Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 13

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 13
ÞROTTUR 40 ára 13 Sama var uppi á teningnum hjá 2. flokki og árið áður, flestir pilt- anna léku með meistaraflokki og voru ekki notaðir með sínum flokki nema endrum og eins. Þeim Guðmundi Vigfússyni og Þor- varði Björnssyni, þjálfurum flokksins, var því gert erfitt fyrir. En liðið náðist saman að lokum og þá lét árangurinn ekki á sér standa og varð liðið sigurvegari í Haust- mótinu. Alls tíu Þróttarar voru valdir í landslið á árinu. Þeir Halldór Ara- sony Jón Þorbjörnsson og Þorvald- ur I. Þorvaldsson léku með Ung- lingalandsliðinu í úrslitakeppni UEFA, sem fram fór í Ungverja- landi. Þá var Stefán Stefánsson varamaður liðsins. Þegar valið var í sama lið fyrir næstu UEFA-kepp- ni voru þeir Arsæll Kristjánsson, Ottó Hreinsson, Rúnar M. Sverris- son og Sverrir Einarsson kallaðir til og léku allir með liðinu. Að lok- um léku þeir Ágúst Hauksson, Ólafur Magnússon og Páll Ólafs- son með Drengjalandsliðinu á Norðurlandamótinu, sem haldið var hér á landi. Halldór Bragason náði þeim áf- anga að leika sinn 200. leik með meistaraflokki. Meistaraflokkur fór í æfinga- búðir til Skotlands og lék þrjá leiki í ferðinni. Gengu þeir misjafnlega. Stjórn deildarinnar skipuðu sömu menn og árið áður. 1977 Dvöl félagsins varð ekki löng í 2. deildinni að þessu sinni og vannst öruggur sigur og þar með sæti meðal þeirra bestu að ári. Þá gekk liðinu nokkuð sæmilega í öðrum mótum. Þjálfari flokksins var Theódór Guðmundsson og var liðið í góðum höndum. Frammistaða 2. flokkis var stór- glæsileg og sigraði liðið í öllum sínum leikjum bæði í Reykjavíkur- og íslandsmótum. Skoraði liðið 58 mörk gegn 9 í þeim mótum. Þá varð liðið í þriðja sæti í Haustmót- inu. Flokkurinn vann að sjálf- sögðu Middlesex Wanderers-bik- arinn. Þjálfari var Helgi Gunnars- son. Fjórði flokkur stóð sig einnig vel undir stjórn Helga Þorvalds- sonar og varð í öðru sæti á Reykja- víkur- og Haustmótunum og í sín- um riðli á Islandsmótinu. Þriðji flokkur undir stjórn Aðal- steins Örnólfssonar, fimmti flokk- ur sem Gunnar Ingvarsson þjálf- aði og sjötti flokkur undir stjórn Stefáns Stefánssonar, náðu sér al- drei á strik. Sjö Þróttarar voru valdir í landslið á árinu. Ársæll Kristjáns- son, Ottó Hreinsson, Rúnar M. Sverrisson, Sverrir Einarsson, Ágúst Hauksson, Ólafur Magnús- son og Páll Ólafsson léku allir með Unglingalandsliðinu. Þá lékÁgúst einnig með Drengjalandsliðinu. Aðalsteinn Örnólfsson lék í 100. sinn í meistaraflokki félagsins á ár- inu. í tilefni af 70 ára afmæli Óskars Péturssonar var hann sæmdur gullmerki KRR og silfurmerki KSÍ fyrir störf sín í þágu knattspyrnu- íþróttarinnar. Knattspyrnudeildin hélt vel heppnaða firmakeppni í innan- hússknattspyrnu, sem á næstu árum átti eftir að verða langvin- sælasta keppni sinnar tegundar. Meistaraflokkur og blanda úr 3. og4. flokki ferðuðust til Skotlands og léku þar nokkra leiki. Stjórn deildarinnar skipuðu: Júlíus Óskarsson, formaður, Axel Axelsson, Friðjón Hallgrímsson, Helgi Þorvaldsson og Bragi Guð- jónsson. 