Fréttablaðið - 28.08.2021, Side 10
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
n Gunnar
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
Því er
nefnilega
svo farið
að fullveldi
er nafnið
tómt nema
því fylgi
efnahags
legt sjálf
stæði.
Þeir sem
keppast nú
við að bera
saman
kóróna
veiruna
og bíla
römbuðu
á snotra
samlík
ingu. Hún
gengur
hins vegar
þvert á
þeirra eigin
málflutn
ing.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser@frettabladid.is
Engum dylst að plága herjar á heims
byggðina. Sumir virðast telja pláguna
Þórólf Guðnason. „Það er búið að persónu
gera þessa baráttu,“ sagði sóttvarnalæknir
um átökin við kórónaveiruna í viðtali við
Hringbraut í vikunni. Hann sagði sumum
finnast það vera sóttvarnalæknir sem væri
að „eyðileggja allt, skemma fyrir okkur allt“
og valda því að „við getum ekki gert neitt“.
Öfgar óma víða í umræðunni um næstu
skref í faraldrinum. Látið er í veðri vaka
að vægar sóttvarnaaðgerðir jafnist á við
kúgun í alræðisríki; að í stöðunni séu
aðeins tveir kostir: Milton Friedman eða
Maó.
Þeir sem láta eins og Þórólfur Guðnason
eigi sér leyndan draum um að endurfæðast
sem Xi Jinping benda gjarnan á að lífið er
ekki hættulaust. Við getum dottið niður
tröppur, kafnað á pylsubita eða orðið fyrir
bíl. Við verðum því einfaldlega að lifa með
kórónaveirunni.
Við fyrstu sýn virðist slíkur málf lutning
ur rökréttur. Þótt bifreiðar valdi fjölda slysa
á ári hverju bönnum við ekki bíla. En þegar
betur er að gáð kemur í ljós að bifreiðar eru
ekki sú einfalda birtingarmynd frelsis sem
margir vilja vera láta.
Í ágúst árið 1869 fór írski náttúrufræð
ingurinn Mary Ward í kærkomið frí. Mary
hafði lagt hart að sér við að hasla sér völl í
vísindasamfélagi Viktoríutímans samhliða
því að annast börn sín átta. Hún ákvað að
taka sér hvíld og heimsækja frænda sinn,
jarlinn William Parsons, sem bjó í kastala
vestan við Dyflinni.
Jarlinn var mikill áhugamaður um verk
fræði og hafði meðal annars smíðað gufu
knúna bifreið. Hinn 31. ágúst bauð jarlinn
Mary í bíltúr. Þegar farartækið beygði fyrir
horn við nærstadda kirkju vildi ekki betur
til en svo að Mary kastaðist út. Hún lenti
fyrir framan bílinn sem ók yfir hana. Mary
lést á slysstað. Hún er fyrsta þekkta fórnar
lamb banaslyss í umferðinni.
Saga bílsins er blóði drifin. Í árdaga hans
stóðu íbúar borga víða um heim frammi
fyrir nýrri ógn: ofsaakstri, árekstrum og
bílveltum. Gangandi vegfarendur áttu fótum
fjör að launa. Fjöldi foreldra syrgði börn
sín sem höfðu látið lífið að leik fyrir utan
heimili sín er bifreið var ekið yfir þau.
Til að ná tökum á ástandinu var umferðar
reglum komið á. Vegir voru lagðir og
umferðar skilti reist. Akstur undir áhrifum
áfengis var bannaður. Þeir sem lutu ekki
skorðunum áttu yfir höfði sér sektir eða
fangelsisvist. En meira þurfti til. Bílafram
leiðendum var gert að auka öryggi bifreiða
sinna. Bremsur voru bættar, lagi bílanna
breytt, gler í rúðum var styrkt, stefnuljós,
öryggisbelti og loftpúðar voru fundin upp.
Þeir sem keppast nú við að bera saman
kórónaveiruna og bíla römbuðu á snotra
samlíkingu. Hún gengur hins vegar þvert
á þeirra eigin málflutning. Við upphaf
tuttugustu aldar, þegar rann upp fyrir fólki
að bílabyltingin yrði blóðug, stóð valið ekki
á milli bensínknúinnar dauðagildru annars
vegar og hestakerrunnar hins vegar. Saga
bifreiðarinnar sýnir að við nýjar aðstæður,
þar sem lífi og limum er ógnað, er hinn
gullni meðalvegur líklegastur til langtíma
árangurs.
