Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 Heimildarmyndin „Hækk- um rána“ sem fjallar um um- deildar þjálfunaraðferðir körfu- boltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar hefur vakið tals- verða athygli og umræðu. Skiljanlega, því aðferðir hans eru óvenjulegar á margan hátt og snúast að sumu leyti frekar um að „valdefla“ stúlkur í íþrótt- um en að gera þær endilega að frábærum leikmönnum. Mörgum var brugðið við að heyra talsmáta Brynjars við stúlkurnar þar sem hann hikaði ekki við að skamma hverja og eina fyrir framan hópinn og í miðjum leik ef því var að skipta. Slíkar aðferðir geta virkað vel á suma en þveröfugt á aðra. Án þess að vera einhver sér- fræðingur í þjálfun barna, að öðru leyti en því að hafa tekið þátt í uppeldi þriggja sem öll voru virk í íþróttum, hef ég tak- markaða trú á slíku. Um svipað leyti og myndin kom út var átta ára vinur minn búinn að gefast upp á að æfa einstaklingsíþrótt sem hann hafði samt nokkuð gaman af. Hann var farinn að fá kvíðahnút í magann daginn fyrir æfingu og sagði að þjálfarinn væri stöðugt að skamma sig fyrir að gera hlut- ina ekki nógu vel. Stráksi hefur gaman af því að renna sér á skíðum en vildi ekki heyra nefnt að fara á nám- skeið hjá skíðakennara. Fór þó á námskeiðið eftir miklar fortölur foreldranna. Þaðan kom hann brosandi, sæll og glaður, stað- ráðinn í að halda áfram að mæta. „Ég datt og hún (þjálfarinn) skammaði mig ekkert heldur gaf mér „fimmu“. Hún er frábær,“ sagði drengurinn. Þrátt fyrir ungan aldur er hann búinn að kynnast tveimur þjálfurum með ólík viðhorf og nokkuð ljóst hvor íþróttin verður í forgangi. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is PÓLLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Aron Jó- hannsson fékk sannkallaða drauma- byrjun með nýju félagsliði sínu, Lech Poznan í Póllandi. Framherjinn, sem er þrítugur að aldri, gekk til liðs við pólska félagið hinn 12. febrúar á frjálsri sölu en hann hafði verið án félags síðan samningur hans við sænska úrvals- deildarfélagið Hammarby rann út fyrir áramót. Aron lék sinn fyrsta leik um síð- ustu helgi á heimavelli gegn Slask Wroclaw í deildinni þar sem hann fór beint í byrjunarliðið og skoraði sigurmarkið á 57. mínútu í 1:0-sigri Lech Poznan. „Fyrstu dagarnir hérna hafa gengið mjög vel fyrir sig og ég er virkilega ánægður með þetta skref til Póllands,“ sagði Aron í samtali við Morgunblaðið. „Þetta er risastór klúbbur hérna og var til dæmis í riðlakeppni Evr- ópudeildarinnar fyrir áramót. Það er allt til alls hérna sem hefur kom- ið mér skemmtilega á óvart. Um- gjörðin hérna er til fyrirmyndar og á pari við það sem maður vandist í Þýskalandi hjá Werder Bremen. Þetta er annar af tveimur stærstu klúbbum Póllands og maður áttar sig kannski betur á því eftir að maður er kominn hingað út.