Fréttablaðið - 28.08.2021, Síða 12
Frá því að Ronaldo
yfirgaf Manchester
United fyrir tólf árum
hefur Portúgalinn
leikið 687 leiki fyrir
félags- og landslið og
skorað í þeim 639
mörk.
kristinnpall@frettabladid.is
ÓLYMPÍULEIKAR Það verður nóg
að gera hjá þátttakendum Íslands
á Paralympics, Ólympíuleikum
fatlaðra, um helgina þegar Berg
rún Ósk Aðalsteinsdóttir, Pat
rekur Andrés Axelsson og Thelma
Björg Björnsdóttir keppa í fyrstu
greinum sínum. Þá munu Róbert
Ísak Jónsson og Már Gunnarsson
stinga sér til sunds að nýju eftir að
hafa keppt fyrr í vikunni.
Þrjú þeirra, Már, Patrekur og
Thelma, kepptu í nótt í undan
rásum í sínum greinum en Bergr
ún Ósk Aðalsteinsdóttir keppir í
kúluvarpi klukkan hálf ellefu að
íslenskum tíma. Róbert Ísak snýr
svo aftur í sundlaugina rétt eftir
miðnætti í kvöld, eftir að hafa bætt
eigið Íslandsmet í tvígang á dög
unum. Bergrún verður svo aftur á
ferðinni klukkan tíu í fyrramálið í
langstökki.
Már lýkur þátttöku Íslendinga
þessa helgina aðfaranótt mánu
dags, í undanrásunum fyrir 200
metra fjórsund. ■
Íslendingar keppa alla helgina á ÓL
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
kennara, námsráðgjafa
og stjórnenda framhaldsskóla
Umsóknarfrestur til 1. október
Námsorlof
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsorlof á framhalds-
skólastigi fyrir skólaárið 2022-2023. Umsóknir þurfa að berast
Rannís eigi síðar en föstudaginn 1. október, kl. 15:00.
Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms-
og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig
geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara
viðkomandi skóla.
Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís.
Eru umsækjendur jafnframt hvattir til að kynna sér vandlega
reglur sjóðsins og algengar spurningar.
Nánari upplýsingar gefur
Skúli Leifsson, verkefnastjóri innlendra
menntasjóða, í síma 515-5843 eða með
tölvupósti í skuli.leifsson@rannis.is.
12 Íþróttir 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 28. ágúst 2021 LAUGARDAGUR
Cristiano Ronaldo sner
ist hugur og kaus að semja við
Manchester United og snýr
því aftur á Old Trafford, tólf
árum eftir brottför sína. Hlut
irnir voru fljótir að breytast
eftir símtal frá Sir Alex
Ferguson, en Ronaldo kemur
til með að leika undir stjórn
fyrrum liðsfélaga síns.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Tæplega 4.500 dögum
eftir að Cristiano Ronaldo skoraði
síðasta mark sitt fyrir Manchester
United í nágrannaslag gegn Manc
hester City, sem fór langt með að
tryggja átjánda Englandsmeistara
titil félagsins, var það aftur Manc
hester United sem hafði betur
gegn nágrönnum sínum, þegar
það kom í ljós að Ronaldo væri á
förum frá Juventus. Ronaldo var
farinn að gæla við hugmyndina
um að leika fyrir Manchester City,
en eftir símtal við Sir Alex Fergu
son snerist Portúgalanum hugur
og bað hann umboðsmann sinn,
Jorge Mendes, um að finna leið til
að semja við Manchester United í
staðinn. Ronaldo, sem skrifar undir
tveggja ára samning við Manchester
United, leikur því undir stjórn Ole
Gunnar Solskjaer, eftir að hafa verið
liðsfélagi Norðmannsins í fjögur ár
undir stjórn Sir Alex Ferguson, en
um leið er komin pressa á Ole Gunn
ar Solskjaer að fara að vinna titla á
fjórða tímabili sínu við stjórnvölinn
hjá Manchester United.
Massimiliano Allegri, knatt
spyrnustjóri Juventus, staðfesti um
hádegisbilið í gær sögusagnir um
að Ronaldo hefði óskað eftir sölu
frá Juventus, þremur árum eftir að
hann samdi við ítalska stórveldið.
