Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 41
ÞROTTUR 40 ára
41
Stórbætt aðstaða á svæði Þróttar:
VALLARFRAMKVÆMDIR
Saga vallarframkvæmda á fé-
lagssvæði Þróttar nær allt aftur til
1964, þegar svæðinu var úthlutað,
hún spannar því 25 ár og er fram-
kvæmdum þó ekki að fullu lokið.
Árið 1967 hófst gerð malarvall-
arins og var hann vígður 1969, en
það sama ár var tekið í notkun
félagsheimili og vallarhús, járn-
klætt lítið timburhús. Það hús varð
mjög fljótlega alltof lítið fyrir
starfsemina, en það varð þó ekki
fyrr en 1977, sem ráðist var í bygg-
ingu á nýju og glæsilegu félags-
heimili og vallarhúsi undir dug-
mikilli forystu Magnúsar Óskars-
sonar. Þetta hús var vígt árið 1979
á 30 ára afmælisári félagsins. Fé-
lagið leigir Reykjavíkurborg efri
hæð hússins fyrir æskulýðsmið-
stöð til langs tíma. Næsta fram-
kvæmd á svæðinu var uppsetning
flóðlýsingar við malarvöllinn
1983, en þá gaf Sala Varnarliðs-
eigna félaginu gömul möstur, sem
voru suður á Miðnesheiði, en fé-
lagið kostaði flutning þeirra til
Reykjavíkur.
Það var síðan haustið 1987 sem
Óskar Pétursson, fyrrverandi for-
maður og heiðursfélagi Þróttar,
tók fyrstu skóflustungu að nýjum
grasvelli og markar sú skóflustun-
ga upphaf mestu vallarfram-
kvæmda félagsins. Gerð grasvall-
arins var boðin út strax haustið
1987 og var samið við verktakana
Rúnar Smárason og Víði Guð-
mundsson, sem áttu lægsta tilboð-
ið í verkið. Þeir luku við gerð gras-
vallarins 1988. Veturinn áður hafði
landið verið ræst fram, völlurinn
undirbyggður, jafnaður með
skeljasandi og sumarið 1988 lagð-
ur torfi.
Þá var hafist handa við gerð
stæðis-, stúkubyggingar með því
að sömu verktakar og byggðu
grasvöllinn, framkvæmdu jarð-
vegsskipti undir þau mannvirki.
Vorið 1989 var boðin út uppsteypa
á stúku og stæðum og var samið
við Björn S. Jónsson trésmíða-
meistara sem átti næst lægsta til-
boð. í þessari framkvæmd fólst
bygging 100 metra veggjar með-
fram Elliðavogi, stoðveggir fyrir
stúku- og stæðisþrep og bygging
tveggja geymslna í sitt hvorum
enda. Þegar þessari byggingu
verður lokrð er ráðgerð 40 metra
yfirbyggð stúka með sætum og 30
metra stæði sitt hvoru megin.
Hafist var handa samhliða þessu
nú í sumar að girða félagssvæðið
en sú vinna hefur öll verið unnin í
sjálfboðavinnu undir dugmikilli
stjórn Péturs Ingólfssonar.
Þá hefur verið gert lítið gras-
svæði við vesturenda vallarhúss-
ins, ásamt lagfæringum við húsið
og malarvöllinn við Sæviðarsund
í samvinnu við íbúa götunnar sem
gróðursettu trjáplöntur utan við
girðingu. Þessar framkvæmdir
hafa nú kostað um 24 milljónir
króná og nýtur félagið 80% styrkja
frá ríkinu og Reykjavíkurborg.
Þannig hefur félagið sjálft þurft að
greiða 4.8 milljónir kr.
Næstu framkvæmdir verða
gerð þriggja mjög fullkominna
tennisvalla fyrir sunnan malar-
völlinn með tilheyrandi girðing-
um. Þá er ætlunin að hefjast handa
við nýúthlutað íþróttasvæði í
Laugardalnum, vestan við Álf-
heima. Þar á eftir verður svo lokið
við gerð stúkunnar við nýja gras-
völlinn. Gera má ráð fyrir að þess-
ar framkvæmdir, sem ætlunin er
að vinna að nú á næstu árum,
komi til með að kosta 20-25 millj-
ónir króna.
Þessa vallaruppbyggingu nú
undanfarin ár má þakka auknum
skilningi ráðamanna Reykjavíkur
á gildi íþrótta. Verulegum fjár-
munum hefur verið veitt til félag-
anna í þessum tilgangi. Þessum
peningum er vel varið þegar til
lengri tíma er litið, þar sem góð
íþróttaaðstaða laðar að börn og
unglinga til að taka þátt í heil-
brigðu starfi íþróttafélaganna.
Samhliða þessum miklu fram-
kvæmdum á vallarsvæðinu hafa
verið gerðar endurbætur innan-
húss, m.a. hefur verið komið upp
skrifstofuaðstöðu, útbúið eldhús,
komið upp búningsaðstöðu fyrir
dómara og flísalögð böð. Þá hefur
verið unnið að því að fullklára úti-
geymslu og útikdósett. Þá var sum-
arið 1987 unnið við að lagfæra
pússningu vallarhússins og það
síðan allt málað, bæði þak og
veggir. Var það allt unnið i sjálf-
boðavinnu.
TEG.
Stúkubyggingin hófst í vor og hefur gengið vel. Með vaxandi gengi á knattspymusviðinu er
vonast til að þessi stúka verði senn allt of lítil.