“ Datt inn á hárréttum tíma Lech Poznan hefur sjö sinnum orðið pólskur meistari, síðast árið 2015, en liðið er sem stendur í ell- efta sæti pólsku úrvalsdeildarinnar með 22 stig, 9 stigum frá Evr- ópusæti. Liðið var án sigurs í átta leikjum þegar það mætti Slask. „Það er auðvelt að tala um óska- byrjun núna en þetta var fyrsti keppnisleikurinn minn í rúma tvo mánuði. Liðið hefur verið í smá basli á tímabilinu og ekki verið að skora mikið af mörkum þannig að þetta var í raun bara eins fullkomið og það gat orðið. Markmiðin hjá fé- laginu eru mjög skýr og það er að berjast um alla þá titla sem í boði eru á hverju einasta tímabili. Það er langsótt núna en markmiðið er að reyna að ná Evrópusæti og við höf- um enn þá bikarkeppnina til þess og auðvitað deildina líka. Það er gríðarlega mikill metn- aður innan félagsins að standa sig vel á öllum vígstöðvum og hluti af vandamálinu, fyrir áramót, var stærðin á hópnum. Það vantaði að- eins upp á breiddina enda liðið að spila í deild, bikar og Evrópukeppni og það var mikið kapp lagt á að standa sig vel í Evrópudeildinni. Það kom niður á gengi liðsins í deildinni og eins tóku sig upp meiðsli í leikmannahópnum vegna álagsins. Þá vantaði framherja og ég datt einhvern veginn inn í þetta allt saman á hárréttum tíma sem er frá- bært því það er alltaf mikilvægt að byrja vel hjá nýju félagi.“ Þarf að berjast fyrir sínu Aron á að baki 19 A-landsleiki fyrir Bandaríkin en hann lék síðast fyrir landslið Bandaríkjanna í sept- ember 2015 þegar hann kom inn á sem varamaður í vináttulandsleik gegn Brasilíu í 4:1-tapi í Massachu- setts. „Ég hef verið í reglulegu sam- bandi við Gregg Berhalter, þjálfara bandaríska landsliðsins, undan- farnar vikur en þeir eru auðvitað með marga gríðarlega efnilega og spennandi unga leikmenn í dag. Þeir eru ekki bara að spila í bestu deildum í heimi heldur líka í bestu liðum í heimi. Ég trúi því samt að ef ég stend mig vel hérna úti, eins og ég hef verið að gera síðasta árið, og held áfram að skora mörk þá fái ég einhver tækifæri með landsliðinu. Draumurinn er auðvitað að kom- ast aftur í landsliðið og stór hluti af þeirri ákvörðun minni að fara til Póllands var með bandaríska lands- liðið í huga. Það voru önnur lið sem vildu fá mig og ég fékk tilboð víðs vegar að úr heiminum. Ég fékk sem dæmi tilboð frá Bandaríkjunum en ég leit á það þannig að ef ég kæmist í stórt lið í Evrópu myndi það auka líkurnar á því að ég fengi tækifæri með landsliðinu. Ég fékk líka fjárhagslega mjög góð tilboð sem ég ákvað að hafna því draumurinn er að fara aftur á heimsmeistaramót með Bandaríkj- unum. Ég geri mér samt líka grein fyrir því að ég er orðinn þrítugur og ég er ekki framarlega í gogg- unarröðinni. Ég mun þurfa að berj- ast fyrir mínu og standa mig,“ bætti Aron við í samtali við Morg- unblaðið. Byrjunin í Poznan eins fullkomin og mögulegt var  Aron Jóhannsson skoraði sigurmarkið í fyrsta leiknum með pólska liðinu Ljósmynd/Przemyslaw Szyszka Sigurmark Aron Jóhannsson á fullri ferð í leik Lech Poznan gegn Slask Wroclaw um síðustu helgi þar sem mark hans tryggði Lech 1:0 sigur. Tottenham varð í gær fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fót- bolta með því að vinna öruggan sig- ur á Wolfsberger frá Austurríki í London, 4:0, og einvígið þar með samanlagt 8:1. Dele Alli gaf tóninn með stórglæsilegu marki sem hann skoraði með hjólhestaspyrnu á 10. mínútu. Staðan var 1:0 í hálfleik. Alli lagði síðan upp mörk fyrir Car- los Vinicius og Gareth Bale á 50. og 73. mínútu og Vinicius skoraði sitt annað mark og innsiglaði sigurinn á 83. mínútu, 4:0. Alli var í aðalhlutverkinu AFP Mark Dele Alli skorar fyrsta mark Tottenham með tilþrifum. Jamal