Fréttablaðið - 28.08.2021, Page 24
Sálfræðingurinn Sören
Sander hefur sérhæft sig í
skilnuðum og þá sérstaklega
skilnuðum þar sem upp koma
átök. Hann þróaði verkefnið
Samvinna eftir skilnað, sem er
tilraunaverkefni í sjö sveitar
félögum á Íslandi. Lausnin
er fyrir foreldra sem skilja og
þau sem hætta saman með
óformlegri hætti.
Þegar Sören Sander var í f ramhaldsnámi v ið háskólann í Kaupmannahöfn hafði einn prófessoranna hans samband við
hann og stakk upp á því að hann
myndi fara í doktorsnám og rann
saka skilnaði.
„Ég hafði eiginlega engan áhuga á
því á þeim tíma. Þá var ég að vinna
með stafrænar lausnir fyrir fyrir
tæki, en hann náði að sannfæra mig
og stakk upp á því að við myndum
athuga hvort stafrænar lausnir gætu
nýst við skilnaðarráðgjöf,“ segir
Sören.
Verkefnið, Samvinna eftir skiln
að, byrjaði því sem rannsóknarverk
efni fyrir sjö árum og á að nýtast
bæði fólki sem gengur í gegnum
skilnað og börnum þess.
„Þetta er aðallega fyrir foreldra
en við höfum komist að því að þetta
nýtist líka pörum sem ekki eiga
börn. Það er mikil sorg og streita
sem fylgir skilnaði og slíkum við
burði er í raun hægt að líkja við það
að upplifa andlát náins ættingja.
Skilnaður hefur áhrif á þig, börnin
þín og í raun alla fjölskylduna þína,“
segir hann.
Sören segir að á meðan verkefnið
var í þróun hafi hann og samstarfs
maður hans ávallt verið sammála
um það að ef að niðurstöðurnar
væru ekki jákvæðar þá myndu þeir
hætta og tilraunin yrði bara rann
sóknarverkefni.
„Niðurstöðurnar voru mjög
jákvæðar og við vorum þar með þeir
fyrstu í heiminum til að afla gagna
um það að stafrænar lausnir gætu
minnkað líkurnar á þunglyndi,
kvíða, streitu og öðrum algengum
afleiðingum skilnaðar,“ segir Sören,
og að lausnin geti líka hjálpað for
eldrum að líða betur og við að
aðstoða börnin sín til að takast á
við allt sem getur fylgt skilnaðinum.
„Það getur verið svo margt.
Stundum þarf fólk að f lytja eða
hugsa um sjálft sig á nýjan hátt sem
einhleypan einstakling sem ekki er
lengur hluti af vísitölufjölskyldu,“
segir Sören.
Í sjö sveitarfélögum
Lausnin er notuð í Danmörku og
Svíþjóð auk þess sem ensk og ara
bísk útgáfa er til og svo er íslensk
útgáfa. Íslenska útgáfan er í notkun
í sjö sveitarfélögum á Íslandi en er
enn í þróun. Það er von Sörens að
allir Íslendingar muni að lokum
geta nýtt sér hana. Sören segir að
það eina sem fólk þurfi til að prófa
sé að eiga tölvu, hafa aðgang að int
erneti og hafa orðið fyrir einhvers
konar áhrifum af skilnaði. Það þurfi
enga sérstaka menntun til að taka
námskeiðið.
Sören segir að það sé margt líkt
menningarlega með Íslandi og Dan
mörku en það sé alls ekki allt eins.
Í báðum löndum er algengt að fólk
sé í sambúð en gifti sig ekki og því
er lausnin líka í boði fyrir þau sem
ganga í gegnum sambandsslit en
voru ekki gift og jafnvel fyrir fólk
sem var saman en var ekki í sam
búð.
Sören segir einn helsta kost lausn
arinnar að hægt sé að nálgast hana
hvenær sem er sólarhrings og að
ekki þurfi að fara á einhverja skrif
stofu til að fá ráðgjöf.
„Það er hægt að gera þetta nafn
laust og heima hjá sér. Í fámennu
landi þar sem margir þekkjast gæti
Gott að líta á fyrrverandi sem vinnufélaga
Sören segir
að líkja megi
skilnaði við ást-
vinamissi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ÓTTAR
fólk veigrað sér við því að sækja
sér aðstoð en með þessu getur fólk
fengið hjálp án þess að segja nokkr
um manni frá því. Við sjáum í Dan
mörku að við erum að ná til fólks
sem allajafna myndi ekki sækja
sér aðstoð og það er oft fólkið sem
mest þarf á aðstoðinni að halda,“
segir Sören.
Sorg og fyrirgefning
Lausnin er byggð þannig upp að
hún er samsett af mörgum styttri
kúrsum sem fólk getur farið í gegn
um. Alls eru þeir 18 og einblínir
hver þeirra á ólíkar afleiðingar eða
fylgifiska skilnaðarins, eins og reiði
í garð fyrrverandi maka, hvernig
eigi að skilja tilfinningar barnsins
og hvernig sé hægt að eiga samskipti
við fyrrverandi maka.
