Verktækni - 2015, Qupperneq 29
VERKTÆKNI 2015/21 29
ritrýndar vísindagreinar
Tafla 1 - Niðurstöður allra breyta
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014
Fjöldi nemenda í
lokaprófi
69 72 64 55 62 65 89 96 96 79 80
Meðal prófseinkunn
[af 100]
55 58 55 57 59 50 50 55 54 56 54
Meðal mat nemenda á
námskeiðinu
[af 100]
70 60 67 70 69 76 68 74 76 69 67
Heildar verkefnaálag
[í mínútum]
795 700 655 610 610 515 510 675 690 625 630
Einkunn úr lokaprófi
Alls voru metnar prófseinkunnir fyrir 827 nemendur á árunum 2004
til 2014. Allar einkunnirnar voru metnar af sama kennara. Meðaltöl
einkunnanna fyrir hvert ár eru sýnd í töflu 2 og á mynd 1.
Samkvæmt mynd 1 lítur út fyrir að meðalteinkunnin hafi verið nokk
uð stöðug allan áratuginn. Tpróf sýnir að ekki er hægt að hafna þeirri
tilgátu, þ.e. að hallatalan sé núll, t(9)=0,96 og p=0,36. Til að kanna
þetta nánar voru meðaltöl allra ára borin saman við hvert annað.
Paraður samanburður var notaður til að athuga hvort munur væri á
meðaltali einkunna á milli ára. Samanburðurinn var framkvæmdur
með Tukey HSD prófi (95% öryggisbil). Þar eru meðaltöl áranna borin
saman og gerir prófið ráð fyrir að dreifing einkunna innan ára sé sam
bærileg. Niðurstöður prófsins má sjá í töflu 2:
Tafla 2 – Paraður samanburður á meðaltölum með Tukey HSD prófi (95%
öryggisbil), gildi eru p-gildi
Ár 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
2005 0,98
2006 1,00 1,00
2007 1,00 1,00 1,00
2008 0,79 1,00 0,90 1,00
2009 0,86 0,13 0,77 0,43 0,03
2010 0,69 0,04 0,58 0,25 0,01 1,00
2011 1,00 0,96 1,00 1,00 0,70 0,80 0,58
2012 1,00 0,79 1,00 0,98 0,40 0,96 0,87 1,00
2013 1,00 1,00 1,00 1,00 0,98 0,41 0,20 1,00 0,99
2014 1,00 0,91 1,00 1,00 0,58 0,93 0,81 1,00 1,00 1,00
Það sem er litað í töflu 2 eru þau pör af árum þar sem ekki er hægt
að hafna því að meðaltölin séu tölfræðilega eins. Það eru þrjú pör þar
sem samþykkja má að tölfræðilega sé marktækur munur á meðal
tölunum. Þetta eru pörin: 2005 &2010, 2008 & 2009 og 2008 & 2010.
Það vekur athygli að parið 2005 & 2009 nær ekki marktækum mun þó að
myndræn framsetning virðist sýna að lítill munur sé á 2005 og 2008 og þar
með ætti umrætt par að vera með marktækum mun. Höfundar hafa enga
skýringu á þessu og velja að trúa niðurstöðu t prófsins. Myndræn fram-
setning á einkunnadreifingu hvers árs má sjá á mynd 2 og hana má nota til
að átta sig á niðurstöðunum í töflu 2.
Mynd 1 - Meðaltal prófeinkunna og mat á bestu línu gegnum meðaltöl
allra ára