Fréttablaðið - 28.08.2021, Page 52
Samveran í hús-
næði Hjálpræðis-
hersins hefur hjálpað
fólkinu mikið. Hún
eykur tengsl og skapar
ný tækifæri.
Hera Ósk Einarsdóttir.
Við fáum húsnæði
sem hentar starf-
semi okkar miklu betur
og er við hliðina á Her-
tex.
Elín Kjaran.
Hjálpræðisherinn í Reykja-
nesbæ er staðsettur á Ásbrú
og var stofnaður árið 2008.
Í húsinu fer fram fjölbreytt
félagsstarf meðal annars í
samstarfi við sveitarfélagið.
Síðasta haust var starfsemi Hjálp-
ræðishersins í Reykjanesbæ færð
undir Hjálpræðisherinn í Reykja-
vík og tilheyrir því Reykjavíkur-
flokki.
Sigfríð Sjöfn Magnúsdóttir
sér um húsnæðið á Ásbrú. Eldar
hádegismatinn og sér um að allt
líti vel út.
„Við bjóðum upp á hádegismat
alla virka daga. Á föstudögum í
hádeginu er svo bæn og matur. Þá
hittumst við og biðjum fyrir starf-
inu og Reykjanesi, við fáum líka
bænabeiðnir. Eftir það borðum við
hádegismat saman,“ segir hún.
„Á veturna erum við með ungl-
ingastarf í samstarfi við KFUM og
K og svo er hér prjónahópur sem
hittist á þriðjudögum.“
Í húsinu er einnig Hertex-búð og
þar eru sjálfboðaliðar að flokka föt.
„Ég hef eldað hádegismat handa
þeim líka. En það eru ekki kirkju-
samkomur í húsinu, við sam-
einuðumst Reykjavík og getum
sótt samkomur þar. En við getum
líka sótt í Keflavíkurkirkju. Við
erum í góðu samstarfi við aðra hér
í bænum,“ segir Sigfríð.
Hjálpa fólki að mynda tengsl
Hjálpræðisherinn hefur á þessu
ári unnið verkefni í samstarfi við
Reykjanesbæ og Miðstöð símennt-
unar á Suðurnesjum. Verkefnið
heitir Kjarnahópur til virkni og
vellíðunar og er styrkt af félags-
málaráðuneytinu.
„Verkefnið er fyrir íbúa sem hafa
verið lengi utan vinnumarkaðar,
innflytjendur og flóttafólk með
litla íslensku kunnáttu og þekk-
ingu á samfélaginu hér,“ segir Hera
Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri vel-
ferðarsviðs Reykjanesbæjar.
„Verkefnið er unnið í húsnæði
Hjálpræðishersins í Reykjanesbæ.
Þau koma að þessu samstarfsverk-
efni með sameiginlegum mál-
tíðum og samveru. Við höfum átt
gott samstarf um verkefnið frá því
snemma á þessu ári. Það hófst 8.
mars en undirbúningurinn hefur
verið langur.“
Hera segir að um 30 manns hafi
tekið þátt í þessu verkefni frá því í
mars og það sé að fara aftur af stað
í september, svo líklega verði um
50 manns árinu sem fara í gegnum
verkefnið.
„Langtímamarkmiðið með
þessu verkefni er að fólk nái að
komast í vinnu eða nám og að fólk
sé virkt í samfélaginu. Þetta er fólk
sem hefur verið til langs tíma utan
vinnumarkaðar og er oft félags-
lega einangrað, meðal annars
vegna lítillar íslenskukunnáttu.
Við viljum hjálpa fólkinu að
komast í tengsl við samfélagið
svo það nái virkni og tengingu til
atvinnuþátttöku,“ útskýrir Hera.
„Verkefnið hefur gengið vonum
framar. Það hafa verið góðar
undirtektir hjá atvinnurek-
endum og félagasamtökum þegar
leitað hefur verið til þeirra. Fólk
hefur bæði farið í störf og sjálf-
boðastörf að því loknu. Svo hefur
samveran í húsnæði Hjálpræðis-
hersins hjálpað fólkinu mikið.
Hún eykur tengsla net og skapar
ný tækifæri.“ n
Fjölbreytt starf Hjálpræðishersins á Ásbrú
Hera segir Hjálp-
ræðisherinn og
Reykjanesbæ
hafa átt gott
samstarf.
MYND/AÐSEND
Akureyrarflokkur Hjálp-
ræðishersins er húsnæðis-
laus um þessar mundir, en
hann er að flytja í nýtt hús-
næði sem er enn í vinnslu. Í
bili er starfsemi flokksins í
lágmarki, en hún fer aftur á
fullt skrið í haust.
