Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 51

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 51
ÞROTTUR 40 ára 51 Þróttur var í upphafi ekki ætlað stúlkunum, en Þær urðu íslandsmeistar í öllum aldursflokkum sama ár - og tvær þeirra áttu eftir að verða Norðurlandameistarar Þróttur var í upphafi ekki stofn- að sem félag fyrir kvenfólk, en það fór fljótlega á annan veg. Öflugar kvennadeildir komu upp í hand- knattleiksdeild félagsins, sann- kallaðar sigursveitir, sem m.a. náðu því frábæra afreki að taka öll sigurlaunin á íslandsmótunum vorið 1957, þ.e. í meistaraflokki, 1. flokki og 2. flokki. Þróttarstúlkur voru iðulega í landsliðum og pressuliðum. Reykjavíkurúrval var á tíma nær eingöngu skipað Þróttarstúlkum. Kjarni úr þessum þróttmikla hópi Þróttarkvenna hefur alla tíð haldið hópinn, - Þróttarkonur voru þær einfaldlega kallaðar og inntu af hendi ómetanlegt starf fyrir félagið lengi vel eftir að þær hættu að leika handknattleik. í dag hittast Þróttarkonurnar, 12 að tölu, annan miðvikudag hvers mánaðar á heimilum þeirra til skiptis. Og hvað ætli umræðu- efnið sé? Nú, auðvitað Þróttur, hvað annað! En hvernig byrjaði kvenna- starfið í strákafélaginu? Þær Hel- ena Eyjólfsdóttir og Helga Emils- dóttir, hreinræktaðir Holtarar segja þetta: „Við sáum að strákarnir fengu góða þjálfun í Þrótti, en stelpurnar voru útundan. Stundum fengum við að keppa við strákana í fót- bolta, - einn strákur á móti öllum stelpnaskaranum. Það voru merkilegir leikir. Við vildum gjarnan fá að vera með í félaginu og það dróst ekki lengi. Það voru tvær ungar stúlkur í Litla Skerja- firði, Ásthildur Pétursdóttir og Fjóla Magnúsdóttir, sem áttu heima við Þjórsárgötuna, sem voru driffjaðrirnar í að koma þessu af stað, hafa áreiðanlega fengið þetta í gegn með því að tala við Halldór formann, þegar hann kom til þeirra með fiskbílinn. Þær Ásta og Fjóla spiluðu með fyrstu liðunum, sem Ásgeir Benedikts- son, sá góði þjálfari annaðist um, og Ásthildur hannaði fyrsta keppnisbúninginn sem Þróttar- stelpurnar léku í og vakti hann mikJa athygli". Til að byrja með gekk ekkert of vel hjá 2. flokki Þróttarstúlkna, þær urðu til dæmis langneðstar í Reykjavíkurmóti 1951, - en eftir áramótin gekk heldur en ekki í haginn, þær urðu íslandsmeistar- ar 1952. Sumarið 1951 var Þróttur í fyrsta sinn með flokk í móti í kvennaflokki í handknattleik og höfðu þá æft frá því um vorið á Grímstaðaholtsvellinum og í Austurbæjarskólanum. Aðalheiður Steingrímsdóttir, ein af frumherjunum, segir að þá hafi verið leikið til reynslu við Skandinavisk Boldklub, sem þá var og hét, en Þróttarstelpurnar hafi nú lítið þekkt handboltaregl- urnar þegar þessir fyrstu leikir fóru fram. Á öðru ári meistaraflokks 1956 gerðist það að „litli Þróttur" tók „brussurnar í Fram" í gegn á ís- landsmótinu í Víðidal við Hafnar- fjörð. Framstelpurnar höfðu þá verið nær ósigrandi um árabil og vakti þessi frammistaða Þróttar mikla athygli, og var í raun aðeins byrjunin á því sem í vændum var. Næsta vetur reyndust öll Þróttar- liðin í kvennahandboltanum ósigrandi með öllu. Því miður varð ekki framhald á þessari sigurgöngu félagsins sem skyldi. Hvað það var sem gerðist með allan þann góða efnivið sem félagið hafði undir höndum er okkur hulin ráðgáta. En svo mikið er víst að eftir þetta urðu kvenna- flokkar félagsins ekki sigursælir, og svo fór eftir nokkur ár að ekki voru send fram lið í nokkrum flokkum og árangur hinna óvið- unandi. Auðvitað verður að segja eins og er, margar stúlknanna gift- ust og eignuðust börn og bú, en lögðu niður íþróttaiðkun. Stjórn handboltadeildar hefur því mis- tekist að fylla upp í skörðin sem mynduðust og er það miður og sannarlega umhugsunarefni. Nokkrar stúlknanna úr þessum öfluga kjarna héldu hinsvegar áfram, allt þar til Þróttur átti ekki lengur meistaraflokkslið, þá urðu þær að grípa til þess ráðs að ganga yfir í önnur félög. Tvær þeirra, Margrét Hjálmarsdóttir og Katrín Gústafsdóttir gengu til liðs við Framara eftir að þær höfðu orðið Norðurlandameistarar á Laugar- dalsvelli 1964, fyrir rétt rúmum 25 árum síðan.Þær eru einu Þróttar- arnir sem orðið hafa Norður- landameistarar! J.B.P.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.