Musiala, sem verður 18 ára á morgun, sló í gegn í fyrrakvöld þegar hann skoraði fyrir Evrópu- meistara Bayern München gegn Lazio og varð næstyngstur frá upp- hafi til að skora í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta. Hann hefur nú tilkynnt að hann vilji leika fyrir hönd Þýskalands, þar sem hann er fæddur, en ekki Eng- lands. Musiala bjó í London frá átta ára til sextán ára aldurs og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Englands, síðast með 21-árs lands- liðinu í nóvember. Þýskaland en ekki England AFP Þjóðerni Jamal Musiala ætlar að vera þýskur frekar en enskur. Viktor Gísli Hall- grímsson lands- liðsmarkvörður átti góðan leik með danska lið- inu GOG í gær þegar það tryggði sér sæti í sextán liða úrslit- um Evrópu- deildar karla í handknattleik. GOG sigraði Trimo Trebnje frá Slóveníu, 30:27, og vann þar með báða leiki félaganna á tveimur dög- um. GOG vann þann fyrri í fyrra- dag, 32:31, en vegna sóttvarna- ráðstafana voru báðir leikirnir spilaðir í Ljubljana í Slóveníu. Viktor varði 15 skot í leiknum og var með 35 prósent markvörslu. Í leik liðanna í fyrradag varði hann 14 skot. GOG er í öðru sæti D-riðils með 12 stig úr níu leikjum og er öruggt áfram eins og toppliðið Rhein- Neckar Löwen sem er með 15 stig. Fjögur lið fara áfram og þriðja Ís- lendingaliðið, Kadetten frá Sviss, sem er undir stjórn Aðalsteins Eyj- ólfssonar, er með 10 stig í þriðja sæti og er líka komið áfram eftir úrslitin í gær en Trimo getur ekki lengur náð Kadetten að stigum. Viktor góður og GOG er komið áfram Viktor Gísli Hallgrímsson Tiger Woods slapp með skrekkinn þegar hann lenti í bílslysi í Kali- forníu á þriðjudagsmorguninn að staðartíma. Bifreiðin var illa far- in, sérstaklega að framan, og hefði kylfingurinn sigursæli getað týnt lífi. Samkvæmt yfirlýsingu frá lögregluyfirvöldum gæti bíl- beltið og loftpúði í stýrisbún- aðinum hafa bjargað lífi hans. Tiger fór strax í aðgerð við komuna á sjúkrahúsið og var gert að fótum hans í marga klukku- tíma. Þótt áverkarnir hafi ekki verið lífshættulegir mun Tiger hafa verið með opið beinbrot ásamt fleiri áverkum á fótum. Bein voru negld saman og munu áverkarnir á ökkla á hægri fæti hafa verið alvarlegir. Hann slas- aðist einnig á vinstri fæti. Tiger Woods verður 45 ára í lok árs og hefur glímt við mikil meiðsli á síðari hluta ferilsins. Hefur hann gengist undir margar aðgerðir vegna hnémeiðsla og bakmeiðsla. Fimmta bakaðgerðin var framkvæmd í vetur og hefur hann ekki keppt síðustu mánuðina af þeim sökum. Tiger Woods býr á Flórída en var staddur í Kali- forníu vegna Genesis Invitational- mótsins á PGA-mótaröðinni sem lauk á sunnudag en Tiger er einn þeirra sem standa að mótinu. Hvað keppnisferilinn varðar er útlitið sennilega ekki gott en þeir sem þekkja til hafa ekki tjáð sig um þann þátt enn sem komið er. ESPN sagðist í gær hafa heim- ildir fyrir því að í endurhæfing- arferlinu næstu vikurnar muni fleiri aðgerðir verða fram- kvæmdar. Inn í það fléttast fleira en að beinin grói eðlilega. Of snemmt virðist vera að spá um hvort keppnisferlinum sé lokið eða ekki. kris@mbl.is Hlaut mikla áverka á fótum AFP Slasaður Tiger Woods virðist hafa sloppið vel miðað við aðstæður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.