Fréttablaðið - 28.08.2021, Síða 4

Fréttablaðið - 28.08.2021, Síða 4
n Tölur vikunnar 2.310 Íslendingar eru 90 ára eða eldri. Hefur þeim fjölgað um meira en helming frá aldamótum. 57 prósent landsmanna vilja að ríkið veiti Landspítalanum miklu meira fé til rekstrar en nú er. 8 hafa sótt um bætur til Sjúkra- trygginga vegna aukaverkana af bóluefnum við Covid-19. 2 létust af völdum Covid-19 á Íslandi í vikunni. 76 prósent landsmanna vilja láta bjóða út aflaheimildir. Fazal Omar f lúði frá Kabúl í Afganistan til Íslands í vikunni ásamt eiginkonu sinni og fjórum bör nu m . Fjöl­ sk yldan dvelur nú á sóttvarna­ hóteli. n Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar er ein þeirra sem hafa staðið í ströngu við úthlutanir til efnalítilla for­ eldra í byrjun skólaársins. Meira en 80 börn hafa fengið aðstoð. Mikill skortur er á fartölvum til úthlutunar. n Magni Ásgeirsson hefur ekki sofið með sæng í rúmar sex vikur vegna hitabylgj­ unnar á Austur­ landi. Hann segir ástandið minna á Spán. n Stella Thors móðir 12 ára barns á einhverfurófi íhugar að fara í mál við hið opinbera þar sem barninu líður illa í skóla­ umhverfinu. n n Fjögur í fréttum K Y N N U M N ÝJ A N J E E P® A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U FJ Ó R H J Ó L A D R I F UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 VERÐ HLAÐINN AUKABÚNAÐI FRÁ 6.499.000 KR.* N Á N A R I U P P LÝ S I N G A R Á J E E P. I S • STÆRRI VÉL 240 HÖ • 360° MYNDAVÉL • LÁGT DRIF • LEÐURSÆTI OG MÆLABORÐ • SNERTILAUS OPNUN AFTURHLERA • FJARLÆGÐARSTILLTUR HRAÐASTILLIR N Ý H Ö N N U N N Ý I N N R É T T I N G N Ý TÆ K N I N Ý R Ö R Y G G I S B Ú N A Ð U R * S V A R T U R L I M I T E D. A Ð R I R L I T I R 6 . 6 6 2 . 0 0 0 ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ ÁDRIFRAFHLÖÐU PLUG-IN HYBRID NÚ FÁANLEGUR Í TRAILHA WK ÚTFÆRSLU Maður um fimmtugt skaut fjölmörgum skotum að lög­ reglufólki á Egilsstöðum. Lögreglan skaut manninn í kviðinn. arnartomas@frettabladid.is mhj@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL „Það voru ekki margir sem sóttu þetta opna hús, en einhverjir þó," segir Gunnlaugur Bragi Björnsson upplýsingafulltrúi Rauða krossins, um áfallahjálp sem stóð íbúum Egilsstaða til boða í kjölfar þess að Lögreglan á Austur­ landi skaut vopnaðan mann á Egils­ stöðum eftir að maðurinn skaut í átt að lögreglu. Lögreglunni barst tilkynning um mann sem væri vopnaður skotvopni í íbúðarhúsi og hefði uppi hótanir um að beita því. Eftir um klukkustundar umsátur kom maðurinn út úr húsinu og hóf þá skothríð, meðal annars að lögreglu sem skaut manninn í kviðinn. Var maðurinn í kjölfarið f luttur til Reykjavíkur með sjúkraþyrlu. Engir lögreglumenn særðust. Starfsmenn héraðssaksóknara og tæknideildar lögreglunnar á höfuð­ borgarsvæðinu f lugu til Egilsstaða í kjölfarið. Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, segir að rann­ sókn málsins sé enn á frumstigi. „Það var f logið með tæknideild og rannsóknarlögreglu frá okkur og byrjað strax að vinna í þessu,“ segir Ólafur. „Tæknideildin fer strax í að rannsaka vettvanginn og vinnur allt tengt því,“ bætir hann við. Maðurinn er á fimmtugsaldri og er líðan hans stöðug eftir að hann gekkst undir aðgerð. Gunnlaugur segir að áföll geti komið upp eftir á og það hafi ekk­ ert endilega komið á óvart að fáir hafi nýtt sér áfallahjálpina sem í boði var. „Við minnum þess vegna á hjálparsímann og netspjallið fyrir þá sem vilja ræða málin eftir því sem frá líður, og okkar fólk verður áfram á tánum og tilbúið í það sem þarf,“ segir hann. n Rannsókn á skotárás á frumstigi Toyota Landcruiser með sundurskotna framrúðu eftir skot byssumannsins. Nágranni sagði frá því að þegar byssu- maðurinn hefði komið út hefði hann skotið út um allt. MYNDIR/GUNNAR GUNNARSSON Nágrannar voru hvattir til að halda sig heima, enda hættan mikil. Nýnemavígsla skammt frá Seint á fimmtudag fékk lögreglan á Austurlandi tilkynningu um mann með skotvopn í Dalseli á Egilsstöðum. Eftir um klukkustundar umsátur, þar sem maðurinn var meðal annars beðinn um að leggja frá sér vopn, kom hann út og eins og nágranni lýsir atburðunum fór hann að skjóta á allt og alla með loftbyssu og haglaskotum. Lögreglan skaut hann í kviðinn og var hann fluttur með þyrlu í að- gerð þar sem líðan hans er stöðug. Tækni deild lög reglunnar rann- sakar nú vett vang á Egils stöðum. Barnanefnd Múlaþings var einnig kölluð til vegna málsins. Nýnemar í Grunnskólanum á Egilsstöðum voru í nýnemavígslu í svokölluðum Selskógi þegar atburðarásin átti sér stað. 4 Fréttir 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.