Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 64

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 64
Lýsi fyrir alla. Hvaöa lýsi hentar þér best? UFSALÝSI inniheldur helmingi meira af A og D vítamínum en þorskalýsi. Því er æskilegt að börn og unglingar sem enn eru í vexti noti ufsalýsi til að styrkja beinin og bæta sjónina. D vítamín stuðlar að vexti og viðhaldi beina en A vítamín er mikilvægt fyrir sjónina og heil- brigði húðar. LYSI 1‘orskaljjsi ÞORSKALÝSI er ætlað fyrir miðaldra og eldra fólk sem hefur meiri þörf fyrir þær fjölómettuðu fitusýrur sem finnast í lýsinu en A og D vítamín. Þessar fitusýrur eru af Omega-3 gerð og er talið að þær veiti vörn gegn kransæða- sjúkdómum. Þorskalýsi inniheldur um það bil helming þess A og D vítamín magns sem er í ufsalýsi þannig að fólki gefst kostur á að taka inn mun meira magn af þessum fjölómettuðu fitusýrum og gæta jafnframt hófs í A og D vítamín neyslu. AFBRAGÐSLÝSI er lýsi sem er sérstak- lega valið og meðhöndlað til að fjarlægja bæði lykt og bragð sem yfirleitt fylgir þorskalýsi. Afbragðslýsi er því einkar hentugt fyrir þá sem eiga erfitt með að taka inn lýsi vegna lýsisbragðsins. Hér er um að ræða nýja leið fyrir þá sem hafa viljað taka lýsi en ekki séð sér það fært hingað til vegna bragðsins. ÁVAXTALÝSI og MINTLÝSI er sniðið fyrir þá sem vilja bragðbætt lýsi. Þetta er þorskalýsi sem bragðefnum hefur verið bætt út í. Bragðefnin draga úr Iýsisbragðinu. ÞORSKALÝSISPERLUR eru ætlaðar fólki sem vill eða getur ekki tekið inn fljótandi lýsi. í perlunum er venjulegt þorskalýsi. Lýsisperlur eru einnig tilvaldar í ferðalagið og auðvelt að hafa við hendina hvar sem er. Mundu eftir lýsisperlunum í ferðatöskuna næst þegar þú leggur í hann. OMEGA-3 LÝSISPERLUR innihalda mun meira magn af Omega-3 fjölómett- uðum fitusýrum en venjulegt þorskalýsi án þess að A og D vítamín innihald þeirra hafi hækkað að ráði. Omega-3 lýsið er því hentugt fyrir fólk sem telur sig þurfa á að halda meira af þessum fitusýrum, sem taldar eru veita vörn gegn kransæða- sjúkdómum. Þetta á einkum við ákveðna áhættuhópa. LÚÐULÝSISPERLUR eru nær eingöngu notaðar sem A og D vítamín gjafar. Þær eru því ætlaðar þeim sem taka ekki inn þorska- Iýsi né ufsalýsi en vilja þó fá A og D vítamín. Það er ekki ráðlagt að taka aðrar lýsisafurðir með lúðulýsis- perlum vegna hins háa vítamín innihalds. Með því að taka inn lýsi daglega ertu ekki bara að stuðla að bættri heilsu í dagsins önn, heldur leggur þú einnig hornstein að heilsu þinni í framtíðinni. heilsunnar vegna...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.