Juventus greiddi á sínum tíma
metfé fyrir Ronaldo í von um að
hann myndi reynast örlagavaldur
í eltingaleik liðsins við að vinna
Meistaradeild Evrópu. Ronaldo
kom til Ítalíu árið 2018 eftir að hafa
unnið Meistaradeildina þrjú ár í röð
í herbúðum Real Madrid og lofaði
stuðningsmönnum Juventus að 22
ára bið eftir næsta Meistaradeildar
titli myndi ljúka innan skamms. Það
hafðist ekki og virðist ljóst að það
sé uppstokkun fram undan í leik
mannahópi Juventus. Fyrir vikið
voru forráðamenn Juventus farnir
að huga að framtíðinni án Ronaldos,
enda sá portúgalski með svimandi
há laun á tíma sem flest félög eru
rekin með tapi.
Þegar Allegri staðfesti að Ronaldo
væri á förum, eftir að hafa kvatt
liðsfélaga sína á æf ingasvæði
Juventus, stefndi allt í að Ronaldo
væri á leiðinni til erkifjendanna
í Manchester City, en Solskjaer
opnaði dyrnar fyrir fyrrum liðs
félaga sínum á eigin blaðamanna
fundi stuttu síðar. „Ég átti ekki von
á því að Cristiano myndi yfirgefa
Juventus. Ég veit að Bruno er búinn
að vera í samskiptum við hann og
hann veit okkar stöðu. Ef hann er
á förum frá Juventus veit hann svo
sannarlega af okkur.“ Síðar um dag
inn bárust fréttir um að Manchester
City væri búið að gefast upp enda
væri Ronaldo búinn að ákveða að
snúa aftur á Old Trafford.
Þrátt fyrir að vera orðinn 36
ára gamall virðist ekkert vera að
hægjast á Ronaldo. Honum tókst
ekki að standa við loforð sitt um að
færa Juventus langþráðan Meistara
deildartitil og var hluti af liði Juven
tus sem missti ítalska meistara
titilinn úr greipum sér eftir níu ára
sigurgöngu, en á sama tíma skilaði
Ronaldo iðulega sínu innan vallar.
Hann yfirgefur Juventus eftir að
hafa skorað 101 mark í 134 leikjum
í öllum keppnum sem markahæsti
leikmaður Juventus öll þrjú árin
og um leið markakóngur ítölsku
deildarinnar á síðasta ári. ■
Rómantíkin réði ákvörðun
Ronaldo um næstu árin
Solskjaer sagði Bruno Fernandes meðal annars hafa átt þátt í því að sannfæra landa sinn um að hunsa tilboð frá
Manchester City, en þeir verða nú sameinaðir á Old Trafford næstu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
897
leikir
36
ára
5
Ballon d’Or verðlaun
674
mörk
7
deildarmeistaratitlar
5
meistaradeildartitlar
Cristiano Ronaldo
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Benjamin Mendy, bak
vörður Manchester City og franska
landsliðsins, mætti fyrir dómstóla
og neitaði sök í gær, en hann er
áfram í gæsluvarðhaldi eftir að hafa
verið kærður fyrir fjórar nauðganir
og eitt kynferðisbrot. Brotin áttu sér
stað á eins árs tímabili, en hann er
kominn í tímabundið leyfi frá störf
um hjá Manchester City á meðan
málið er tekið fyrir.
Mendy hefur verið kærður fyrir
þrjár nauðganir í október á síð
asta ári, kynferðislega árás í byrjun
þessa árs og nauðgun á dögunum.
Einn einstaklingurinn sem kærir
Mendy er undir átján ára en þær eru
allar eldri en sextán ára. ■
Mendy í tveggja vikna gæsluvarðhald
NANA hefur hafið störf
á BOLD hárgreiðslustofu
í Bæjarlind 1-3 í Kópavogi,
eftir 10 ár sem stofueigandi
í Noregi.
Tímabókanir á netinu.
Verið velkomin, nýir og gamlir
viðskiptarvinir :).
Mendy byrjaði
fyrsta leik City á
tímabilinu gegn
Tottenham.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Már keppir í 100 metra baksundi og
200 metra fjórsundi.