Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 40

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 40
40 ÞROTTUR 40 ára Unglingastarfið er að komast í gott horf hjá félaginu og framtíðin er því björt. Það er öruggt mál að unglingastarfið mun skila sér. Eins og undanfarin ár hafa verið kölluð Þróttartímabilið í blakinu, verður næsta tímabil örugglega kennt við HK, einfaldlega vegna þess að þeir munu senn fara að njóta ávaxt- anna af unglingastarfinu. Um Þrótt, Nes. gegnir hins vegar öðru máli. Þeir hafa verið útungunarfé- lag fyrir Reykjavíkurfélögin og þeir ná sér ekki á strik fyrr en það verður reistur framhaldsskóli í Neskaupsstað eða brottfluttir leik- menn snúa aftur. Fyrr geta þeir ekki vænst árangurs í fyrstu deild- inni. OKKUR VANTAR TVEGGJA METRA MENN Guðmundur segir að blak á ís- landi hafi staðið í stað undanfarin fjögur til fimm ár á meðan blak á hinum Norðurlöndunum hefur stöðugt orðið betra. — Við tókum tvívegis þátt í Evrópukeppni og lentum í bæði skiptin á móti norskum liðum. Við töpuðum báðum leikjum en ég held þó að við getum vel við unað. Við töpuðum t.d. með tveimur hrinum gegn þremur í útileik á móti KFUM OSLO ogoddahrinan fór 15:13 fyrir Norðmenn. Eg átti möguleika á að gera út um leikinn en klúðraði honum hins vegar með uppgjöfum í lokin, segir Guð- mundur og brosir dauflega. Hann segist sannfærður um að íslensk blaklið myndu ekki ná álíka ár- angri gegn norskum liðum nú og Þróttarar náðu á þessum árum í kringum 1980. — En á hvaða sviði höfum við dregist aftur úr? — Aðallega hvað varðar skipu- lag allrar starfsemi. Okkur vantar markvissari uppbyggingu í yngri flokkunum, okkur vantar hávaxn- ari leikmenn og okkur vantar meiri æfingu og tækni. Það eru öll landslið komin með tveggja metra menn og það gildir það sama um okkur og íslenska körfuknattleiks- menn; við spilum á annarri hæð en andstæðingarnir. — Hvað með hina erlendu þjálfara? Hafa þeir ekki orðið blak- inu til framdráttar? — Þróttur reið nú á vaðið með erlendan þjálfara, Matti Eliason frá Svíþjóð, sem jafnframt þjálfaði íslenska landsliðið 1977/78. Þessi þjálfari gerði góða hluti og kenndi okkur ýmislegt og hið sama má reyndar segja um marga aðra þjálfara sem komið hafa síðar. Kínverskir þjálfarar hafa verið hér við störf en gallinn við þá er að þeir tala flestir litla sem enga ensku og eiga því erfitt með að miðla okkur af þekkingu sinni. Því er þó ekki að neita að Kínverjarnir hafa breytt ýmsu t.d. hávörninni og þeir hafa einnig breytt æfing- um mjög mikið, segir Guðmundur en hann telur jafnframt að Blak- samband íslands hafi ekki staðið nægilega vel að menntun ís- lenskra þjálfara. LIÐIÐ HEFUR VERIÐ OF STERKT Þróttarar hafa ekki náð að hrep- pa Islandsbikarinn tvö síðustu keppnistímabil en sjö ár þar á und- an var bikarinn varðveittur við Sæviðarsund. Leifur Harðarson átti möguleika á því í fyrravor að verða Islandsmeistari tíunda árið í röð en hann varð íslandsmeistari tvö ár í röð með UMFL á Laugar- vatni áður en hann gekk til liðs við Þrótt að nýju eftir nám í íþrótta- kennaraskólanum. — Svo merkilegt sem það kann að virðast, segir Guðmundur, - er það styrkleiki Þróttar í blakinu á undanförnum árum, sem er aðal- ástæðan fyrir því að við höfum nú orðið að gefa eftir. Það hafa verið mjög sterkir leikmenn í Þróttarlið- inu og það hefur orðið til þess að margir góðir og efnilegir leikmenn hafa ekki fengið að spreyta sig. Þetta hefur fælt menn yfir í önnur félög og það er miður, því styrk- leiki góðs blakliðs felst ekki síst í því að eiga góða menn á vara- mannabekknum. FRAMTÍÐIN ER BJÖRT Guðmundur hefur leikið með og á móti mörgum kunnum köpp- um á undanförnum árum oghann segir að Leifur Harðarson sé sennilega sá eftirminnilegasti. — Leifur hefur verið „prímus mótor" í Þróttarliðinu og íslenska landsliðinu eftir að hann tók við uppspilarastöðunni, segir Guð- mundur og getur þess að Leifur hafi reyndar verið mjög eftir- minnilegur sem mótherji. — Ég man eftir því að árið 1978 er við spiluðum gegn UMFL að Leifur mótmælti einum dómi með orðunum: „Guð sé oss næstur". Fyrir vikið var hann rekinn út af og við unnum leikinn. Síðan þá hefur þetta orðatiltæki verið í há- vegum haft meðal blakmanna, segir Guðmundur en hann getur þess að meðal andstæðinga sem ekki tengjast Þrótti hafi Indriði Arnórsson sennilega verið erfið- asti andstæðingurinn. Guðmundur E. Pálsson hefur lifað og hrærst í blakinu eftir að hann uppgötvaði þessa „stórkost- legu íþrótt" á Laugarvatni fyrir rúmum hálfum öðrum áratug og okkur lék því forvitni á að vita hvað hann héldi um framtíðina í blakinu. —Blakið er tvímælalaust á mik- illi uppleið og í mikill sókn úti í heimi. Því er ekki á móti mælt að þetta er sú íþrótt sem hefur flesta iðkendur og ástæðan er einföld. Blak er einfaldur og skemmtilegur leikur og það er jafnan mikið að gerast inni á vellinum. Blakið hér á landi á undir högg að sækja og það kostar mikla vinnu að ná að rífa það upp. Besta dæmið þar að lútandi er hjá HK þar sem einn maður hefur fórnað öllum sínum kröftum fyrir félagið með frábær- um árangri. Það líður að því að nýr Þróttaráratugur renni upp í blak- inu en við verðum að þreyja þorr- ann enn um stund. Draumurinn er sá að eignast eigið íþróttahús á svæðinu við Sæviðarsund. Eigið hús myndi skipta sköpum fyrir okkur. Það hlýtur að vera framtíð- in, sagði Guðmundur E. Pálsson. mitre BOLTAR - BÚNINGAR HOFFELL SF. ÁRMÚIA 36 - SlMAR: 83830 og 82166
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.