perla út af fyrir sig,“ skrifar gagnrýnandinn um flutning kórs- ins. Útgáfan er afrakstur samstarfs við Björk en hún er hér með hluta kórsins á sviði The Shed í New York. Geisladiskur Hamrahlíðarkórinn bbbbm „Come and be joyful.“ Verk og þjóðlaga- útsetningar eftir Jón Þórarinsson, Jón Ásgeirsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Hafliða Hallgrímsson, Gunnar Reyni Sveinsson, Björk, Atla Heimi Sveinsson og Jón Nordal. Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Disk- bæklingur: Árni Heimir Ingólfsson. Tek- in upp í Háteigskirkju í Reykjavík 22./ 23.7. 2019 og 9./11.3. 2020. Framleið- andi & upptökustjóri: Bergur Þórisson. Útg.: One Little Independent Records, TPLP1524CD. Lengd: 34:21. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Þorgerður Ingólfsdóttir Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vinnur að ritun pólitískrar spennu- sögu með vinsælum kanadískum spennuhöfundi, Louise Penny. Bók- in mun heita State of Terror og kemur í verslanir í október. Samkvæmt frétt The New York Times fjallar sagan um utanríkis- ráðherra sem þarf að takast á við hryðjuverkaógn samhliða því að ör- yggi þjóðarinnar hefur minnkað vegna veikrar yfirstjórnar landsins. Clinton þekkir vel til ýmissa hliða valdsins eftir að hafa, auk ráð- herraembættisins, verið öldunga- deildarþingmaður, forsetafrú og frambjóðandi til embættis forseta Bandaríkjanna. Penny er þekktust fyrir glæpa- sögur um morð í kanadískum smábæ en samkvæmt fréttinni nýt- ist þekking og innsæi vinkonu hennar og meðhöfundar vel við skrifin. Þess má geta að eiginmaður Hillary, Bill Clinton, hefur þegar samið tvær spennusögur með rit- höfundinum James Patterson og seldist sú fyrri í um tveimur millj- ónum eintaka. AFP Spennuhöfundurinn Hillary Clinton. Hillary Clinton semur spennusögu Franski leik- arinn Gérard Depardieu hefur verið kærður fyrir meinta nauðgun og kyn- ferðislega árás á leikkonu á þrí- tugsaldri og er hún sögð hafa átt sér stað árið 2018. Að sögn AFP-fréttaveitunnar var málið fyrst rannsakað árið 2019 en fallið frá kæru vegna skorts á sönnunargögnum. Málið var aftur tekið upp í fyrrasumar og leikarinn kærður í desember síðastliðnum. Sagt er að vinátta hafi verið milli Depardieu og fjölskyldu leikkon- unnar sem kærir en hún sakar leik- arann um að hafa í tvígang ráðist á sig á heimili hans. Leikarinn kunni hefur ekki verið handtekinn en er sagður undir eftirliti dómstóla. Lögmaður De- pardieu segir hann algjörlega hafna ásökununum og harmi að málið hafi verið gert opinbert. Depardieu er einn þekktasti og dáðasti leikari Frakka og hefur leikið í um 200 kvikmyndum. Depardieu er sak- aður um nauðgun Gérard Depardieu Eftir 28 ára samstarf hafa frönsku raftónlistarmennirnir Thomas Ban- galter og Guy-Manuel de Homem- Christo, sem kölluðu dúett sinn Daft Punk, ákveðið að hætta að vinna saman. Á síðustu tveimur áratugum hefur Daft Punk verið ein áhrifamesta raf- tónlistarsveitin; þeir félagar hafa sent frá sér ofurvinsæl lög á borð við „Get Lucky“ og „One More Time“ og hefur tónlistin, með tilvísunum í vís- indi og framúrstefnu, sem og í diskó og sálartónlist, notið mikillar hylli. Eftir að þeir félagar Bangalter og De Homem-Christo greindu frá sam- starfsslitunum hafa poppfræðingar ýmissa fjölmiðla lofað framlag þeirra til dægurmenningarinnar. Gagnrýnandi The Guardian segir þá hafa verið mikilvægstu dægurtón- listarmenn síðustu ára. Fyrsta plata Daft Punk, Home- work (1997), náði inn á topp-10 listann breska og vakti strax athygli að félagarnir birtust sjaldan á mynd- um. Með útgáfu næstu plötu, Disco- very (2001), tóku þeir að birtast sem hjálmklædd vélmenni og héldu því áfram síðan. Hinar hljóðversplötur þeirra eru Human After All (2005) og Random Access Memories (2013). Vinsælasta lag dúettsins, „Get Lucky“, kom út 2016. Daft Punk hreppti sex Grammy-verðlaun gegn- um árin. Dúettinn Daft Punk leggur upp laupana AFP Grímuklæddir Félagarnir í Daft Punk í sínum vanabundnu vélmennabúningum. Íslenski dansflokkurinn býður í dag og á næstu dögum nemendum í 9. bekk í grunnskólum í Reykjavík að sjá sýninguna Black marrow á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýn- ingarnar verða alls fjórar. Black Marrow er eftir Ernu Óm- arsdóttur og Damien Jalet við tón- list eftir Ben Frost. Verkið var frumsýnt hér á landi árið 2015 og hefur síðan verið sýnt af dans- flokknum víða um lönd við afar góðar undirtektir. Erna og hinn belgíski Jalet hafa lengi starfað saman og meðal fyrri verka þeirra eru Transaquania out of the Blue (2009) og DuEls (2020), en það síðarnefnda fékk Subjekt- verðlaunin í Noregi á síðasta ári sem besta sviðslistaverk ársins og verður endursýnt í Reykjavík á næsta ári. Black Marrow verður í almennri sýningu 8. júní næstkom- andi í Borgarleikhúsinu Í verkinu Black Marrow leggja Erna og Damien upp með nútíma- helgiathöfn út frá hinu forna sam- bandi mannsins við náttúruna og dansararnir endurspegla heim þar sem eðlishvötin hefur verið iðn- vædd og líkaminn umbreytist í bar- áttu við að lifa af. Með því að nota rytma, endurtekningu og örmögn- un, í bland við seiðmagnaða tónlist, umbreytast dansararnir í stein- gervinga, vélar, heiðin goð og áhyggjulausan, glitrandi æskulýð. Níundubekkingar á Black marrow Seiðmögnun Dansflokkurinn í verkinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.