Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 42
ÞRÓTTVR 40 ára
Erlendur Sigurðsson ö.Jlokkí:
Skoraði fjögur mörk á móti Selfossi
Erlendur Sigurðsson, besti leik-
maður sjötta flokks:„Það kom mér
mjög á óvart að vera valinn besti
leikmaðurinn. Ég hélt að Halli eða
Bjöggi yrðu fyrir valinu", sagði Er-
lendur Sigurðsson, sem valinn var
leikmaður sjötta flokks Þróttar fyr-
ir skemmstu.
Erlendur lék með A-liði sjötta
flokks í sumar og gengur hann nú
upp í fimmta flokkinn. Hann seg-
ist hafa leikið á hægri kantinum í
sumar og hann hefur ekki lengur
tölu á mörkunum sem hann skor-
aði.
„Ég man bara hvað ég skoraði
mörg mörk á Tomma-mótinu. Þar
gerði ég sjö mörk, þar af fjögur á
móti Selfossi. Það var langeftir-
minnilegasti leikur sumarsins í
mínum augum", sagði Erlingur.
Þess má geta að hann var í hópi
markahæstu leikmanna Tomma-
mótsins.
Að sögn Erlendar byrjaði hann
að leika með sjötta flokki Þróttar
þegar hann var sjö ára gamall, en
hann er nú tíu ára. Til að byrja með
var hann í B-liðinu en í sumar lék
hann með A-liðinu eins og flestir
elstu strákarnir í flokknum. Er-
lendur segist hafa verið mjög
ánægður með þjálfara liðsins s.l.
sumar, Jóhann Hreiðarsson, enda
hefði hann kennt strákunum ým-
islegt.
— En hverjir voru erfiðustu
andstæðingarnir í sumar?
„Ég veit ekki hvað þeir heita. en
það voru varnarmennirnir hjá
Fylki og Leikni. Þessi lið eru líka
með mjög góða markmenn sem
erfitt er að skora hjá", sagði Er-
lendur Sigurðsson að lokum.
Reynir Ólafsson, besti leikmaður 3.Jlokks:
„Eftírminxiilegast að vinna loksins
ÍR-ingana“
Reynir Ólafsson var valinn
besti leikmaður 3. flokks Þróttar í
knattspyrnunni í sumar og tók
hann á móti viðurkenningu sinni
á uppskeruhátíð Þróttar í Glæsibæ
fyrir skömmu.
Reynir byrjaði að leika knatt-
spyrnu með sjötta flokki átta ára
gamall undir stjórn Gísla Sváfnis-
sonar og í samtali við Afmælisblað
Þróttar segir hann að flestir strák-
anna í sjötta flokknum hafi fylgst
að allar götur upp í þriðja flokk-
inn. Reynir, sem leikur sem fram-
herji, var á yngra ári í þriðja
flokknum í sumar og hann segir að
valið á besta leikmanni flokícsins
hafi komið sér virkilega á óvart.
„Strákarnir voru reyndar að
orða þetta við mig en ég hafði
enga trú á að ég yrði valinn. Þetta
er sennilega fyrsta viðurkenning-
in eða verðlaunin sem ég vinn til í
Þrótti og ég er auðvitað mjög
ánægður með að hafa orðið fyrir
valinu", sagði Reynir en hann get-
ur þess að árangur þriðja flokksins
í mótum sumarsins hafi valdið
honum og fleirum vonbrigðum.
„Það býr miklu meira í þessu
liði og það kom e.t.v. best í ljós í
síðasta leiknum í haustmótinu. Þá
unnum við ÍR 3:2 og það er í fyrsta
skipti sem við vinnum þessa strá-
ka. ÍR leikur í A-riðli en við í C-riðli
og þess má geta að þeir unnu okk-
ur að mig minnir 17:0 í Reykjavík-
urmótinu í vor. Þetta var því mjög
sætur sigur og sennilega er þetta
eftirminnilegasti leikur keppnis-
tímabilsins," segir Reynir. Þess má
svo geta að hann skoraði tvö
marka Þróttar í leiknum gegn ÍR
og undirstrikaði svo ekki verður
um villst að hann var vel að titlin-
um „besti leikmaður 3. flokks"
kominn.
Það er ljóst að það býr mikið í
þriðja flokki Þróttar ogmun stjórn
deildarinnar kappkosta að ráða
góðan þjálfara fyrir flokkinn sem
allra fyrst. Að sögn Reynis hafa
innanhússæfingarnar farið hægt
af stað vegna haustmótsins en
hann sagði að allt yrði sett á fullan
kraft nú þegar mótinu er lokið.