Fréttablaðið - 28.08.2021, Síða 20
Mikill RÚV-ari
Sigmar telur sennilegt að velgengni
hans í ræðuliði FG hafi valdið því
að hann fékk tækifæri í útvarpi
hjá Aðalstöðinni og síðar X-inu.
Skömmu síðar var hann ráðinn til
RÚV þar sem hann hefur verið allar
götur síðan, ef frá er talið tveggja ára
stopp hjá Stöð 2.
„Ég er mikill RÚV-ari. Þarna er
stór hluti af mínu vinamengi og ég
tek það inn á mig ef við fáum gagn-
rýni sem ég tel ósanngjarna,“ segir
Sigmar. „En þar sem ég hef starfað
á einkamiðlum líka þekki ég það
sjónarmið að erfitt sé að keppa við
Ríkisútvarpið. Það er erfitt að keppa
við Ríkisútvarpið og fólk á Ríkis-
útvarpinu veit hversu mikil yfir-
burðastaða þetta er.“
Ríkisútvarpið var dregið inn í
umræðu um fjölmiðlafrumvarp
Lilju Alfreðsdóttur á liðnu þingi og
sitt sýnist hverjum um veru þess á
auglýsingamarkaði. Sigmar segist
ætla að taka fullan þátt í umræðum
á þingi um fjölmiðla, tjáningarfrelsi
og stöðu RÚV verði hann kjörinn.
„Það þarf að styrkja einkarekna
miðla en ég tel ekki rétt að veikja
RÚV. Þá veikjum við samfélagið
allt,“ segir hann.
Á f jölmiðlaferli sínum hefur
Sigmar farið um víðan völl. Hann
hefur stýrt fréttaskýringaþáttum,
spurningaþáttum, viðtalsþáttum,
vísindaþáttum og meira að segja
lýst Eurovision.
„Að prófa eitthvað nýtt er það
sem hefur haldið mér gangandi í
öll þessi ár,“ segir Sigmar. „Ég hef
sagt nei við verkefnum, en almennt
reyni ég að hafa opinn huga þegar
verkefnin bjóðast.“
Rakst á vegg
Sigmar hefur háð sína baráttu við
alkóhólisma og farið í nokkrar
áfengismeðferðir. Þegar hann lítur
til baka sér hann að áfengið fór aldr-
ei vel í hann, ekki einu sinni til að
byrja með.
„Upp úr tvítugu fann ég fyrir því
að þetta var orðið eitthvað meira
en ásókn í hefðbundið djamm.
Helgarnar voru farnar að lengjast
og vanlíðanin að aukast,“ segir Sig-
mar um það hvenær hann áttaði sig
á því að áfengi gæti verið vanda-
mál. „Áfengið var farið að stjórna
mér og hafa áhrif á frammistöðu
mína í vinnu og skóla. Í kringum 25
ára aldurinn rakst ég á vegg og fór í
meðferð inn á Vog. Síðan þá hef ég
vitað að ég sé alkóhólisti.“
Inni á Vogi fékk Sigmar fræðslu
um sjúkdóminn og hann gat strax
speglað alla sína hegðun í honum.
Hann sá í fyrsta sinn að hann væri
ekki einn að burðast með þær erfiðu
tilfinningar sem fylgja alkóhólisma
heldur var hann staddur í fullum
sal af fólki sem var að glíma við það
sama.
„Flest árin síðan hef ég verið edrú
en það hafa komið föll og hliðar-
skref, en sem betur fer staðið stutt
yfir,“ segir Sigmar. „Sjúkdómurinn
hjá mér er þó þannig að þegar ég hef
fallið er það alvarlegt mál og kallar
á inngrip.“
Síðasta fall kom fyrir sjö árum og
reyndist Sigmari nokkuð erfitt að
komast á lappir aftur. En fyrir það
hafði hann verið edrú í átta ár.
„Mér leið mjög illa og fannst ég
vera að bregðast bæði sjálfum mér
og fólki í kringum mig. Ég bar mikla
ábyrgð í vinnunni og var með ungt
barn í nýju sambandi, auk eldri
barna úr fyrra sambandi,“ segir Sig-
mar. „Mér var bent á að ég ætti þá að
kafa svolítið dýpra en ég hafði gert.
