Verktækni - 2015, Síða 10

Verktækni - 2015, Síða 10
10 / VERKTÆKNI Aðalfundur VFÍ – ársskýrsla 2014-2015 Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands 2015 var haldinn á Degi verkfræðinnar 10. apríl síðastliðinn. Hér verður stiklað á stóru í ársskýslu félagsins fyrir starfsárið 2014- 2015. Ársskýrslan með ársreikningum er birt í heild á vef félagsins: www.vfi.is. Ársreikningur Rekstrarhagnaður ársins var um 13,2 millj- ónir króna en rekstrartekjur námu rúmum 65,3 milljónum króna. Heildareignir í lok ársins samkvæmt efnahagsreikningi námu rúmum 145,2 milljónum króna en heildar- skuldir voru 89,1 milljónir króna. Eigið fé var því jákvætt um tæpar 56,1 milljónir króna í árslok. Menntamálanefnd Af 185 umsóknum um inngöngu í félagið voru 179 umsóknir samþykktar, fjórum var hafnað, ein dregin til baka og umfjöllun um eina ekki lokið. Af 153 umsóknum um starfsheitið voru 139 umsóknir samþykktar, átta var hafnað og umfjöllun um sex er ekki lokið. Ávarp formanns Í ávarpi sínu sagði Kristinn Andersen formaður VFÍ meðal annars: „Verkfræðingafélags Íslands stendur um þessar mundir styrkum fótum og eflist með hverju árinu, eins og gróskumikið starf félagsins vitnar um. Sameining SV og VFÍ fyrir fjórum árum var heillaskref, félags- mönnum fjölgar jafnt og þétt og fjárhagur félagsins stendur vel.“ Kristinn nefndi sérstaklega endur- skoðun reglna um veitingu leyfis fyrir starfsheiti verkfræðinga og mikilvægi þess að kennsla í stærðfræði og raungreinum verði ekki skert. „Auk fjölmargra við- burða sinnti félagið ýmsum verkefnum sem sameiginlegur málsvari verkfræðinga. Atvinnuvegaráðuneytið gekkst fyrir endurskoðun reglna um veitingu leyf- is fyrir starfsheiti verkfræðinga, þar sem leitað var samráðs við VFÍ. Félagið lét sér umhugað um að kennsla í stærðfræði og raungreinum yrði ekki skert þegar kæmi að styttingu náms við framhaldsskólana, tekin var saman greinargerð um málið og rædd ítarlega á góðum fundi með mennta- og menningarmálaráðherra. Þá gerði félagið athugasemdir við takmarkað framlag fjár- magns til verkfræði- og tæknimenntunar, með erindi til ráðherra og alþingismanna.“ Stjórn VFÍ Í stjórn VFÍ starfsárið 2014-2015 sitja eft- irtalin: Kristinn Andersen, formaður, Páll Gíslason, varaformaður, Sveinbjörn Pálsson, María S. Guðjónsdóttir, Bjarni G.P. Hjarðar, Gísli Georgsson, varameðstjórnandi og Guðbjartur Jón Einarsson varameðstjórn- andi. Kári Steinar Karlsson, formaður Kjaradeildar VFÍ og Sveinn I. Ólafsson, formaður Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi sitja fundi stjórnarinnar. Stjórn VFÍ fundar að jafnaði á tveggja vikna fresti. Upplýsingar um stjórnir og nefndir á vegum VFÍ eru á vef félagsins: vfi.is Af stjórnarborði VFÍ Kristinn Andersen, formaður VFÍ. Verkfræðingahús Búið er að merkja hús Verkfræðingafélags Íslands að Engjateigi 9. Húsið var byggt 1986 og er skuldlaus eign félagsins. Í hús- inu er meðal annars sameiginleg skrifstofa VFÍ og TFÍ og glæsileg félagsaðstaða. Hluti hússins er leigður út og er Lífsverk lífeyr- issjóður með aðsetur í Verkfræðingahúsi, einnig Verkefnastjórnunarfélagið og Ský, auk annarra. Í bókinni „VFÍ í 100 ár“ er sagt frá því að hugmyndin um að félagið byggði sitt eigið Verkfræðingahús kom fram m.a. á félagsfundi árið 1964. Félagið hafði fengið loforð um lóð frá Reykjavíkurborg á 50 ára afmælinu 1962. Voru ýmsir möguleikar skoðaðir áður en ákveðið var að þiggja lóð á svokölluðum Ásmundarreit, sem nú er Engjateigur 9. Árið 1982 var efnt til samkeppni um húsið og fyrstu verðlaun hlutu arki- tektarnir Egill Guðmundsson og Þórarinn Þórarinsson. Verkfræðingahús

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.