Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
NÝJAR
VORVÖRUR
KOMNAR
Vesti • Jakkar • Peysur
Bolir • Kjólar
Vinsælu
Velúrgallarnir
Alltaf til í mörgum litum
og í stærðum S-4XL
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Mikil og flókin vinna á sér stað þessa
dagana við að útfæra styttingu
vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki
sem starfar hjá hinu opinbera. Stytt-
ing vinnuviku dagvinnufólks úr 40
klukkustundum í
36 tók gildi um
seinustu áramót
en stytting vinnu-
tímans hjá starfs-
mönnum sem
vinna vaktavinnu
á að taka gildi 1.
maí næstkom-
andi.
Er það mun
flóknara verkefni
að sögn talsmanna stéttarfélaganna
en mikill fjöldi félagsmanna innan að-
ildarfélaga BSRB vinnur vaktavinnu,
m.a. fjöldi starfsmanna innan heil-
brigðisgeirans og í stofnunum vel-
ferðarþjónustunnar auk heilu starfs-
stéttanna, s.s. lögreglumanna,
fangavarða og starfsmanna tollsins.
„Þetta er heljarmikið mál af því að
það munu eiga sér stað verulegar
breytingar á kerfinu og er verið að
vinna að því alveg á fullu. Þetta snýst
ekki eingöngu um að breyta öllum
vaktaplönum því það þarf líka að
breyta nánast öllum forritum sem
halda utan um launamál o.fl.,“ segir
Árni Stefán Jónsson, formaður Sam-
eykis. Margt sé ógert en allir af vilja
gerðir. Þessi breyting sé mun flókn-
ari en vinnutímastyttingin sem tók
gildi 1. janúar. Svo hafi menn líka
gert ráð fyrir því að þessari breyt-
ingu muni fylgja einhver kostnaður,
sem ekki liggur nákvæmlega fyrir
hver verður. ,,Menn voru að reyna að
stytta vinnuvikuna hjá dagvinnufólki
án kostnaðar, það var markmiðið en
þetta er allt önnur vinna,“ segir hann.
Margir í hlutastörfum
Fjöldi starfsmanna, m.a. á heil-
brigðisstofnunum, sem vinna vakta-
vinnu eru í hlutastörfum og stendur
þeim til boða að hækka starfshlutfall
sitt samhliða styttingu vinnuvikunn-
ar. Með því geti það haldið svipuðum
tímafjölda áfram en hækkað engu að
síður laun sín. Árni Stefán segir að
þeir sem eru ekki í 100% starfi muni
þá skila áfram sömu vinnutímum og
áður en við það eykst starfshlutfallið
og laun þeirra hækka. Útséð hafi ver-
ið að ef allir tækju vinnutímastytt-
inguna yrði mönnunargatið of stórt
til að hægt væri að ráða við það.
Í kynningu BSRB á útfærslu
vinnutíma vaktavinnufólks á vefsíð-
unni betrivinnutimi.is kemur fram að
helstu breytingarnar verða þær að
vinnuvikan styttist og launamyndun
vaktavinnufólks tekur mið af fleiri
þáttum en áður. Vinnuvikan styttist
að lágmarki í 36 virkar vinnustundir.
Í nýju launamyndunarkerfi fjölgi
vaktaálagsflokkum og greiddur verði
sérstakur vaktahvati sem taki mið af
fjölbreytileika og fjölda vakta.
Vaktaálagsflokkum fjölgar, vakta-
álag á næturvöktum hækkar úr 55% í
65% álag virka daga og 75% um helg-
ar.
Nokkrar eiga ólokið
Þrátt fyrir að margar stofnanir
hafi lokið útfærslu á styttingu vinnu-
vikunnar hjá dagvinnufólki sem tók
gildi 1. janúar eru enn nokkrar stofn-
anir sem ekki hafa lokið því að sögn
Árna Stefáns. Reykjavíkurborg
standi sig vel en það séu því miður
nokkrar stofnanir hjá ríkinu sem eru
ekki búnar og þurfi að ýta betur á.
