Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 16

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 16
syni ekki eins mikið úr verki og þeir hefðu óskað. Keppt var í fyrsta sinn í Eldri flokki á árinu og varð lið Þróttar, undir stjórn Sölva Óskarssonar, fyrir ofan miðju í sínum riðli. Daði Harðarson var kosinn "Knattspyrnumaður Þróttar 1982" og Ágúst Hauksson lék sinn 100. leik í meistaraflokki. Fjórir Þróttarar voru valdir til að leika með Drengjalandsliði, þeir Finnur Pálmason, Björgvin Pálsson, Theódór Jóhánnsson og Karl Karlsson. Þá lék Pétur Arn- þórsson með Unglingalandslið- inu. Meistaraflokkur hélt til Banda- ríkjanna til undirbúnings fyrir keppni sumarsins. Dvaldi flokkur- inn í Rockford College í Chicago og var öll aðstaða hin glæsilegasta. Mikill snjóstormur setti þó strik í reikninginn fyrstu dagana og hafði annað eins ekki skeð í 150 ár. Liðið lék tvo leiki í ferðinni, vann annan en tapaði hinum. Vinir okkar í Götu í Færeyjum endurguldu okkur heimsókn fyrra árs og sóttu okkur heim með 5. flokk í júlímánuði. Dvöldu þeir hér í vikutíma og fóru víða, m.a. til Vestmannaeyja þar sem Týr sá um þá í tvo daga. Gestirnir gistu á einkaheimilum þar sem mikið var látið með þá og fóru þeir hinir ánægðustu heim að heimsókninni lokinni, því auk góðrar móttöku gekk þeim mjög vel í leikjum sín- um. Stjórn deildarinnar skipuðu: Ómar Siggeirsson formaður, Guð- mundur Vigfússon, Tryggvi E. Geirsson, Helgi Þorvaldsson, Jón H. Ólafsson, Gunnar Christiansen og Sigurður Þorvaldsson. 1983 Ágætur árangur náðist í mót- um ársins og ber þar hæst 6. sæti í I. deild. Fyrsti flokkur sigraði í Reykjavíkurmótinu og lék til úr- slita í Bikarkeppni og Haustmóti en tapaði báðum leikjunum. Ás- geir Elíasson var endurráðinn þjálfari þessara flokka og fékk sér til aðstoðar Theódór Guðmunds- son sem var öllum hnútum kunn- ugur. Gekk samstarf þeirra mjög vel. Mikið kæruleysi einkenndi leiki annars flokks og varð upp- skeran eins og sáð var til. Til marks um það hvað liðið gat gert á góð- um degi eru tveir sigrar gegn ís- lands- og Bikarmeisturum Fram. Þjálfari flokksins var Sigurbjartur Á. Guðmundsson og verður hann ekki sakaður um hvernig fór. Þriðji flokkur var mjög fámenn- ur og þó þjálfarinn Guðjón I. Ei- ríksson væri fullur af áhuga varð fámennið flokknum að falli. Fjórði flokkur undir stjórn Helga Þorvaldssonar var sá flokk- ur sem bestum árangri náði. Varð A-liðið í öðru sæti á Reykjavíkur- mótinu og í 4. sæti á íslandsmót- inu eftir öruggan sigur í sínum riðli. B-liðið gerði enn betur og sigraði örugglega á Reykjavíkur- og Miðsumarsmótunum. Að auki tók flokkurinn þátt í mótum í Sví- þjóð og Danmörku og stóð sig mjög vel. Fimmti flokkur undir stjórn Sigurðar Þorvaldssonar og sjötti flokkur sem Leifur Harðarson þjálfaði, unnu ekki marga sigra en léku ágæta knattspyrnu. Eldri flokkur undir stjórn Sölva Óskarssonar lék sex leiki, vann þrjá og tapaði hinum þremur. Ársæll Kristjánsson var kosinn "Knattspyrnumaður Þróttar 1983" og fjórði flokkur hlaut Middlesex Wanderers-bikarinn sem besti flokkur ársins. Atli Helgason, Björgvin Pálsson og Theódór Jóhannsson voru valdir til að leika með Drengja- landsliði. Björgvin og Birgir Sig- urðsson léku með Unglingalands- liði. Kristján Jónsson lék með landsliði 21 árs og yngri og síðast en ekki síst lék Ásgeir Elíasson með A-landsliði íslands. Eins og að ofan segir fór 4. flokkur í keppnisferð til Svíþjóðar og Danmerkur. Einnig fór meist- araflokkur í æfingaferð til Skot- lands og tókst sú ferð mjög vel. Stjórn deildarinnar var skipuð eftirtöldum: Ómar Siggeirsson formaður, Guðmundur Vigfús- son, Tryggvi E. Geirsson, Hallur Kristvinsson, Jón H. Ólafsson, Sig- urður Þorvaldsson og Gunnar Christiansen, en hans naut ekki lengi við vegna flutnings af landi brott. 1984 Heildarárangur ársins var rétt yfir meðallagi. Nokkrir flokkar stóðu sig mjög vel. Meistaraflokk- ur sem Ásgeir Elíasson þjálfaði nú fjórða árið í röð, hélt sæti sínu í 1. deild, en hefði átt að geta gert mun betur. Á innanhússmótunum var liðið ósigrandi og varð bæði ís- lands- og Reykjavíkurmeistari. Fyrsti flokkur náði ekki jafn góðum árangri og árið áður en sigraði þó á Haustmótinu. Annar flokkur undir stjórn Gunnars Ingvarssonar var óþekkj- anlegur frá fyrra ári. Sigraði flokk- urinn á Haustmótinu og Reykja- víkurmótinu innanhúss, vann B- riðilinn á íslandsmótinu örugg- lega og fluttist í A-riðil, tapaði úr- slitaleik bikarkeppninnar og sigr- aði íslands- og Reykjavíkurmeist- íslandsmeistarar Þróttar í 5. flokki A áriö 1975. Aftari röð f.v. Guðmundur Kæmested, Jóhann Kjartansson, Gústaf Vífilsson, Nikulás Jónsson, Egill Ragnarsson, Haukur Magnússon, Róbert Gunnarsson, Elvar Rúnarsson, Benedikt Sigurðsson og Tryggvi Geirsson þjálfari. Fremri röð f.v. Hörður Andrésson, Mikael Eggertsson, Egill Þorsteins, Sigurður Hallvarðsson, Guðmundur Erlingsson, Karl Þorsteins, Kristján Jónsson og Jón Ólafsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.