Fréttablaðið - 28.08.2021, Qupperneq 8
Viðspyrna er í flestum
atvinnugreinum á milli ára.
Atvinnulífið er nú að ná sama
uppgangi og fyrir Covid-
faraldurinn og vel það.
ser@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Fjörkippur hefur færst í
f lestar atvinnugreinar á Íslandi á
milli áranna 2020 og 2021 og á það
einkum og sér í lagi við um ferða-
þjónustu. Þá vekur sérstaka athygli
að viðspyrnan er einnig veruleg á
milli áranna 2019 og 2021, það er frá
því fyrir tíma farsóttarinnar.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
Hagstofunnar þar sem segir að
meiri velta hafi verið í f lestum
atvinnugreinum á tímabilinu maí
til júní 2021 miðað við sama tímabil
á árinu á undan. Þessi vöxtur skýrist
einkanlega af því að vorið 2020 var
mikið um lokanir og takmarkanir
vegna kórónaveirufaraldursins.
Ef tímabilið frá vormánuðum
2019, fyrir tíma pestarinnar, er
borið saman við maí og júní á þessu
ári, sést að velta jókst verulega í
framleiðslu, sjávarútvegi og flestum
greinum verslunar. Það merkir með
öðrum orðum að atvinnulífið er að
ná sama uppgangi og fyrir tíma
veirukreppunnar – og vel það.
Þær greinar sem hafa bætt sig
mest frá því fyrir farsóttina eru
heildsala, 19 prósent, smásala, 21
prósent, bílasala, 28 prósent, málm-
iðnaður, 34 prósent, og starfsemi
erlendra fyrirtækja hér á landi, 291
prósent.
Viðsnúningur í afkomu margra
greina milli áranna 2020 og 2021 er
einnig mikill, ef áðurgreind tímabil
eru skoðuð, einkanlega hjá ferða-
skrifstofum, en rekstur þeirra dróst
saman um 65 prósent árið 2020 en
jókst um 439 prósent í ár. Gistiþjón-
usta fer úr 54 prósenta samdrætti í
126 prósenta vöxt og bílaleiga úr 33
prósenta niðursveiflu í 30 prósenta
uppsveiflu. ■
Atvinnulífið tekur
hressilega við sér
0%
100%
200%
300%
400%
■ 2020 ■ 2021
Ferða-
skrifstofur
Gisti-
þjónusta
Bílaleigur
-65%
439%
126%
30%
-54%
-33%
✿ Ferðaþjónustugreinar
GEFUM FRAMTÍÐINNI
TÆKIFÆRI
LANDSÞING VIÐREISNAR
28. ÁGÚST 2021
Landsþingið er rafrænt. Opið streymi verður á
vidreisn.is og facebook.com/vidreisn kl. 16-18.
Sjáðu hvaða framtíðarmöguleika Viðreisn
boðar í beinni útsendingu.
Bílaleigur fóru úr 33 prósenta niðursveiflu í 30 prósenta uppsveiflu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
thorgrimur@frettabladid.is
AFGANISTAN Að minnsta kosti 110
létust í sjálfsmorðssprengjuárás-
inni á alþjóðaflugvöllinn í Kabúl
á f immtudaginn og enn f leiri
særðust. Þrettán hinna látnu voru
bandarískir hermenn og Joe Biden
Bandaríkjaforseti hefur heitið því
að ná fram hefndum á þeim sem
skipulögðu árásina. „Við munum
ekkert fyrirgefa,“ sagði hann í ávarpi
á föstudaginn. „Við munum engu
gleyma. Við munum klófesta ykkur
og láta ykkur borga.“
Landsdeild íslamska ríkisins í
Afganistan lýsti árásinni á hendur
sér. Mikill mannfjöldi hefur safnast
saman á flugvellinum þar sem bæði
Afganir og erlendir ríkisborgarar
reyna nú að sleppa frá landinu vegna
endurkomu talíbana á valdastóla.
Talíbanar lögðu undir sig landið
á mjög skömmum tíma eftir að
Bandaríkjamenn hófu að draga her
sinn frá Afganistan og hertóku Kabúl
þann 15. ágúst. Áætlað er að síðustu
bandarísku hermennirnir hverfi frá
landinu þann 31. ágúst og því eru
Bandaríkjamenn í kapphlaupi við
tímann til að forða ríkisborgurum
sínum og afgönskum bandamönn-
um frá Afganistan áður en talíbanar
grípa til hefndaraðgerða.
Auk þeirra sem hafa fjölmennt á
flugvöllinn hafa hundruð þúsunda
Afgana f lúið yfir landamærin við
Pakistan af ótta við væntanlega
ógnarstjórn talíbana. Pakistanar
hyggjast ekki taka við afgönskum
flóttamönnum nema þeir séu í leit
að læknishjálp eða geti sýnt fram á
lögheimili í landinu.
Samkvæmt yfirlýsingu banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins eru
enn um 5.400 manns á flugvellinum
í Kabúl sem bíða þess að komast
með flugi frá landinu. ■
Pakistanar taka ekki við flóttafólki
Talíbani stendur vörð þar sem
sprengja sprakk á flugvellinum í
Kabúl. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
8 Fréttir 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