Verktækni - 2015, Page 18

Verktækni - 2015, Page 18
18 VERKTÆKNI 2015/21 ritrýndar vísindagreinar án ferðaþjónustu af sömu stærð voru sýni tekin jafnar yfir árið, en þó fæst fyrstu þrjá mánuði ársins og oft flest í desember. Hlutfall frávika eftir mánuðum er svipað allt árið í báðum flokkum sem gefur til kynna að tímasetning mælinga hafi ekki mikil áhrif á vatnsgæði. Mynd 2 sýnir samanburð við stærri veitur. Þar eru teknar saman allir flokkarnir á mynd 1 með og án ferðaþjónustu og bornir saman við vatnsveitur með fleiri en 500 íbúa. Myndin sýnir að stóru veiturnar uppfylltu neysluvatnsreglugerðina mun betur en minni veitur. Einungis 0,9% sýna hjá stærri veitum greindust með E.coli á meðan sýni hjá minni veitum með og án ferðaþjónustu greindust í 7,5% og 11,9% tilfella með E.coli. Sýnatökufjöldinn var skv. töflu 1 um 0,5 sýni á ári á hverja vatns­ veitu sem þýðir að sýni eru að meðaltali tekin annað hvert ár hjá öllum 444 vatnsveitunum. Það er í samræmi við lágmarkskröfur neyslu­ vatnsreglugerðarinnar fyrir vatnsveitur sem þjóna færri en 150 íbúum. Umræður Niðurstöðurnar sýna að vatnsgæði hjá minni vatnsveitum er mun lakari en hjá stærri veitum. Niðurstöðurnar sýna einnig að þessar minni veitur sem þjóna aðallega ferðamönnum koma verr út en þær munur á fjölda sýna sem ekki uppfylltu neysluvatnsreglugerð með og án ferðaþjónustu. Þegar skoðaðar voru vatnsveitur í dreifbýli með minna en 50 íbúa þá kom í ljós afgerandi munur í fjölda sýna sem ekki uppfylltu neysluvatnsreglugerðina. Til dæmis var fjöldi sýna með saurmengun (E.coli) 8,0% í vatnsveitum án ferðaþjónustu en 13,4% með ferðaþjónustu. Svipuð hlutfallsleg aukning var fyrir kólígerla og heildargerlafjölda (HGF). Staðan versnar svo enn þegar um fjallaskála er að ræða, sérstaklega er varðar heildargerlafjölda og 16,2% sýna tekin í fjallaskála greindust með E.coli. Flest sýni á ferðamannastöðum voru tekin yfir sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst, en hjá vatnsveitum vatnsveitna, sérstaklega með færri en 50 íbúa séu fleiri en nú eru skráð. Vatnsveiturnar 444 voru flokkaðar í þrjár stærðarflokka (50­150 íbúar, <50 íbúar/matvælafyrirtæki, og fjallaskálar) og svo flokkaðar með og án ferðaþjónustu. Fjöldi vatnsveitna án ferðaþjónustu eru 237 og með ferðaþjónustu 207. Tafla 1 sýnir fjölda vatnsveitna og sýna í hverjum flokki. Skoðað var hvernig neysluvatn uppfyllir reglugerð í þremur þáttum, þ.e. heildargerlafjölda við 22°C, kólígerla og E.coli, sem allt eru eft­ irlitsþættir sem eru vísar á lífræna mengun vatns. Skv. reglugerð er gert ráð fyrir að mæla E.coli ef kólígerlar greinast og því er fjöldi E.coli mælinga sá sami og kólígerla. Einnig var gerður samanburður við vatnsveitur með fleiri en 500 íbúa sem gert var grein fyrir í áðurnefndri skýrslu Matvælastofnunar. Heildargerlafjöldi er ekki talinn gefa til kynna hvort um sjúkdóms­ valdandi örverur sé að ræða þar sem ekki hefur verið sýnt fram á fylgni við lýðheilsu en er frekar vísbending um hreinlæti (Bartram o.fl. 2003; WHO, 2011). Kólígerlar er flokkur baktería sem finnast í miklu magni í þörmum lífvera og víða í umhverfinu. Tilvist þeirra í vatni getur bent til áhrifa frá yfirborðsvatni, mengunar frá óþéttum frárennslisrörum eða leka frá rotþróm. Ef kólígerlar mælast skal samkvæmt reglugerð mæla E. coli. E.coli er baktería sem tilheyrir kólígerlaflokknum en er afbrigði sem lifir aðeins í þörmum lífvera með heitt blóð og kemur því með saur manna og dýra, svo tilvist E.coli bendir því til nýlegrar saur­ mengunar. Kröfur reglugerðarinnar eru að heildargerlafjöldi má mest vera 100 í einum ml en enginn kólígerill eða E.coli mega vera í 100 ml. Niðurstöður Mynd 1 sýnir niðurstöður fyrir 444 minni vatnsveitur á Íslandi. Myndin sýnir að fyrir vatnsveitur sem þjóna 50­150 íbúum var óverulegur Tegund vatnsveitur Fjöldi vatnsveitna Fjöldi sýna 2010 - 2012 50-150 íbúar án ferðaþjónustu 21 60 50-150 íbúar með ferðaþjónustu 39 77 <50 íbúar án ferðaþjónustu 216 300 <50 íbúar með ferðaþjónustu 140 231 Fjallaskálar 28 37 Alls 444 705         0%   10%   20%   30%   40%   50-­‐150  íbúar   án  ferðaþj.   50-­‐150  íbúar   með  ferðaþj.    <  50  íbúar  án   ferðaþj.    <  50  íbúar   með  ferðaþj.   Fjallaskálar   Hl uP al l  s ýn a   se m  u pp fy lli r  e kk i   ne ys lu va tn sr eg lu ge rð  í   ör ve ru m     Vatnsveitur    HGF  22°C    Kólígerlar    E.coli   Mynd 1 Hlutfall sýna frá 444 vatnsveitum sem ekki uppfylla neysluvatnsreglugerð í örverum eftir stærð vatnsveitu og þjónustu við ferðamenn.       18,0%   15,9%   11,9%   9,7%   8,8%   7,5%   1,9%   1,8%   0,9%   0%   4%   8%   12%   16%   20%   HGF  22°C   Kólígerlar   E.coli   Hl uP al l  s ýn a   se m  u pp fy lli r  e kk i   ne ys lu va tn sr eg lu ge rð  í   ör ve ru m    <  150  með  ferðaþj.    <  150  án  ferðaþj.    >  500  íbúar   Mynd 2 Hlutfall sýna sem uppfylla ekki neysluvatnsreglugerð eftir tegund og stærð vatnsveitu. Tafla 1 Fjöldi vatnsveitna og sýna í hverjum flokki.

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.