Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 14
og voru Skotarnir yfir sig ánægðir
með ferðina.
Stjórn deildarinnar var skipuð
eftirtöldum: Tryggvi E. Geirsson
formaður, Stefán J. Sigurðsson,
Sigurður Jónsson, Guðmundur
Vigfússon og Friðjón Hallgríms-
son.
1980
Þau nýmæli urðu að ákveðið
var að ráða erlendan þjálfara fyrir
1. deildarlið félagsins. Fyrir valinu
varð Englendingurinn Ron Lewin
og hóf hann störf í febrúarbyrjun.
Æfingar hófust af miklum krafti
og fjöldi leikmanna var mættur í
slaginn. Lét árangurinn ekki á sér
standa og aðeins breyttar reglur
komu í veg fyrir sigur liðsins á
Reykjavíkurmótinu.
Margt fer öðru vísi en ætlað er,
menn virtust halda að hlutirnir
myndu nú ganga af sjálfu sér. Svo
fór að sjálfsögðu ekki og náði liðið
ekki að sýna það sem vitað var að
bjó í því og fall í 2. deild varð ekki
umflúið. Var það gífurlegt áfall því
liðið hafði getu til að vera í einu af
fimm efstu sætum deildarinnar.
Annar útlendingur tók þátt í
slagnum þetta ár, Skotinn Harry
Hill, sem fenginn var gagngert
hingað til lands til að styrkja liðið,
auk þess að þjálfa 2. og 3. flokk.
Liðinu var greinilega styrkur í
honum en því miður missti hann
marga leiki úr vegna meiðsla.
Það má því segja að þessi til-
raun með erlendan þjálfara og
leikmann hafi mistekist þó skuld-
inni verði alls ekki skellt á þá. Ber
leikmönnum saman um að Ron
hafi verið frábær þjálfari, en því
miður ekki náð að stilla saman
strengina er út í leikina var komið.
Eins og kemur fram hér að ofan
þjálfaði Harry Hill 2. og 3. flokk.
Vegna tímaskorts og kannski
skorts á áhuga sinnti hann því ekki
sem skyldi. Arangur varð því ekki
eins og vænst hafði verið, þó
komst 3. flokkurinn í úrslita-
keppnina í íslandsmótinu en
hafnaði þar í 7. sæti. Annar flokk-
urinn var fyrir neðan meðallag.
Fjórði flokkur var eini flokkur-
inn sem vann til verðlauna á árinu.
Sigraði flokkurinn á Reykjavíkur-
mótinu og má segja að þjálfarinn,
Gunnar R. Ingvarsson, hafi gert
kraftaverk með mjög fámennan
hóp. Hlaut 4. flokkurinn Middles-
ex Wanderers-bikarinn.
Fimmti flokkur undir stjórn
Helga Þorvaldssonar og 6. flokkur
sem Tryggvi E. Geirsson stjórnaði,
unnu ekki marga sigra en sýndu
góðar framfarir.
Þrír leikmenn léku A-landsleik
fyrir ísland á árinu, ý>eir Jóhann
Hreiðarsson, Páll Olafsson og
Ágúst Hauksson, en sá síðasttaldi
lék einnig með landsliði leik-
manna 21 árs og yngri og hefur
þar með náð að leika með öllum
landsliðum íslands.
Fjórir piltar frá félaginu léku
með Drengjalandsliði íslands, þeir
Guðmundur Erlingsson, Kristján
Jónsson, Sverrir Pétursson og
Kjartan Broddi Bragason, sem var
fyrirliði liðsins. Þá lék Nikulás
Jónsson með Unglingalandslið-
inu.
Níu Þróttarar voru valdir til að
leika með Reykjavíkurúrvali í hin-
um ýmsu aldursflokkum í tilefni
Íþróttahátíðar. Þeir voru: Nikulás
Jónsson 2. fl., Sverrir Pétursson og
Pétur Grétarsson (Arnþórsson) 3.
fl., Atli Helgason og Björgvin Páls-
son 4. fl., og úr 6. flokki Þórir Egg-
ertsson, Þorvaldur Ingimundar-
son, Indriði Einarsson og Ólafur
Kr. Sveinsson.
Knattspyrnuliðið ROYN frá
Færeyjum kom í stutta heimsókn
til íslands og var ferðin skipulögð
af Þrótti. Stansið var stutt í Reykja-
vík, aðeins fjórir dagar, en þó nóg
til að leika einn leik og líta í kring-
um sig hér á suðvestur-horninu.
Þjálfarar 4. og 5. flokks fóru
með drengina í ævintýraferð til
Hornafjarðar þar sem m.a. var
gengið á jökul og siglt um ósinn
auk þess að leika marga leiki gegn
Sindramönnum, sem tóku á móti
hópnum af glæsileik í einu orði
sagt.
Tveir dómarar, þeir Grétar
Norðfjörð og Magnús V. Péturs-
son náðu þeim merka áfanga að
hafa dæmt fyrir Þrótt í 30 ár eða
nærri frá byrjun.
Stjórn deildarinnar var stækk-
uð til muna og áttu eftirtaldir sæti
í henni: Tryggvi E. Geirsson for-
maður, Guðmundur Vigfússon,
Stefán J. Sigurðsson, Helgi Guð-
mundsson, Gunnar Christiansen,
Þorvarður E. Björnsson, Óli P. Ól-
sen, Júlíus Óskarsson, Sigurður
Þróttur-KR 1:1 í 1. deild 1979. Ólafur K. Ólafs markvörður Þróttar handsamar knöttinn
örugglega. A myndinni sjást Jón Oddsson, Rúnar Sverrisson, Ólafur, Sverrir Einarsson og
Wilhelm Frederiksen.