1978 Ekki unnust margir mótasigrar á árinu en ánægjulegasti árangur eins flokks var að sjálfsögðu að félagið hélt sæti sínu í 1. deild und- ir stjórn Þorsteins Friðþjófssonar. Er það í fyrsta sinn sem það tekst en til þessa hafði dvölin aldrei orð- ið lengri en eitt ár. Tveir flokkar unnu til meist- aratitla. Fjórði flokkur varð Reykjavíkurmeistari utanhúss undir stjórn Tryggva E. Geirsson- ar og 2. flokkur sigraði í sama móti innanhúss undir stjórn þeirra Halldórs Arasonar og Þórðar Theódórssonar, en þeir félagar hlupu undir bagga þegar ráðinn þjálfari hætti eftir stuttan tíma. Aðrir flokkar voru nokkuð undir meðallagi í árangri og verð- ur ekki farið nánar út í það. Þjálfari 3. flokks var Helgi Þorvaldsson, Gunnar Ingvarsson þjálfaði 5. flokk, auk þess að hafa umsjón með U.flokki. Þá var stjórn 6. flokks í öruggum höndum Stefáns Stefánssonar. Aðeins einn Þróttari var valinn í landslið á árinu og var það mikil breyting frá árunum á undan. Það var Ágúst Hauksson, sem lék með Unglingalandsliðinu. Fjórði flokkur hlaut Middlesex Wanderers-bikarinn að þessu sinni. Stjórn deildarinnar skipuðu: Friðjón Hallgrímsson formaður, Axel Axelsson, Tryggvi E. Geirs- son, Helgi Þorvaldsson og Stefán J. Sigurðsson. Varamenn voru þeir Gunnar R. Ingvarsson og Júlíus Óskarsson og störfuðu þeir jafnt sem aðalmenn. 1979 Þau ánægjulegu tíðindi gerðust á árinu að Þróttur hélt sæti sínu í 1. deild og virtist vera að festa sig í sessi. Þorsteinn Friðþjófsson stjórnaði liðinu af röggsemi eins og árið áður. Af öðrum flokkum var það 3. flokkur sem stóð upp úr. Varð flokkurinn Reykjavíkurmeistari utanhúss og innan og að auki Haustmeistari. Þjálfari var Helgi Þorvaldsson. Fjórði flokkur varð Reykjavík- urmeistari innanhúss undir stjórn Gunnars Ingvarssonar og 2. flokk- ur, sem Haukur Þorvaldsson þjálf- aði, lék til úrslita á íslandsmótinu en beið Iægri hlut gegn KR. Fyrsti flokkur stóð sig mjög vel á Reykjavíkurmótinu, en 5. flokk- ur sem Jónas Hjartarson þjálfaði og 6. flokkur undir stjórn Rúnars Sverrissonar voru fyrir neðan meðallag. Tveir piltar voru valdir til að leika með Drengjalandsliðinu á NM í Svíþjóð. Voru það þeir Guð- mundur Erlingsson og Nikulás Jónsson. Deildin gekkst fyrir afmælis- móti í innanhússknattspyrnu í til- efni af 30 ára afmæli félagsins. Tíu lið tóku þátt í mótinu og varð Fram sigurvegari og hlaut veglegan bik- ar sem Liturinn í Síðumúla gaf til keppninnar. Tveir flokkar félagsins lögðu land undir fót á árinu. Meistara- flokkur fór til Færeyja í boði ROYN í Hvalba á Suðurey, en það lið þjálfaði Guðmundur Gíslason, Þróttari. Dvaldi liðið í tíu daga í Færeyjum og lék fjóra leiki, vann þrjá en tapaði einum. Þriðji flokk- ur hélt til Skotlands að venju og lék þar þrjá leiki og gekk vel. Ferð þessi var farin til að endurgjalda heimsókn Drumchapel Amateurs til Þróttar fyrr um sumarið. Tókst sú heimsókn mjög vel í alla staði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.