Verktækni - 2015, Qupperneq 34

Verktækni - 2015, Qupperneq 34
34 VERKTÆKNI 2015/21 ritrýndar vísindagreinar verkefni frá síðustu tveimur áratugum eða svo. Rannsóknaraðferðin var skjalarýni (documentary analysis) þar sem vefgátt3, sem hýsir flest íslensk dagblöð og tímarit síðustu áratuga, var notuð til að leita að upplýsingum um opinberar framkvæmdir. Þess skal getið að þessi aðferð var notuð þar sem ekki er hægt að nálgast gagnagrunn yfir opinber verkefni. Tölfræði um heildarkostnað við verkefni, eða verkefnalista, er yfirleitt ekki aðgengileg sem heild­ stæðar upplýsingar á fjárlögum eða frá öðrum opinberum gagnaveit­ um. Það er jafnvel erfiðleikum bundið að sjá hvaða verkefni hafa hlotið samþykki og hvaða verkefni ekki þar sem þau sjást aðeins sem hluti af heildarfjármögnun einstakra stofnana og fyrirtækja. Til að freista þess að setja fram mat á framúrkeyrslu kostnaðar var því valið að fara þessa leið. Alls voru 26 stærri verkefni tekin með. Flest verk­ efnin eru mannvirkjasmíði (24). Meðalvirði verkefnis er 7,4 milljarðar ISK en hágildið er 1,2 milljarðar ISK4. Aðeins 3 verkefni voru á eða undir kostnaðaráætlun en af því leiðir að næstum 90% þeirra fóru fram úr áætluðum kostnaði. Að meðaltali fer opinbert verkefni 60% fram úr kostnaði. Ef tekin er saman áætlaður kostnaður og raunverulegur kostnaður á föstu verðlagi er munurinn 63%. Skjalagreining af þessu tagi hefur galla sem vert er að minnast á. Ekki er hægt að útiloka að verkefni sem stríða við framúrkeyrslu kostn­ aðar eigi greiðari leið í fjölmiðla og af því leiði að stór verkefni, sem hefðu bætt tölfræðina, séu ekki talin með. Tölfræðileg marktækni er því umdeilanleg en merki um hættu á kostnaðarframúrkeyrslu eru engu að síður greinileg. Þá má þess geta að mjög stórt opinbert verk­ efni, jarðvarmavirkjunin á Hellisheiði, er ekki í hópi þessara verkefna. Ástæðan er sú að engu er líkara en að kostnaðaráætlun hafi ekki verið lögð fram þegar að ákvörðun um framkvæmdina var tekin (Pétursdóttir et al., 2012;255) og því ekki mögulegt að finna út hvort mismunur sé á áætluðum kostnaði og raunverulegri niðurstöðu. Þá má geta þess að Friðgeirsson (2009) greindi 78 skilamöt frá Framkvæmdasýslu ríksins (FSR). Sú rannsókn bendir til að 73% af þeim verkefnum undir eftirliti FSR hafi glímt við framúrkeyrslu í kostnaði. Því má álykta sem svo að framúrkeyrsla í kostnaði í opinberum verkefnum sé tíð á Íslandi og varði þar með íslenska skattgreiðendur sem borga mismuninn að lokum. Einnig má leiða rök að því að opinber verkefni séu oft tilefni erfiðrar opinberrar umræðu (Friðgeirsson og Bragason, 2014). Af þessum sökum er athyglisvert að rannsaka hvernig að ákvörðunar­ takarnir, sem þurfa svo oft að þola gagnrýni, líta á sjálfan sig með tilliti til viljans til að taka áhættu. Margt bendir til að áhætta á framúrkeyrslu í kostnaði opinberra verkefna sé umtalsverð. Því mætti ætla að 3 www.Timarit.is 4 Ástæðan fyrir háu meðalvirði en hlutfallslega lágu hágildi er fjárhagslegt umfang Kárahnjúkavirkjunar. 