„Það klára fæstir alla 18 kúrs
ana. Fólk fer yfirleitt inn og velur
það sem hentar því. Það sem er, til
dæmis, mjög vinsælt, er hvaða áhrif
skilnaður hefur á börn og hvað
sé hægt að gera í því. Þá er einnig
vinsæll kúrs um fyrirgefningu og
hvernig er hægt að hafa sameigin
legar reglur á tveimur heimilum.
Fólk velur þannig það sem hentar
því og er því mikilvægt,“ segir Sören.
Hann segir ekki mikilvægt að
fyrrverandi pör velji sömu kúrsana
eða jafnvel að báðir aðilar nýti sér
lausnina. Hann segir það hafa verið
mjög skýra kröfu frá fagaðilum að
það væri ekki nauðsynlegt að báðir
aðilar nýttu sér lausnina.
„Stundum er það þannig að annar
aðilinn er kominn í nýtt samband
og er hamingjusamur en hinn aðil
inn er í sorg. Þannig eru þau á mjög
ólíkum stað og vilja ekki bæði nýta
lausnina. Þess vegna höfum við haft
það opið að bara annar aðilinn nýti
sér hana,“ segir Sören.
Þá sé einnig vinsæll kúrs um fyrir
gefningu og annar um sorg.
„Kannski þarftu að fyrirgefa fyrr
verandi maka þínum, eða jafnvel að
fyrirgefa sjálfum þér því þú fórst frá
fjölskyldunni þinni. Það fer í báðar
áttir,“ segir Sören.
Hann bendir á að það séu til rann
sóknir allt frá sjöunda og tíunda
áratugnum sem benda til þess að
áfallið sem fylgi skilnaði megi helst
líkja við ástvinamissi.
Nærri helmingur skilur
„Þetta er einn mest streituvaldandi
viðburðurinn í lífi fólks. En hér á
Norðurlöndunum er þetta álitinn
nokkuð eðlilegur viðburður vegna
þess að nærri helmingur okkar
gengur í gegnum þetta á lífsleið
inni,“ segir Sören.
Hann segir að það séu þó augljósir
kostir við það að báðir aðilar nýti
sér lausnina því þá hafi fólk sam
eiginlegt tungumál til að ræða við
börn sín um skilnaðinn. Hann segir
það þó alltaf kost að minnsta kosti
annað foreldrið hafi kynnt sér þessa
lausn og hafi þannig þau tæki og tól
sem fylgja, til að geta stutt barnið í
gegnum skilnaðarferlið.
Hann segir að það sé enginn
fastur tímarammi á því hversu lengi
fólk er að jafna sig en það geti verið
allt frá nokkrum mánuðum upp í ár.
„Það skiptir ekki máli hvort þú
gekkst í gegnum skilnað fyrir tíu
árum eða í gær. Það skiptir ekki
máli hvort börnin þín eru enn börn
eða hvort þau eru uppkomin,“ segir
Sören og ítrekar að lausnin sé fyrir
alla. Hún geti, til dæmis, einnig nýst
fullorðnum, sem eru skilnaðarbörn
en hafi ekki haft aðgang að slíkum
lausnum þegar foreldrar þeirra
skildu, og ömmum og öfum.
Byggt á skandinavísku frelsi
Lausnin var til að byrja með skylda
í Danmörku sem partur af nauð
synlegum umhugsunartíma sem
fólk var skyldað til að nýta áður en
skilnaðurinn gekk í gegn, en þegar
það kom í ljós að þessi tími hafði
slæm áhrif á börnin var hann felldur
út og lausnin gerð að vali.
Hann segir að það sé þeim ákaf
lega mikilvægt að enginn sé þving
aður til að nýta sér lausnina. Sam
vinna eftir skilnað sé hannað með
skandinavískt frelsi í huga og það
gangi gegn hugmyndafræði þeirra
að fólk sé þvingað til þess.
„Það er byggt á þeirri hugsun að
þú sem fullorðin manneskja ákveðir
sjálf hvað þú vilt ganga í gegnum og
hvaða tól henta þér,“ segir hann.
Sören segir að ef fólk er að hugsa
um að skilja eða er að ganga í gegn
um skilnað þá sé gott að hugsa um
fyrrverandi sem vinnufélaga og hafa
velferð barnanna alltaf í fyrsta sæti.
„Það er alltaf gott að hugsa um
hvað börnin þurfa og vera á sama
tíma meðvitaður um það að þótt
þið séuð skilin og þið kannski hatið
hvort annað á þessum tímapunkti
þá getið þið enn unnið saman.
Hugsið um fyrrverandi sem vinnu
félaga. Þið þurfið ekki að elska hvort
annað, eða einu sinni vera vinir, en
þið þurfið að vinna saman þegar
kemur að börnunum ykkar.“ ■
Stundum er það þann-
ig að annar aðilinn er
kominn í nýtt sam-
band og er hamingju-
samur en hinn aðilinn
er í sorg.
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa
@frettabladid.is
24 Helgin 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