Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 12
12
ÞROTTVR 40 ára
KnattspymuannáU 1975 -1989
-eftir Helga Þorvaldsson
1975
Árangur sumarsins var með
ágætum og ber þar hæst endur-
heimt 1. deildarsætis eftir áralanga
fjarvist. Ekki dró það úr ánægj-
unni að unglingastarf undanfar-
inna ára virtist vera að skila sér, en
níu piltar úr 2. flokki léku með
liðinu í aukaleik gegn ÍB V um sæti
í 1. deild. Þjálfari var Sölvi Óskars-
son.
Árangur 5. flokks var einnig
glæsilegur en flokkurinn varð ís-
landsmeistari undir stjórn
Tryggva Geirssonar. Þá varð
flokkurinn í 3. sæti í Reykjavíkur-
og Haustmótunum.
Ekki varð árangur 3. flokks
síðri, en flokkurinn skilaði þremur
bikurum í safnið. Var sigurinn á
Reykjavíkurmótinu sérlega glæsi-
legur, þar sem liðið skoraði 28
mörk gegn 1. Einnig unnust sigrar
í Haustmótinu og Reykjavíkur-
mótinu innanhúss. B-liðið varð í
öðru sæti i báðum mótum sumars-
ins. Þjálfari flokksins var Helgi
Þorvaldsson.
Mikið annríki leikmanna með
meistararaflokki varð öðru fremur
2. flokknum að falli en miklar
væntingar voru gerðar til flokks-
ins. Leikmenn flokksins æfðu allir
með meistaraflokki.
Árangur annarra flokka var
frekar slakur og verður ekki rak-
inn nánar. Þjálfari 4. flokks var
Leifur Harðarson, en Helgi Þor-
valdsson þjálfaði 6. flokk og
kvennaflokkinn, sem á haustdög-
um var lagður niður vegna lítils
áhuga stúlknanna.
Sjö Þróttarar voru valdir til að
leika með landsliðum á árinu.
Baldur Hannesson, Halldór Ara-
son. Jón Þorbjörnsson og Þorvald-
ur I. Þorvaldsson léku með Ung-
lingalandsliði og Stefán Stefáns-
son var varamaður. Sverrir Einars-
son, Ottó Hreinsson og Rúnar
Sverrisson léku með Drengja-
landsliði.
Tveir leikmenn meistara-
flokks náðu þeim áfanga að leika
sinn 100. leik með mfl. Þróttar.
Voru það þeir Guðmundur Gísla-
son og Sverrir Brynjólfsson. Á árs-
þingi KSÍ var Magnúsi V. Péturs-
syni afhent merlo FIFA, sem er
veitt dómurum er þeir hafa dæmt
vissan fjölda milliríkjaleikja.
Þriðji flokkur hlaut Middlesex
Wanderers-bikarinn sem besti
flokkur félagsins og sami flokkur
hélt í víking til Skotlands. Lék liðið
þrjá leiki í ferðinni og stóð sig vel.
Guðmundur Vigfússon varð að
hætta sem fulltrúi félagsins í KRR
vegna anna og tók Helgi Þorvalds-
son við af honum.
Stjórn deildarinnar skipuðu:
Helgi Þorvaldsson formaður,
Brynjólfur Magnússon, Júlíus
neydda að láta Sölva hætta.
Stjórnin fékk íslandsvininn David
Moyes til að sjá um þjálfunina í
um mánaðartíma og undir hans
stjórn náði liðið í þau stig sem það
fékk í deildinni. Eftir að hann
hvarf af landi brott tók Axel Axels-
son að sér að sjá um æfingar og
leikstjórn til loka tímabilsins.
Það sem hæst bar á árinu var
glæsilegur árangur 3. flokks undir
stjórn Helga Gunnarssonar. Sigr-
aði liðið í öllum mótum ársins, þ.e.
Reykjavíkurmótunum innanhúss
og utan, íslandsmótinu og Haust-
mótinu. Þá hlaut flokkurinn
Middlesex Wanderers-bikarinn
þriðja árið í röð.
Eldri flokkur Þróttar 1984: Efri röð f.v. Ómar Siggeirsson, Júlíus Óskarsson, Sölvi Óskarsson,
Gunnar Baldursson, Siguröur Pétursson, Haukur Þorvaldsson, Tryggvi E. Geirsson. Neöri röð
f.v. Tryggvi Gunnarsson, Stefán Jón Sigurösson, Gunnar R. Ingvarsson, Helgi Þorvaldsson, Gísli
Sváfnisson og Sverrir Brynjólfsson.
Óskarsson, Reynir Sverrisson og
Bragi Guðjónsson.
1976
Árið varð hið uppskerumesta í
meistaratitlum frá upphafi og varð
aðeins slæleg frammistaða meist-
araflokks til þess að varpa skugga
á ánægjuna, en flokkurinn vann
aðeins tvo leiki í mótum sumars-
ins. Liðið var óheppið í fyrstu leikj-
unum í 1. deildinni og síðan kom
hrein uppgjöf um miðja keppn-
ina. Ekki bætti úr skák að flestir
leikmenn flokksins voru óánaegðir
með þjálfunaraðferðir Sölva Osk-
arssonar og hótuðu að hætta. Eftir
mikil fundahöld sá stjórnin sig til-
Fyrsti flokkur stóð sig sæmilega
fram eftir sumrinu og lauk tímabil-
inu með sætum sigri í bikarkeppni
KSÍ.
Fjórði flokkur byrjaði mjög illa,
enda þjálfaralaus fram eftir vori,
en eftir að þjálfari fékkst fóru mál-
in að ganga betur og lék flokkur-
inn til úrslita um íslandsmeistara-
titilinn en varð að lúta í lægra haldi
fyrir sterku liðið Breiðabliks. Þjálf-
ari var Helgi Þorvaldsson.
Fimmti flokkurinn varð
Reykjavíkurmeistari innanhúss
og stóð sig nokkuð vel utanhúss
þó margir af íslandsmeisturum
fyrra árs hafi gengið upp. Þjálfari
flokksins, eins og árið áður, var
Tryggvi Geirsson.