4     Mynd 1. Dreifing á prósentumismuni á milli raunverulegs og áætlaðs kostnaðar í opinberum framkvæmdaverkefnum (fjöldi verkefna (n ) = 26) yfir tvo áratugi.   Þess skal getið að þessi aðferð var notuð þar sem ekki er hægt að nálgast gagnagrunn yfir opinber verkefni. Tölfræði um heildarkostnað við verkefni, eða verkefnalista, er yfirleitt ekki aðgengileg sem heildstæðar upplýsingar á fjárlögum eða frá öðrum opinberum gagnaveitum. Það er jafnvel erfiðleikum bundið að sjá hvaða verkefni hafa hlotið samþykki og hvaða verkefni ekki þar sem þau sjást aðeins sem hluti af heildarfjármögnun einstakra stofnana og fyrirtækja. Til að freista þess að setja fram mat á framúrkeyrslu kostnaðar var því valið að fara þessa leið. Alls voru 26 stærri verkefni tekin með. Flest verkefnin eru annvirkjasmíði (24). Meðalvirði v rkefnis er 7,4 milljarðar ISK en mið ildið er 1,2 millj rður ISK4. Aðein 3 verkefni voru á eð undir kostnaðaráætlun en af því leiðir að næstum 90% þeirra fóru fram úr áætluðum kostnaði. Að meðaltali fer opinbert verkefni 60% fram úr kostnaði. Ef tekin er saman áætlaður kostnaður og raunverulegur kostnaður á föstu verðlagi er munurinn 63%. Skjalagreining af þessu tagi hefur galla sem vert er að minnast á. Ekki er hægt að útiloka að verkefni sem stríða við framúrkeyrslu kostnaða eigi greiðari leið í fjölmiðla og af því leiði að stór verkefni, sem hefðu bætt tölfræðina, séu ekki talin m ð. Tölfræðileg marktækni er því umdeilanleg                                                                                                                           4  Ástæðan  fyrir  háu  meðalvirði  en  hlutfallslega  lágu  miðgildi  er  fjárhagslegt  umfang  Kárahnjúkavirkjunar.   -­‐50%   0%   50%   100%   150%   200%   250%   300%   350%   1990   1992   1994   1996   1998   2000   2002   2004   2006   2008   2010   2012  M ism un ur  (% )  á  ra un ve ru le gu m  o g   áæ tlu ðu m   ko st na ði    ( n= 26 )   Ár   Mynd 1. Dreifing á prósentumismuni á milli raunverulegs og áætlaðs kostnaðar í opinberum framkvæmdaverkefnum (fjöldi verkefna (n ) = 26) yfir tvo áratugi. ákvörðunartakarnir að líti sjálfa sig sem áhættusækna þegar kemur að ákvörðunum um opinberar framkvæmdir. Hinn möguleikinn er að þrátt fyrir alla gagnrýnina og aðrar vísbendingar líti þeir á sig sem áhættufælna. Ef seinni möguleikinn reynist vera skoðun þeirra þing­ manna, sem samþykkja opinber verkefni inn á fjárlög, er það í mót­ sögn við raunveruleikann enda bendir flest til mikilla líkinda á veru­ legri forspárskekkju um raunverulegan kostnað þegar að ákvörðun er tekin um opinbera framkvæmd. Þessi mótsögn gæfi einnig tilefni til að meta hvort ekki þyrfti að endurbæta stjórnsýsluhætti vegna opinberra verkefna s.s. til að draga úr hættunni á títtnefndum forspárskekkjum um kostnað. Innleiða mætti verklag og starfshætti sem miða að því að bæta ákvörðunartöku, verkefnastjórnun og áhættuvitund líkt og nágrannaþjóðir Íslendinga hafa gert í því augnamiði að fara betur með fjármuni almennings (Friðgeirsson og Bragason, 2014). Þess má geta að það síðastnefnda er einmitt markmið laga um opinberar fram­ kvæmdir (Alþingi, 2002). Þessi