Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 49

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 49
ÞRÓTTUR 40 ára 49 seinna tók hann að dæma hjá yngri flokkunum, og gerði það eitt sumar, en hefur lagt flautuna á hilluna að nýju. Stefán Sigurðsson tók dómara- próf 1979 og hlaut landsdómara- próf 1983. Hann er einn þessara hæglátu manna sem ekki ber mik- ið á í leik, en er þeim mun betri dómari og fellur vel inn í leikinn og hefur komið vel frá dómgæslu sinni. Hann hefur ekki dæmt mjög mikið, en er alltaf tiltækur. Margra annarra dómara væri vissulega gaman að geta hér, enda þótt þeir hafi ekki tekið landsdóm- araprófið. Dómarar Þróttar frá upphafi eru margir og hafa unnið gott verk. Einn úr þeim hópi sem ekki tók landsdómarapróf en vann þó mjög langt og gott starf var Bjöm Katísson, en hann starf- aði jafnframt að félagsmálum dómara. G.N. Blak: Evrópukeppni meistaraliða 1982 Meistaraflokkur karla tók þátt í Evrópukeppni meistaraliða í blaki annað árið í röð og aftur lent- um við á móti norsku meisturun- um. Nú var þó ferðalagið sýnu lengra, því Noregsmeistararnir voru frá Tromsö í Norður-Noregi. Samið var um að leika báða leikina í Trömsö, en heimamenn greiddu uppihald og helming ferðakostn- aðar Þróttar. Það var kátur flokkur Þróttara, sem hélt af stað til Noregs föstu- daginn 12. nóvember 1982, en leik- irnir fóru fram Iaugardag 13. og sunnudag 14. nóvember. Við vissum töluvert um lið BK Tromsö. Það var skipað stórum og sterkum leikmönnum, sem flestir hafa leikið í norska landsliðinu. Við vissum því að róðurinn yrði erfiður og út í hött að stefna að sigri. Við fórum því með það í huga að gera okkar besta, en reiknuðum ekki með sigri. Enda varð það raunin, við töpuðum fyrri leiknum 0-3; 3:15, 1:15 og 7:15, - og seinni leiknum einnig 0:3; 11:15,1:15,12:15. Fyrri leikur- inn tapaðist á óþarfa virðingu fyrir mótherjunum samfara mikilli taugaspennu, en í 1. og 3. hrinu í seinni leiknum stóðum við mjög vel í þeim norsku og vorum um tíma með forystu í báðum. Ahorf- endur voru um 1500 á fyrri leikn- um en um 1000 á þeim síðari. Móttökur norsku meistaranna voru mjög góðar, t.d. lék hljóm- sveit létt lög í salnum fyrir leikina. Við bjuggum á SAS hótelinu í Tromsö sem er eitt það flottasta í Noregi. Bæjarstjórnin bauð okkur í matarboð sem heppnaðist í alla staði vel. Okkur var sýnt það markverðasta í bænum, t.d. stórt byggðasafn þar sem m.a. var rakin saga Lappanna. Á leiðinni heim dvöldum við einn sólarhring í Osló og gistum hjá Guðmundi E. Pálssyni og Ant- oni Bjarnasyni. Við þurftum að bíða í 8 tíma á Fornebuflugvelli eftir að flugvélin kæmi frá Islandi og ekki voru menn hrifnir af því. Nú, nú, flug- vélin kom og flugið á "klaka" gekk greitt og var þar með lokið þátt- töku Þróttar í Evrópukeppni þetta árið. í ferðinni tóku þátt: Jón Árna- son, Gunnar Árnason, Haraldur Geir Hlöðversson, Sveinn Hreins- son, Böðvar H. Sigurðsson, Lár- entsíus H. Ágústsson, Leifur Harð- arson og Björg Björnsdóttir, en hún varð eftir í Osló. Þar bættist í hópinn fararstjóri og liðsstjóri, enginn annar en Guðmundur "Fommi" Pálsson. G.Á ItOtttítfSé Dcttc rr BK Tromsos motstandcr Throttur - de e amatorer a-eya! som Jeg herer rr vinlig pá BK's hcimckamper. Mannen bak dissc ord heler Gun- nar. Arnasson, generalsekrelsr I Islandsk volleybalirorbuod. saml formann og lidligere kaplein i Throllur, som lil helga skal spllle dobbdlkamp mol BK Tromsa I Enropa-cupen I volleyball. — Nér Gannar Arnasson frykler BK, er be- grunnetoen fnlgende:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.