Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 31
31
Blakmaður ársins
Annað árið í röð var Þróttari
tilnefndur blakmaður ársins, er
Valdemar Jónasson hlaut titilinn
1977.
1978-1979
Blakmótin
Meistaraflokkur kvenna stóð
sig betur en nokkru sinni áður og
sigraði í Reykjavíkurmóti og
Haustmóti en varð í 3. sæti í 1.
deild og féll fyrir IS, síðar bikar-
meisturum, í Bikarkeppninni.
Þjálfari var Benedikt Höskulds-
son.
2. og 3. fokkur kvenna æfðu
undir stjórn Þorvalds Þorvalds-
sonar. 2. flokkur var sá eini á land-
inu svo ekki varð um keppni að
ræða þar, en 3. flokkur, sem tók nú
þátt í keppni í fyrsta skipti, tapaði
fyrir HK í Islandsmótinu.
Meistaraflokkur karla byrjaði
mjög vel og sigraði í Reykjavíkur-
móti og Haustmóti og hafði góða
forystu í 1. deildarkeppninni, þeg-
ar tveir af máttarstólpum liðsins,
þeir Guðmundur E. Pálsson og
Valdemar Jónasson meiddust og
misstu af mikilvægum leikjum,
sem töpuðust fyrir vikið. Keppnin
varð mjög spennandi og þegar
einum leik var ólokið gátu þrjú lið
unnið titilinn, en Laugdælir urðu
að lokum fslandsmeistarar. Þrótt-
ur fékk silfurverðlaunin. Þjálfari
var Valdemar Jónasson. Liðið náði
ÞROTTVR 40 ára
sér ekki á strik í Bikarkeppninni og
tapaði fyrir verðandi Bikarmeist-
urum ÍS.
1. flokkur karla keppti nú í
fyrsta skipti undir því nafni og
stóð sig þolanlega. í Haustmótinu
varð liðið í 4. sæti og í íslandsmót-
inu hafnaði liðið í 2. sæti í sínum
riðli og var eina liðið sem bar sig-
urorð af meisturum 1. flokks, IS.
Liðsstjóri var Gunnar Arnason.
3. flokkur karla stóð sig best
allra flokka. Liðið tók þátt í 3 mót-
um og sigraði í þeim öllum, þ.e.
Haustmóti, íslandsmóti og Vík-
ingsmóti og Öldungaflokkurinn
tapaði aðeins einum leik og varð 3.
í Óldungamótinu. Þjálfari var Atli
Sigurðsson.
Öldungaflokkurinn varð í 3.
sæti í Öldungamótinu.
Úrvalslið
Kvennalandslið í blaki lék nú
sína fyrstu leiki. Þróttur átti fjóra
fulltrúa í liðinu, þær Björgu
Björnsdóttur, Sigurhönnu Sigfús-
dóttur, Sólveigu Þráinsdóttur og
Svanhvíti Helgadóttur.
Karlalandsleiki léku þeir Bene-
dikt Höskuldsson, Böðvar Helgi
Sigurðsson, Guðmundur E. Páls-
son, Gunnar Arnason, Jason ívars-
son og Valdemar Jónasson.
1979-1980
Blakmótin
Meistaraflokkur kvenna stóð
sig ekki eins vel og árið áður. Liðið
varð í 3. sæti í Reykjavíkurmótinu,
Haustmótinu og Iþróttahátíðar-
móti ÍSÍ, í 4. sæti í 1. deildinni en
komst í úrslit í Bikarkeppninni og
tapaði. Þjálfari var Benedikt Hösk-
uldsson.
í íslandsmóti 2. flokks kvenna
léku aðeins tvö lið og þar tapaði
Þróttur fyrir UBK. Þjálfarar voru
BjörgBjörnsdóttir, Þorvaldur Þor-
valdsson, Axel Gunnlaugsson og
Steina Ólafsdóttir.
3. flokkur kvenna æfði með 2.
flokki en þegar að móti kom
reyndust ekki nógu margar stúlk-
ur á réttum aldri, svo ekki varð af
þátttöku í mótinu.
Meistaraflokkurkarlabyrjaði af
krafti og sigraði í Reykjavíkurmóti
og Haustmóti og tapaði þá aðeins
einni hrinu í 7 leikjum. Liðið varð
svo í 2. sæti í 1. deild, Bikarkeppni
og Íþróttahátíðarmótinu. Þjálfari
var Kristján Oddsson, íslenskur
ríkisborgari, uppalinn í Svíþjóð,
og kom hann hingað sérstaklega
til að þjálfa hjá Þrótti.
1. flokkur karla varð í neðsta
sæti á Haustmótinu og 4. sæti í
sínum riðli í íslandsmótinu. Liðs-
stjóri var Gunnar Arnason.
2. flokkur karla sigraði í Hrað-
móti BLÍ, en tapaði svo fyrir HK í
afmælismóti þess félags. Á ís-
landsmótinu varð liðið í 3. og
neðsta sæti enda liðið nær ein-
göngu skipað leikmönnum úr 3.
floklu.
3. flokkur stóð sig allvel en
meistaraheppnina vantaði í
nokkrum leikjum. Liðið sigraði í
Haustmóti og hraðmóti, en varð í
3. sæti í afmælismóti HK, íslands-
móti og Íþróttahátíðarmóti ÍSÍ.
Þjálfarar voru Atli Sigurðsson og
Guðmundur E. Pálsson.
4. flokkur karla varði heiður
deildarinnar með því að hljóta
eina íslandsmeistarartitil deildar-
innar og reyndar félagsins alls árið
1980. Áður hafði liðið orðið í 3. sæti
í Hraðmóti og HK-móti. Á íþrótta-
hátíðinni varð liðið svo í 2. sæti.
Þjálfari var Guðmundur E. Páls-
son.
Öldungaflokkurinn varð að
gera sér að góðu 6. og neðsta sætið
í Öldungamótinu.
Úrvalslið
í A-landsIiði kvenna léku Björg
Björnsdóttir og Sigurhanna Sig-
fúsdóttir en í B-landsliði þær Björg
Hinn sænski þjálfari og leikmaður Þróttar, Matthi Eliasson, íklæddur þjóðbúningi (slenskra
sjómanna, sýnir hér ljósmyndara hluta af verðlaunagripum ársins 1978 ásamt þeim Magnúsi
Óskarssyni, formanni Þróttar, Gunnari Árnasyni, formanni blakdeildar og Benedikt Höskulds-
syni.