rannsókn skoðar hvernig ákvörðunartakar, þ.e. íslenskir þing­ menn, meta afstöðu sína til áhættu þegar þeir standa andspænis mis­ munandi miklum líkum á framúrkeyrslu kostnaðar. Afstaða þingmanna er einnig borin saman við þrjá hópa stjórnenda úr einkageiranum. Rannsóknarspurningarnar má draga saman í eftirfarandi: Í fyrsta lagi er mismunur á afstöðu þingmanna (sem samþykkja/hafna fjárlögum) og stjórnenda í þremur atvinnugreinum til fjárfestingaráhættu? Í annan stað, hvernig passar sú sjálfsmynd sem þingmenn hafa til eigin áhættu­ afstöðu til vísbendinga um kostnaðarframúrkeyrslu? Fræðileg umfjöllun Kenningin um vænt notagildi (EU) er afleidd af verkum Von Neumann og Morgenstern (1944). Grundvöllur kenningarinnar eru að rökvís (rational) ákvörðunartaki geti valið milli kosta með því að tefla saman líkum á að atburður verði og þeim afleiðingum sem að atburðurinn leiðir til. Áhættuafstöðu (risk attitude) einstaklingsins er jafnan lýst með nytjafalli (utility function). Lögun nytjafallsins er fundin með því að greina hvernig einstaklingurinn velur á milli kosta miðað við mis­ munandi mikla áhættu á niðurstöðu (Weber et al., 2002). Hugtökin að vera áhættufælin, áhættuhlutlaus og áhættusækin vísar til þess hvern­ ig nytjafallið er í laginu. Hvelft (concave) fall bendir til áhættufælni á meðan að kúpt (convex) fall bendir til áhættusækni. Kenningin um vænt notagildi er gagnleg sem fræðileg nálgun en hefur annmarka við raunverulegar aðstæður. Sýnt hefur verið fram á að ákvörðunartaki á erfitt með að rýna í tölfræðileg gögn og forgangsraða á þeim grunni líkindi og mismunandi niðurstöður (Schoemaker, 1982). Kahneman og Tversky sýndu með fjölda tilrauna hvernig fólk gekk á svig við kenn­ inguna um vænt notagildi (Kahneman og Tversky, 1979). Þeir héldu fram að fólk noti huglægar leiðsagnarreglur (heuristics) til að einfalda það flókna viðfangsefni að meta líkur og afleiðingar. Ákvarðnir eru fremur teknar af því að auðvelt er að kalla fram tiltekna atburði í hug­ anum frekar en að túlka tölfræðilegar vísbendingar, því sem að er dæmigert frekar en tölfræðilegri marktækni atburða og því hvernig hugurinn túlkar upplýsingar fremur en tölfræðilegrar greiningar. Leiðsagnarreglur eru gagnlegar við daglega iðju en geta engu að síður leitt til dómgreindarbresta eins og Kahneman og Tversky (1974; 1979) greindu frá í sínum merkum greinum um dómgreind og óvissu. Þeir Gilovich, Griffin og Kahneman (2002) og Kahneman et al. (1982) sýndu fram á að jafnvel þegar að ákvörðunartakar vita af hættunni á mistökum bregst dómgreindin þeim samt. Rannsóknir benda til fjögurra megin leiðsagnarregla sem hafa áhrif á getu okkar til að meta gögn og sviðsmyndir. Þessar leiðsagnarreglur kallast lýsing (repres­ entativeness), staðbinding (availability), krækja (anchoring) og fram­ setning (framing). Til að nefna dæmi um hvernig þessar leiðsagnarregl­ ur virka þá vísar lýsing til þess að við hunsum iðulega tölfræðiskekkju lítilla úrtaka, staðbinding vísar til hvernig við metum líkur á atburðum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.