Mikil og flókin vinna við styttinguna
Morgunblaðið/Eggert
Lögreglumenn Stytting vinnutíma í
vaktavinnu á að taka gildi 1. maí.
Stytting vinnuviku vaktavinnufólks myndi að óbreyttu búa til stórt mönnunargat Fólki í hlutastörf-
um boðið að hækka starfshlutfallið Nokkrar ríkisstofnanir hafa enn ekki innleitt styttingu dagvinnu
Launavísitalan hækkaði um
3,7% í janúar, að stórum hluta
vegna launahækkana um sein-
ustu áramót skv. samningum. Á
einu ári hefur hún hækkað um
10,3%. Í umfjöllun Hagstof-
unnar um áhrif styttingar
vinnuvikunnar á vísitöluna segir
að styttingar í samningum á ár-
unum 2019 og 2020 séu metin
um 0,8 prósentustig til nóv-
ember sl. Fyrsta mat af áhrifum
vinnutímastyttingar í janúar sl.
á launavísitölu séu um 0,4 pró-
sentustig. Styttingin hjá vakta-
vinnufólki 1. maí næstkomandi
muni hafa áhrif á launavísitölu.
10,3% hækk-
un á einu ári
LAUNAVÍSITALAN
Árni Stefán
Jónsson
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Ísland er með fullt hús stiga hvað
varðar jafnrétti samkvæmt rann-
sóknarskýrslu sem unnin var af
tímaritinu Women, Business and
the Law, á vegum Alþjóðabankans.
Var rannsóknin framkvæmd á milli
septembermánaðar 2019 og októ-
bermánaðar 2020.
Ísland er í hópi níu landa með
fullt hús stiga í rannsókninni,
hundrað stig, en árið áður voru þau
einungis sex talsins.
Alls tóku 27 lönd framförum í
jafnréttismálum og bættu við sig
stigum á meðan lönd á borð við
Jemen, Kúveit og Katar fengu
minna en 30 stig.
Ekki til eftirbreytni að
hefta ferðafrelsi kvenna
Auk Íslands ná Belgía, Kanada,
Danmörk, Frakkland, Lettland,
Lúxemborg, Portúgal og Svíþjóð
fullu húsi stiga.
Alþjóðabankinn telur heimsfar-
aldurinn hafa skapað nýjar áskor-
anir fyrir konur um heim allan
þrátt fyrir örlitlar bætingar í jafn-
réttismálum. Vegið sé að rétti
þeirra á ýmsan hátt, til dæmis með
lögum sem hefta ferðafrelsi þeirra
og þar vísað til löggjafar í Sádi-
Arabíu þar sem konum er meinað
að ferðast til annarra landa án þess
að vera í fylgd með karlmanni.
„Fyrirætlanir um að greiða leið-
ina fyrir efnahagslegu frelsi kvenna
hafa gengið hægt fyrir sig í mörg-
um ríkjum og gætir þar óstöð-
ugleika,“ segir í skýrslu Alþjóða-
bankans.
Þá kom fram í skýrslunni að tak-
markanir vegna kórónuveirufarald-
ursins hafi leitt til þess að konur
ættu erfiðara með að halda
vinnunni, mæta í skólann og verði
fyrir auknu ofbeldi.
Ekki er öll von úti að sögn Mari
Elku Pangestu, framkvæmdastjóra
þróunarsamvinnu hjá Alþjóðabank-
anum, enda hafi mörg lönd sett
jafnréttismál í forgang. Þó hafi
komið fram í skýrslunni að mest
vanti upp á jafnréttismál þegar
kemur að uppeldi barna.
„Þótt mörg lönd hafi stigið skref
í átt að jafnrétti í faraldrinum er
ljóst að margt þarf að lagast, sér-
staklega á sviði fæðingarorlofs-
greiðslna og launajafnréttis
kynjanna,“ hefur AFP eftir Pan-
gestu.
Ísland hæst á
blaði í jafnrétti
Hallar á réttindi kvenna víða
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jafnrétti Ísland skipar sér í efsta sætið ásamt átta öðrum þjóðum, hvað
varðar jafnrétti. Kemur þetta fram í rannsókn Alþjóðabankans.
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is