Og það reyndist eitt mesta gæfuspor
lífs míns.“
Misnotkun markaði djúp spor
Við tók sálfræðimeðferð hjá þerap-
ista sem kafaði með Sigmari ofan í
æsku hans. Hófst þá verkefnið að
vinna úr þeim áföllum sem Sigmar
varð fyrir sem barn og hefur áður
greint opinberlega frá. En þegar
hann var tíu ára gamall varð hann
fyrir misnotkun af hálfu manns sem
tengdist skólastarfinu.
Síðasta fall
Sigmars kom
fyrir sjö árum
og þá fór hann
í sálfræðimeð-
ferð til þess að
kafa dýpra ofan
í rætur vanda
síns.
FRÉTTABLAÐIÐ/
HEIÐA
„Allt í einu fór ég að skilja sam-
hengið í lífinu mínu,“ segir Sigmar
um afrakstur þessarar sálfræðimeð-
ferðar. „Það er skrítið að vera orðinn
miðaldra maður og hafa ekki tengt
þetta tvennt saman fyrr. Að áfall
sem maður verður fyrir sem barn og
býr til sársauka, reiði og tilfinningar
sem maður skilur ekki geti gert
mann móttækilegan fyrir slökun-
inni sem fylgir því að drekka. Áfeng-
ið verður lausn á þeim óróleika sem
heilinn er í. En sú lausn er vitaskuld
aðeins tímabundin og hleður ofan á
sig vanlíðan. Og maður festist í ein-
hverjum vítahring og kann ekki að
díla við hlutina öðruvísi en að deyfa
sig.“
Sigmar sagði engum frá mis-
notkuninni fyrr en löngu síðar.
Hann býst þó við að foreldrar og
f leiri hafi strax tekið eftir hegð-
unarbreytingum hjá honum því
hann varð mjög ringlaður, dró sig
inn í skelina og síðar braust út reiði
og alls kyns mótþrói.
„Ég sagði fyrst frá þessu í með-
ferð. Mér fannst ég fá svo skrýtin
viðbrögð og leið svo illa að tala um
þetta að ég ákvað að gera það ekki
meir,“ segir Sigmar.
Sem fréttamaður hefur Sigmar
ítrekað fjallað um kynferðisof-
beldi og eðlilega reikaði hugurinn
að hans eigin reynslu þá. Taldi
hann þá ranglega að þessi reynsla
hefði ekki markað djúp spor og
hann þyrfti ekki að tala um hana
sjálfur. „Sennilega var það varnar-
mekanismi. Sem er svo skrýtið þar
sem ég veit, sem fjölmiðlamaður,
hversu gott það er fyrir þolendur
að opna sig um of beldi, fá góð við-
brögð og hreyfa við umræðunni. Ég
hélt ég væri sterkari en aðrir í sömu
stöðu sem var auðvitað bara sjálfs-
blekking.“
Sigmar segist ekki hengja alla þá
ógæfu sem hann hefur orðið fyrir
eingöngu á misnotkunina. Föllin
hafa komið þegar hann hefur misst
augun af boltanum og ekki sinnt
þeim einföldu hlutum sem óvirkir
alkar þurfa að gera. En við ofbeldið
brast engu að síður eitthvað í lífi
hans sem hefur haft mikil áhrif á
hann allar götur síðan. Undanfarin
ár hefur hann hins vegar unnið
markvisst í þessu áfalli.
Eitt hentar ekki öllum
Að mati Sigmars eru áfengis- og
fíknisjúkdómar alvarlegasta heil-
brigðisógnin sem blasir við þjóð-
inni. Þó að skilningur á þeim hafi
aukist sé enn þá á brattann að sækja.
„Við sáum það í umræðunni um
afglæpavæðingarfrumvarpið að
hluti þjóðarinnar skilur ekki að
þetta sé sjúkdómur. Telja frekar að
besta lausnin sé að beita refsistefnu
og gera fólk að glæpamönnum frem-
ur en að mæta þeim með faðminn
opinn og hjálpa,“ segir hann nokkuð
heitt í hamsi.
Í hvert sinn sem einhver falli
fyrir áfengi eða fíkniefnum hafi
það mikil áhrif á maka, börn, for-
eldra, systkini, vinnufélaga og jafn-
vel f leiri. Heilt samfélag í kringum
einstaklinginn verði sjúkt. Þessu
fylgi einnig mikill kostnaður í heil-
brigðiskerfinu, félagslega kerfinu og
dómskerfinu. Þá eru ótalin dauðs-
föll eða örkuml, annað hvort vegna
slysa, ofneyslu eða sjálfsvíga.
