Verktækni - 2015, Page 23

Verktækni - 2015, Page 23
VERKTÆKNI 2015/21 23 ritrýndar vísindagreinar NACE1 1 NACE er atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins. NACE flokkun Vottunarár Fjöldi starfsmanna Framleiðsla 2013 1 – 49 Framleiðsla 1994 250 – 299 Framleiðsla 2012 50 – 99 Framleiðsla 2008 50 ­ 99 Rafmagns­, gas­ og hitaveitur 2009 50 – 99 Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 2009 150 – 199 Flutningar og geymsla 2013 100 – 149 Flutningar og geymsla 2010 300­ Upplýsingar og fjarskipti 2009 1 ­ 49 Upplýsingar og fjarskipti 2002 1 – 49 Upplýsingar og fjarskipti 2002 300­ Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 2011 1 – 49 Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 2012 1 – 49 Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 2004 150 – 199 Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 2009 250 ­ 299 Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 2007 50 ­ 99 Opinber stjórnsýsla og varnarmál; almannatryggingar 2012 1 ­ 49 Opinber stjórnsýsla og varnarmál; almannatryggingar 2006 150 – 199 Opinber stjórnsýsla og varnarmál; almannatryggingar 2011 50 ­ 99 Fræðslustarfsemi 2005 1 – 49 Fræðslustarfsemi 2009 100 – 149 Að einhverju leyti var stuðst við aðferðir verkefnastjórnunar við innleiðingu gæðastjórnunarkerfa í öllum fyrirtækjunum. Allur gangur var þó á því hve langt þau gengu í að beita aðferðum verkefnastjórn­ unar í áætlanagerð og eftirfylgni innleiðningarinnar, sem og þeim tíma sem það tók fyrirtækin að innleiða gæðakerfi. Að meðaltali tók inn­ leiðingin 18 mánuði en lengst 48 mánuði. Þrjú fyrirtæki sögðu inn­ leiðinguna hafa tekið sex mánuði. Þátttakendur voru beðnir að velja á milli fullyrðinga sem lýstu upplifun þeirra á tímanum sem tók að innleiða kerfið, samanborið við þann tíma sem þeir höfðu áætlað til innleiðingarinnar. Nokkur atriði sem stuðla að farsælli innleiðingu komu fram hjá mörgum þátttakendum. Þeir voru sérstaklega beðnir að útskýra í hve miklum mæli áætlanagerð hefði verið notuð í innleiðingunni. 29% þeirra sögðu innleiðinguna hafa farið fram með því að fylgja eftir upprunalegri áætlun. Önnur 29% lýstu því yfir að innleiðing hefði farið fram samkvæmt upprunalegri áætlun – sem þó hefði þurft að breyta og aðlaga nokkuð oft. Þá greindu 33% þátttakenda frá því að þeir hefðu innleitt gæðakerfi án sérstakrar áætlanagerðar en með því að notast við virk og regluleg samskipti milli hlutaðeigandi. Í 10% tilfella var innleiðingin nær eingöngu í höndum eins aðila; sumsé gæðastjórans. Í töflu 2 má sjá nákvæmara yfirlit yfir það að hve miklu leyti fyrirtækin beittu hefðbundnum þáttum áætlanagerðar í verkefn­ um við innleiðingu gæðakerfanna. 0%   10%   20%   30%   40%   50%   Hún  tók  mun  sty3ri  6ma  en   áætlað  var  (minna  en  50%  af   áætluðum  6ma)   Hún  tók  sty3ri  6ma  en  áætlað   var   Hún  tók  þann  6ma  sem  áætlaður   var   Hún  tók  lengri  6ma  en  áætlað   var   Hún  tók  mun  lengri  6ma  en   áætlað  var  (meira  en  150%  af   áætluðum  6ma)   Mynd 1 Upplifun þátttakenda á því hve langan tíma tók að innleiða gæðakerfið, samanborið við þann tíma sem áætlaður hafði verið. Niðurstöður Fyrirtækin eru af ýmsum gerðum, og mismunandi stór. Í Töflu 1 er yfirlit um fyrirtækin. Tafla 1 Yfirlit um fyrirtæki og stofnanir sem þátt tóku í rannsókninni; flokkun þeirra er samkvæmt NACE1 flokkunarkerfi - taflan sýnir einnig ártal vottunar og fjölda starfsmanna.

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.