Sigríður Elín Kjaran, eða Elín, eins
og hún er yfirleitt kölluð, kynntist
Hjálpræðishernum fyrst árið 1996
þegar hún bjó í Noregi og fór að
vinna hjá Hertex. Hún hefur unnið
fyrir Hjálpræðisherinn síðan og í
fyrrasumar, þegar hún flutti aftur
til Íslands, tók hún við sem flokks-
foringi á Akureyri. Starf flokksins
er í nú í hléi vegna þess að hann
er að skipta um húsnæði, en nýja
húsnæðið verður vonandi komið í
notkun í byrjun október og þá fer
starfsemin aftur í gang af fullum
krafti.
Starf Elínar felst í að undirbúa og
skipuleggja starf flokksins og taka
þátt í öllu sem hann gerir. Þetta er
vanalega mikil vinna, því Hjálp-
ræðisherinn stendur að öllu jöfnu
fyrir fjölbreyttu starfi mörgum
sinnum í viku.
„Á mánudögum erum við
með heimilasamband fyrir eldri
borgara. Þá koma þeir saman og
fá heitan mat og svo er samvera á
eftir með söng, upplestri og ýmsu
skemmtilegu,“ segir hún. „Á þriðju-
dögum erum við svo alltaf með
opið hús fyrir börn milli klukkan
16-18.30 og þá er boðið upp á heita
máltíð, leiki og allt mögulegt. Svo
tekur unglingastarfið við á þriðju-
dagskvöldum.
Á miðvikudögum erum við svo
með samkomu sem heitir bæn
og matur, á fimmtudagskvöldum
erum við með prjónahóp og á
sunnudögum erum við með guðs-
þjónustur,“ segir Elín. „Við tökum
líka á móti fólki og gefum þeim
mat eða Bónuskort, en sú starfsemi
fer fram undir heitinu Velferð.
Svo er nokkuð sem er að fara
að byrja í nýja húsnæðinu, en það
verða einhvers konar foreldra-
morgnar, opið hús fyrir foreldra
sem eru með börn heima,“ segir
Elín. „Ég er rétt að byrja að undir-
búa þetta núna, þannig að dag-
skráin er ekki fullmótuð.
Ég sé um allt þetta starf og yfir-
leitt er það líka ég sem held ræðu í
guðsþjónustunni og stjórna henni.
Starfið felst einnig í að hugsa um
fólkið í f lokknum, hringja í þau, sjá
hvernig fólk hefur það og fara í alls
konar heimsóknir,“ segir Elín. „Við
bjóðum upp á fjölbreytta og víð-
tæka þjónustu við samfélagið.“
Nýja húsnæðið hentar betur
Hjálpræðisherinn hefur starfað
á Akureyri í langan tíma og verið
í sama húsnæði síðan í byrjun
ársins 1980. Nú er búið að kaupa
nýtt húsnæði en það er enn í
vinnslu, svo það hefur ekki verið
opnað enn, en vonast er til að það
gerist í byrjun október.
„Við fáum húsnæði sem
hentar starfsemi okkar miklu
betur og er við hliðina á Hertex,
en við erum í miklu samstarfi
við það,“ segir Elín. „Þá er allur
Hjálpræðisherinn á einum stað á
Akureyri, sem hefur marga kosti.
Í bili erum við bara að bíða eftir
nýju húsnæði og skipuleggja. Það
er ekki annað hægt núna þegar
okkur skortir húsnæði, skrifstofu
og síma. Við erum bara í biðstöðu,“
segir Elín. „Í millitíðinni sinni ég
ýmsu af starfi Hjálpræðishersins
að heiman, en það er aldrei það
sama. Við hlökkum mikið til að
geta farið aftur á fullt.“ n
Nýtt húsnæði Hersins á Akureyri í haust
Elín Kjaran,
flokksforingi
Hjálpræðishers-
ins á Akureyri,
er spennt fyrir
því að geta tekið
nýja húsnæðið í
notkun.
FRÉTTABLAÐIÐ/
AUÐUNN
Við óskum Hjálpræðishernum
innilega til hamingju með nýtt
og glæsilegt húsnæði.
Takk fyrir ánægjulegt samstarf!
Ák Smíði
Cintamani
Flötur Ehf
Landsvirkjun
Nói Síríus
Rekstrarvörur
4 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURHJÁLPR ÆÐISHERINN