Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 59
DÆGRADVÖL 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is 2012 2020 HJÁ OKKUR FÁST VARAHLUTIR Í AMERÍSKA BÍLA „ÞETTA VAR HUGMYND PABBA HENNAR. HANN SAGÐI AÐ FYRR MYNDI HANN DAUÐUR LIGGJA EN VIÐ GIFTA OKKUR.” „VILTU ENN FISK DAGSINS?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þú ert miðja alheimsins. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞARNA ER GOUDA… CHEDDAR…PROVOLONE… BRIE… GRÁÐOSTUR… HVERSU MARGAR MYNDIR Í VIÐBÓT? SVONA 100 ÉG ÞURFTI AÐ SPYRJA ÚT Í FRÍIÐ Í OSTALANDI ÞÚ STRÍDDIR MÉR Á ÞVÍ HVERSU FEITUR ÉG VAR ÞEGAR ÉG VAR KRAKKI! Í DAG ER ÉG GRANNUR OG ÞÚ FEITUR! HVAÐ SEGIR ÞÚ NÚ? GAMAN AÐ SJÁ ÞIG, SKÖLL- ÓTTI! byrjuðu sinn búskap í Hveragerði 1984 og hafa búið þar síðan. For- eldrar Steinunnar: Hjónin Sigurður Magnús Sólmundarson, f. 1.10. 1930, d. 3.6. 1995, ættaður úr Borg- arnesi, smiður og listamaður og starfaði sem smíða- og teiknikenn- ari síðustu árin, bjó í Hveragerði, og Auður Guðbrandsdóttir, f. 1.6. 1932, ættuð frá Snæfellsnesi. Verkakona, starfaði víða og rak um skeið Þvottahúsið Hveralín í Hvera- gerði. Hún er búsett í Hveragerði. Börn Andrésar og Steinunnar eru 1) Sólveig Dröfn Andrésdóttir, f. 5.8. 1985, sjúkraþjálfari hjá Heilsustofnun Náttúrulækninga- félags Íslands. Maki: Einar Þor- finnsson, lögreglumaður á Selfossi, búsett í Hveragerði. Börn þeirra eru Örvar Þór Einarsson, f. 2014, Andrés Einarsson, f: 2017, óskírð Einarsdóttir, f. 16.2. 2021; 2), Úlfar Jón Andrésson, f. 2.4. 1988, frum- kvöðull og framkvæmdastjóri Ice- land Activities í Hveragerði. Maki: Lilja Björk Jónsdóttir, lífefnafræð- ingur hjá Matís, búsett í Hvera- gerði. Dóttir þeirra er Máney Björk Úlfarsdóttir, f. 14.11. 2019. Systkini Andrésar eru Elín Úlf- arsdóttir, f. 12.6. 1963, leikskóla- kennari í Hveragerði; Ólöf Dagmar Úlfarsdóttir, f. 30.4. 1967, ljós- móðir, búsett í Hveragerði. Hálf- systkini samfeðra eru Jökull Úlf- arsson, f. 8.11. 1979, líffræðingur, búsettur í Reykjavík, og Guðrún Björg Úlfarsdóttir, f. 12.4. 1986, hjúkrunarfræðingur, búsett í Hveragerði. Foreldrar Andrésar voru Úlfar Jón Andrésson, f. 22.2. 1940, d. 22.3. 2008, verslunarmaður, næt- urvörður og umboðsmaður Morg- unblaðsins, síðast búsettur í Hvera- gerði, og Sólveig Friðfinnsdóttir, f. 5.10. 1941, d. 27.7. 1996, af- greiðslukona, bjó lengst af í Hafn- arfirði. Þau slitu samvistum 1971. Andrés Úlfarsson Líney Sigurjónsdóttir handavinnukennari og húsfreyja, f. á Laxamýri íAðaldal Árni Björnsson prófastur í Görðum á Álftanesi, f. í Höfnum á Skaga Elín Málfríður Árnadóttir húsfreyja og kennari í Hafnarfirði Friðfinnur Valdimar Stefánsson múrarameistari og bóndi í Hafnarfirði Sólveig Friðfinnsdóttir afgreiðslukona, bjó lengst af í Hafnarfirði Sólveig Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. í Reykjavík Stefán Sigurðsson trésmíðameistari í Hafnarfirði, frá Saurbæ í Vatnsdal Margrét R. Halldórsdóttir verkakona, bjó lengst af í Skerjafirði, f. á Ketilsstöðum í Hjaltastaðaþinghá Úlfar Jón Ingimundarson verslunarmaður í Reykjavík, frá Þverholti í Álftaneshr.,Mýr. Ólöf Dagmar Úlfarsdóttir húsfreyja í Reykjavík Andrés Jónsson klæðskeri í Reykjavík Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja í Ysta-Skála, f. á Núpi Jón Auðunsson bóndi í Ysta-Skála undir Eyjafjöllum, f. á Núpi Úr frændgarði Andrésar Úlfarssonar Úlfar Jón Andrésson verslunarmaður, síðast næturvörður og umboðsmaður Morgunblaðsins í Hveragerði Helga R. Einarssyni duttu þess-ar tvær í hug af engu tilefni: Óvart Það voru fagnaðarfundir í Færeyjum um þær mundir er Þrándur í Götu skriplaði’ á skötu með Bínu og barnið kom undir. Minning (e.t.v. mörgum árum seinna) Það gerðist í grænum lundi að gamla konan hún stundi og leit á sinn mann. Þá ljómaði hann er eftir einhverju mundi. Á Boðnarmiði yrkir Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson „stuttljóð með gagaraljóðshætti“; Mér er ennþá greitt um gang, gaman hef að skokka létt. Klíf þó ekki klett né drang, komist ég á malbiksstétt. Hólmfríður Bjartmarsdóttir yrk- ir um „hippana á elliheimilinu“: Með blómunum þeir brutu af sér helsi og breyttu sínum heimi litla stund. Þeir áskildu sér frjálsra ásta frelsi en fara samt á Hvamminn eða á Grund. Þar heimtar liðið hamborgara og nammi hass og pitsu, bjór og eðalvín og holy kræst þeir hrópa upp á Hvammi „Hvar er fokking pissuflaskan mín?“ Sigurlín Hermannsdóttir segir, að það sé búin að vera þvílík blíða hér á höfuðborgarhorninu að manni finnist að vorið ætti að vera löngu komið: Ég bíð eftir vori en veit þó sem er að veturinn fráleitt er liðinn og fleirum ég trúi að fari’ eins og mér þeim finnist að erfið sé biðin. Guðmundur Arnfinnsson orti um daginn í dag á þriðjudag: Nú vorblær að sunnan um foldina fer um flóa og tjarnir og hólma og sker, því tjaldurinn kominn í Kjósina er, að kjafta til skemmtunar öðrum og sér. Friðrik Steingrímsson yrkir um frétt í RÚV: „Ataði saur á veggi leikskóla“: Drullu veggi ataði’á, um þann verknað segja hlýt, að líklega er sauður sá í sæmilega djúpum skít. Þorsteinn Jónsson skáldi kvað: Ég skal glaður una kyr angur þó að hljóti. Einhvern tíma batnar byr þó blási nú á móti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gömul minning og beðið eftir vori
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.