„Það þýðir ekkert að afneita öllu og loka
augunum og segja bara að þessi veira sé ekki
til,“ sagði sóttvarnalæknir í fyrrnefndu við
tali. Hann leggur til „temprun“ viljum við
öðlast stöðugleika.
Ef bifreiðin væri sá vitnisburður frelsis
sem alhæfingarsinnar halda fram, ækjum
við nú um í sætisbeltalausum Ford T bílum,
hægra eða vinstra megin götunnar eftir því
hvernig lægi á okkur, fyrir aftan rúðu sem
skæri okkur eins og rifjárn ef við keyrðum á
ljósastaur – eða barn að leik.
Hámarkshraði „temprar“ skaðsemi bif
reiða. Fáum dytti hins vegar í hug að halda
því fram að hámarkshraði sé það sama og að
banna bíla. n
Milton Friedman eða Maó
Dásamlegasta fullveldisafsal sem nokkur maður getur hugsað sér er að finna rétta makann og deila með honum kjörum um ókomin ár, jafnt í blíðu og stríðu, en það hefur
almennt verið kallað að festa ráð sitt.
Mikilvægasta fullveldisafsal hverrar þjóðar
er að taka höndum saman við aðrar þjóðir í
verslun og viðskiptum til að efla atvinnustig og
afkomu almennings svo samfélagsþjónustan
geti verið eins þróttmikil og kostur er.
Fullveldi, eitt og sér, án þátttöku í milliríkja
samningum og alþjóðlegu samstarfi, ber í
besta falli stöðnunina í sjálfu sér, en þó líklega
miklu fremur afturför, jafnt fyrir almenning og
atvinnugreinar í hvaða landi sem er.
Því er nefnilega svo farið að fullveldi er nafnið
tómt nema því fylgi efnahagslegt sjálfstæði. Og
efnahagslegu sjálfstæði nær ekki nokkur þjóð
nema að hámarka auðlindir sínar með frjálsum
viðskiptum við aðrar þjóðir.
Og kannski er Ísland gleggsta dæmið um
mikilvægi fullveldisafsals í þessum efnum, enda
er ávinningur þess af hagkvæmum samningum
um greiða leið varnings og þjónustu á eftirsótta
markaði, með eindæmum mikilvægur. Og þeim
mun ríkulegri er akkurinn sem samningarnir
eru fjölþjóðlegri, enda er fullvíst að með því
móti komi fámennar þjóðir ár sinni best fyrir
borð – og tapa þar síður á fæð sinni eins og í tví
hliðasamningum.
Þrjár helstu fullveldisþjóðir í heiminum eru
líklega Kúba, NorðurKórea og Venesúela. Þær
eru einangraðar og efnahagslega afskiptar. Full
veldi þeirra er óumdeilt. En það er innantómt.
Þær geta ekki séð fólki sínu farborða.
Í þessum skilningi má skilja fullveldisástar
sögur íslenskrar þjóðmálaumræðu á þá vegu að
menn þrái að vera á Kúbunni. n
Á Kúbunni
KAUPTU ARMBANDIÐ
STYÐJUM STÚLKUR Á FLÓTTA
LÍNA OKKAR TÍMA
www.barnaheill.is
Skannaðu QR
kóðann og fáðu
upplýsingarnar
beint í símann.
Unnendur krónunnar hafa haldið því fram að
hún hafi bjargað íslenskri þjóð út úr kófinu. Ekk
ert verkfæri efnahagsmálanna sé mikilvægara
til sveiflujöfnunar en krónan. Og einmitt þess
vegna hafi atvinnulífið haldið sjó.
En raunveruleikinn er þessi: Góð skuldastaða
ríkissjóðs og gildur gjaldeyrisvarasjóður – í
evrum og dölum – sem ferðaþjónustan átti sinn
ríka þátt í að skapa, gerði ríkisstjórninni kleift
að taka 500 milljarða að láni, að verulegu leyti
á lægri vöxtum en nokkru sinni hafa þekkst á
Íslandi – og dreifa til smárra og stórra fyrirtækja.
Unnendur krónunnar nýta sér nefnilega aðrar
myntir en þeir trúa á. n
Lánsbjörg í bú
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 28. ágúst 2021 LAUGARDAGUR