„Það er enginn sjúkdómur sem
hefur jafn eyðandi áhrif. Þegar
einhver greinist með krabbamein
leggjast allir á eitt. En þegar ein-
hver greinist með alkóhólisma getur
verið að hann hafi brennt allar brýr
að baki sér,“ segir Sigmar. „Þá getur
reynst erfitt að biðja um og fá hjálp,
oft með skelfilegum afleiðingum.
Ég tel að meðferðarúrræði þurfi
að vera mörg og mismunandi því
að eitt hentar ekki öllum. Veikur
alki getur verið svo forskrúfaður
að hann er búinn að bíta það í sig
að fara ekki inn á Vog til dæmis. Sú
leið hentaði mér mjög vel, en maður
verður að bera virðingu fyrir því að
það hentar ekki öllum.“
Verðum að hlusta
Umræðan um kynferðisof beldi
hefur einnig sjaldan verið jafn
hávær og nú og telja margir að
dómskerfið hafi í gegnum tíðina
brugðist þolendum. Sönnunar-
byrðin sé of þung.
„Kerfin okkar geta ekki komist
hjá því að hlusta þegar það er svona
mikið ákall um breytingar. Ákæru-
valdið hefur stigið skref í þessa átt
með því að taka mark á annars
konar sönnunargögnum en áður
var gert,“ segir Sigmar, sem þekkir
málaf lokkinn vel sem fjölmiðla-
maður. „Umræðan er vitaskuld
erfið þar sem við viljum líka að
reglur réttarríkisins haldi. En það
er alveg ljóst að þetta kerfi þarf að
vera manneskjulegra og einn liður
í því gæti verið að stytta málsmeð-
ferðartímann.“
Nefnir hann dæmi úr störfum
sínum þegar fjallað var um mál
barnaníðingsins Karls Vignis Þor-
steinssonar. „Eftir umfjöllunina
fengum við hundruð símtala frá
þolendu m k y n ferðisof beld is
héðan og þaðan. Þetta sýndi mér
hversu vandinn er stór og hversu
margir hafa lent í of beldi,“ segir
hann. „Þegar svona stór hluti telur
að kerfið hafi brugðist verðum við
að hlusta.“
Hleypur til heilbrigðara lífs
Sigmar er giftur Júlíönu Einars-
dóttur og eiga þau saman tvö ung
börn. Þrjú á hann úr fyrra sam-
bandi. Ferðalög með fjölskyldunni
og útivist er það sem Sigmar elskar
að gera í frítímum og ekki síst að
hlaupa löng víðavangshlaup.
„Ég hef sennilega alltaf verið nátt-
úrubarn en kannski ekki alltaf gefið
því séns,“ segir hann. „Við gerum
sífellt meira af þessu. Júlíana skipu-
leggur ferðir fyrir okkur, hvort sem
það er upp í sumarbústað, í Þórs-
mörk eða annað, því það er svo
sterkt í henni að öll fjölskyldan geri
eitthvað saman. Það er ekki nóg að
foreldrarnir séu með áhugamál og
börnin séu fylgihlutir. Ég komst til
dæmis nýlega að því að átta ára barn
getur léttilega gengið yfir Fimm-
vörðuhálsinn og haft gaman af.“
Sigmar hefur ávallt stundað
hreyfingu en víðavangshlaupin
byrjuðu fyrir alvöru fyrir tveimur
árum. Segist hann heltekinn af
þessu sporti og lengst hafa hlaupið
50 kílómetra. Ísland, og ekki síst
svæðið í kringum höfuðborgar-
svæðið, bjóði upp á óþrjótandi
góðar og fallegar hlaupaleiðir.
„Það er fátt betra en að finna
gróðurlyktina á sumrin og berj-
ast aðeins við vindinn á veturna.
Félagsskapurinn í kringum þetta
sport er æðislegur og eftir hvert
hlaup finnur maður sælutilfinn-
ingu í öllum líkamanum,“ segir Sig-
mar og brosir. „Þegar ég hleyp verð
ég mjög meðvitaður um hvað ég er
kominn langt frá flöskunni. Hvað ég
er kominn langt á leiðinni til heil-
brigðara lífs.“ n
Upp úr tvítugu fann ég
fyrir því að þetta var
orðið eitthvað meira
en ásókn í hefðbundið
djamm.
20 Helgin 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